Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Page 14

Bókasafnið - 01.06.2014, Page 14
Bókasafnið 38. árg. 2014 1 4 að koma upp skipulögðu bókasafni á næstu fimm árum. Jafnframt voru svarendur beðnir um að gera grein fyrir annars konar starfsemi en bókasafnsþjónustu sem unn­ in var hjá bókasafninu, þegar við átti. Send voru 665 könnunareyðublöð. Svörun var 47.5%. Til viðbótar fékkst hluti þeirra upplýsinga, sem leitað var um bókasöfn sem ekki svöruðu, hjá mennta­ málaráðuneytinu og fleiri aðilum. Hlutfall safna sem ein­ hverjar upplýsingar fengust um var 78.7% ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. Árið 2001 voru könnunareyðublöð póstsend út til sambærilegs hóps, auk þess þótti nauðsynlegt að senda könnunareyðublöðin einnig til skjalastjóra og bæta við spurningum um skjalastjórn. Ástæðan fyrir þessum breytingum var sú að á þeim tíma fór fjöldi starfa ört vaxandi þar sem sami aðili, oft bókasafnsfræðingur, stjórnaði bókasafni ﴾einkum sérfræðibókasafni﴿ og var jafnframt skjalastjóri. Auk þess var auglýst eftir bóka­ safnsfræðingum til skjalastjórnarstarfa eingöngu. Til þess að fá heildarrmynd af starfsvettvangi bókasafns­ fræðinga var þess vegna nauðsynlegt að afla einnig upplýsinga um skjalastjórnarstörf. Send voru 593 könnunareyðublöð. Svörun var 62%. Til viðbótar fékkst hluti þeirra upplýsinga sem leitað var um bókasöfn, sem ekki svöruðu, hjá menntamálaráðuneytinu og fleiri aðil­ um. Hlutfall safna sem einhverjar upplýsingar fengust um var 71.3% ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. 5 Þjónustueiningar og mannafli 1 989 og 2001 Á rannsóknatímabilinu urðu miklar breytingar á gerð þjónustueininga og dreifingu starfa á þær. Auk þess urðu töluverðar breytingar á framboði starfa og á mannafla hvað varðar aldur, kyn og landfræðilega dreifingu hans. 5.1 Gerðir þjónustueininga og dreifing starfa á þær Ljóst er að gerð og uppbygging þjónustueininga gerbreyttust á tímabilinu frá 1989 til 2001. Þær urðu fleiri og fjölbreyttari. Í heild jókst fjöldi þeirra um rúm 20%, að skjalastjórnareiningum meðtöldum og fjöldi samsettra þjónustueininga sem þjónuðu fleiri tegundum notenda jókst mikið. Árið 1989 voru um 85% eininga hrein söfn ﴾þjónuðu einni gerð notendahóps﴿ og um 86% þjónustueininga voru almennings­ og skóla­ bókasöfn i grunn­ og framhaldsskólum. Árið 2001 var hlutfall hreinna safna komið niður í um 65% og um 71% voru almennings­, og skólabókasöfn i grunn­ og fram­ haldsskólum ﴾sjá töflur 2, 3 og 4﴿. Tafla 2: Fjöldi og tegundir þjónustueininga 1989 *Tölulegum upplýsingum var ekki safnað um söfn sem þjónað var af öðrum 1 989. Sameinaðar þjónustueiningar tel jast einu sinni og þá með þeirri þjónustueiningu sem fyrr er nefnd í töflunni.

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.