Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Side 79

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 79
Bókasafnið 38. árg. 2014 79 var tekinn í notkun. Í bílnum var pláss fyrir 2.000 bækur auk morgunverðarborðs. Bókabíllinn varð strax mjög vinsæll en þegar nasistar stóðu fyrir bókabrennunum 1934 var bókabílnum ekki einungis lokað heldur var hann eyðilagður þar sem stjórnvöld óttuðust að ólögleg­ um áróðri yrði dreift með bókabílnum. Það var ekki fyrr en upp úr 1960 sem bókabíllinn í Köln var tekinn upp að nýju og árið 1980 voru sex bókabílar í notkun fyrir við­ skiptavini almenningssafnsins í Köln. Árið 2004 var hætt með bókabílana vegna fjárhagsörðugleika. Árið 2007 var bókabíllin enn aftur tekinn í notkun á þeim svæðum þar sem langt er að fara í útibú. Nú er hægt er að skila efni sem fengið er að láni í bókabílnum í hvaða útibúi sem er, enn fremur er hægt að panta efni frá öllum útibúum og aðalsafni og sækja það í bókabílinn viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Að lokum Heimsókn okkar til Kölnar lauk með hádegisverði í boði Hannelore Voght, en hún er eins og áður segir framkvæmdastjóri allra almenningssafnanna í Köln. Þar ræddum við meðal annars um ástæðu ferðar okkar til Kölnar og væntingar okkar til ferðarinnar. Við komum inn á hversu mikilvægt það er fyrir þá sem starfa í upp­ lýsingafræðigeiranum að fylgjast með því nýjasta sem aðrir eru að gera og að mynda tengsl við fólk í öðrum löndum. Frú Vogt lýsti yfir áhuga á því að heimsækja Ís­ land og kynnast bókasafnamenningunni hér á landi. Meðan á dvöl okkar stóð í Köln fylgdi okkur maður að nafni Frank Daniel, sem hafði yfirumsjón með dvöl okkar í safninu. Frank kynnti okkur ögn fyrir djasslífi Kölnar­ borgar utan vinnutímans og má segja að hugmyndir okkar um dæmigerða Þjóðverja hafi hrunið eins og spilaborg við almennilegheit Franks Daniel, Hannelore Vogt og allra þeirra starfsmanna sem fræddu okkur á meðan heimsókninni stóð. Barnið í mér Gulleitt glas á borði sóleyjarvöndur í glugga hringlaga munstur á gólfdúk appelsínubrúnum. Emil í Kattholti horfir á mig í grænum stól í horni, við langan glugga lítil mús. Skurður í túni, kvígan hún Stjarna og stóra lambið sem dó. Í anddyri angan sem finnst ekki lengur, en þó. Eyrún Ýr Tryggvadóttir

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.