Morgunblaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2015 4 BÍLAR M ikið hefur verið fjallað um verðlaunabílinn Citroën C4 Cactus en hann er loksins kom- inn á markað á Íslandi. Líkt og ann- ars staðar hefur hann vakið mikla athygli, svo mikla að við blaða- menn sem höfum atvinnu af því að prófa bíla, gátum ekki fengið ein- tak strax til prófunar því að þau seldust öll upp. Þó kom að því að við fengum eintak til prófunar og það með nýju 1,6 lítra Blue HDi dís- ilvélinni. Bíllinn vakti athygli hvert sem hann fór og allir virtust hafa skoðun á þessum sérstaka bíl. Pakkað inní bóluplast Við höfum áður séð bíla með við- arklæðningu, eða plastlistum á hliðunum en að pakka bílnum inní bóluplast er nýtt. Citroën kallar þessa lausn Airbumps en það er mjúkt en sterkt plastefni sem inni- heldur loftbólur. Þannig þolir bíllinn það þótt að innkaupakerra eða bíl- hurð rekist utan í, án þess að eitt- hvað sjáist á honum. Við prófuðum reyndar ekki innkaupakerruna en bílhurðaprófið stóðst hann með miklum ágætum. Plastefnið er ekki bara á hliðum hans því að það er líka á hornum hans sem minnkar hættu á skemmdum þegar franska aðferðin er notuð við að leggja í stæði. Að innan er bíllinn einnig öðruvísi en flestir bílar. Fátt er um takka og annan stjórnbúnað en í stað þess er stór, sjö tommu snert- iskjár fyrir miðjum bílnum sem fangar athyglina. Þaðan er líka hægt að stjórna öllum aðgerðum eins og miðstöð, hljómtækjum, síma og aksturstölvu. Auðvelt er að fletta á milli aðgerða þar sem til hliðar eru snertitakkar sem hleypa manni beint í viðkomandi aðgerð. Að vísu hefði miðstöð mátt hafa gráðustillingu fyrst farið var að búa hann svona en annars virkaði þessi stjórnbúnaður með ágætum. Ekkert prjál, takk fyrir Cactus er heilum 200 kílóum léttari en hefðbundinn C4. Augljóst er við nánari skoðun að margt hef- ur verið látið flakka, hvort sem það var talið óþarfi eða einfaldlega til þess að létta bílinn og minnka framleiðslukostnað. Til dæmis eru engin formótuð plastefni í hlið- arhurðum heldur einfaldlega hand- fang úr tauefni. Sætin eru mjúk og úr einföldum efnum og afturí eru engir rúðuhalarar heldur einföld stormjárn. Enginn snúnings- hraðamælir er í bílnum og heldur enginn aðdráttur á stýri. Í fyrsta skipti í bíl er nú búið að koma ör- yggispúða fyrir framsætisfarþega í lofti bílsins og þess vegna er ekki bara gott pláss fyrir framan hann í hanskahólfinu, heldur er fram- rúðan líka lægri og veitir betra út- sýni. Engin miðstöðvartúða er þó hægra megin fyrir farþegann frammí, hvort sem það hefur verið til að spara pláss eða þyngd, ef- laust hvort tveggja. Farangursrými er gott eða heilir 358 lítrar en það er talsverður ókostur að ekki er hægt að fella það niður í tveimur hlutum. Ef flytja þarf langan hlut er eins gott að farþegarnir séu ekki fleiri en tveir. Léttur í akstri Að keyra Cactusinn er ekki eins leiðinlegt og sumir kynnu að halda. Þótt hann sé ekki búinn stórri vél er það hluti af ástæðunni því þær eru léttari. Hann er byggður á DS3 undirvagninum, þeim sama og í C3 og notast því við minni bremsur og er með einföldum fimm gíra kassa. Þess vegna sparast 150 kg bara við það og það sem sparast í innrétt- ingu bílsins dregur 50 kíló frá í við- bót. Þess vegna eru 100 hestöflin sem fylgja vélinni alveg nóg. Bíllinn virkar léttur í öllum akstri, einnig þegar hann er látinn vinna í beygj- um. Dísilvélin skilar góðu togi en hefði verið enn skemmtilegri með Njáll Gunnlaugsson reynsluekur Citroën C4 Cactus Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson Léttur í spori og við budduna líka Citroen C4 Cactus 1,6 Blue HDi Árgerð 2015 • 16 tommuálfelgur • Eiginþyngdkg: 1.070bsk • Farangursrými: 358 lítrar • 0-100km/sek: 10,7 •Hámark: 184km/klst • Framhjóladrif •Verð frá: 2.690.000kr • 3,4L/100km íbl akstri • Umboð:Brimborg •Mengunargildi: 89gCO2/km • 1,6 lítradísilvél • 100hestöfl/254Nm •5gírabeinskipting Þar sem öryggispúði fyrir farþega í framsæti er fyrir ofan framrúðu er meira pláss í innréttingunni fyrir hanskahólf. Nokkurt veghljóð er í bílnum í akstri, sérstaklega á dæmigerð- um íslenskum olíumalarvegum. Kostir Verð, eyðsla, farangursrými Gallar Veghljóð, miðstöð, enginn aðdráttur á stýri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.