Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Blaðsíða 33
J
óna Elísabet Ottesen og hennar fjölskylda stofnuðu matarklúbb síðla
hausts í fyrra. Matarklúbburinn hefur komið saman tvisvar síðan þá
og stefnir að því að hittast á 2-3 mánaða fresti. Klúbburinn hefur þó
ekki enn fengið nafn, vanda þarf valið. Við stofnun var ákveðið að hafa
þema fyrir hvert boð og í fyrsta matarboðinu var víetnamskt þema, nú
síðast var mexíkóskt þema. „Matarástin er mikil í okkur öllum og mat-
arklúbburinn gefur okkur tækifæri til þess að hittast, elda saman góðan
mat, borða og njóta í góðum hópi og hlátrasköllum,“ segir Jóna. „Fyrsta
boðið okkar, sem var víetnamskt þema, heppnaðist rosalega vel. Það var
gríðarlega mikið af mat og allir lögðu sig sérstaklega fram. Það var gíf-
urlega mikil stemning að elda öll saman, allt önnur stemning en þegar
einn sér um að elda.“
Mexókóska matarboðið heppnaðist
líka einstaklega vel og komst þemað vel
til skila en boðið var haldið heima hjá
pabbanum, Sveinbirni Ottesen og konu
hans Olgu Björk Bragadóttur. „Þegar
við komum heim til pabba var allt á
fullu í eldhúsinu, þau eru með opið eld-
hús og vorum við því öll að hjálpast að
og metnaðurinn í hæstu hæðum. Olga
var búin að leggja á borð í anda þemans með fallegum dúk og flottum
diskum og blómum. Rétturinn hennar Chilli con carne var tilbúinn og afar
girnilegur. Ása gerði nachos og rosa góða salsa dýfu í ofni og var pabbi
tilbúinn með Corona sem er nauðsynlegt með mexíkóskum mat. Davíð og
Jana voru með hefðbundinn mexíkóskan „street food“ eða samlokur með
nautakjöti og við Steingrímur Ingi gerum Sobes-skeljar með bæði kjúk-
lingafyllingu og chorizo-fyllingu.“
Halda í fjölskylduhefðir ömmu gömlu
„Við fjölskyldan höfum alltaf verið dugleg að hittast og þá helst þegar ein-
hver býður í mat. Föðuramma mín hún Jóna Guðjónsdóttir er fræg fyrir
að halda góð matarboð og er þetta því alveg í anda þess sem við höfum al-
ist upp við og virkilega gaman að halda þeim sið við. Pabbi og Olga hafa
verið einstaklega dugleg við að bjóða í mat undanfarið og okkur finnst öll-
um mjög gaman að hittast og eiga góðar stundir saman. Þegar það er
matarboð í Mosó þá er spennan alltaf jafn mikil þar sem Olga er mikill og
skemmtilegur kokkur og fáum við alltaf eitthvað rosalega gott. Hún er
dugleg að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi. Það eru matarboðin sem halda
fjölskyldunni saman og það er alltaf líf og fjör í kringum okkur,“ segir
Jóna. „Pabbi og Olga eru alltaf hress og elska að fá okkur dæturnar og
maka í mat. Fyrsta barnabarnið kom í fjölskylduna í janúar 2014 og er því
mikil ánægja með að hafa hana með, Ugla dóttir mín og Steingríms Inga.“
Jóna segir að undirbúningur fyrir næsta boð hefjist strax eftir matinn
og leggja allir höfuðið í bleyti um hvað næsta þema gæti verið. Ákveðið
var að hafa indverskt þema. Spennan fyrir næsta boði er því mikil og allir
munu án efa sökkva sér í að finna einhverjar glæsilegar uppskriftir. 34
Maturinn fékk sannarlega mikla ást við undirbúning og óhætt að segja að hann
var útbúinn af vandvirkni. Þannig bragðast hann best.
Morgunblaðið/Kristinn
MATARKLÚBBUR MEÐ MATARÞEMA
Ólust upp við
skemmtileg
fjölskylduboð
* Það eru mat-arboðin semhalda fjölskyld-
unni saman.
FJÖLSKYLDA NOKKUR TÓK SIG SAMAN OG STOFNAÐI MAT-
ARKLÚBB MEÐAL ANNARS TIL ÞESS AÐ EIGA LJÚFAR OG
GÓÐAR STUNDIR SAMAN. MIKILL METNAÐUR ER LAGÐUR Í
BOÐIN OG MATINN SEM ER ÞEMABUNDINN Í HVERT SKIPTI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Ugla trommar af kappi á litla endaborðið á meðan Ástrós hlustar á.
12.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33