Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Side 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2015
Náttúrulega gott. Það er ekkert annað í
boði. Það verður alla vega veður.
Svala Steingrímsdóttir
Ég er ekki bjartsýn. Miðað við fyrri reynslu.
Kristín Skjaldardóttir
Það verður örugglega æðislegt fyrir austan.
Kjartan Haraldsson
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVERNIG VERÐUR SUMARIÐ?
Sumarið verður brokkgengt. Vonandi verður
það samt hlýrra en í fyrra.
Haukur Valdimar Pálsson
Morgunblaðið/Eggert
Tískusýning útskrift-
arnema fatahönn-
unardeildar Listahá-
skóla Íslands var
haldin í Hörpu sum-
ardaginn fyrsta. Á
sýningunni sýndu níu
nemendur flottar
fatalínur. Tíska 42
Í BLAÐINU
Undanfarnir dagar hafa líklega verið
ævintýri líkastir, hvernig datt þér í hug
að skeyta atriðinu með McConaughey
við Star Wars-stikluna?
Ég var í sturtu og mundi eftir leiksigri Matthews
McConaughey í Interstellar og fannst þessi
myndbrot mögulega eiga samleið. Ég gaf mér
síðan rúman klukkutíma og dreif mig í því að
koma þessu upp til þess að nýta mér áhugann á stikl-
unni.
Þú skrifaðir heila bók um akkúrat þetta,
hvernig ætti að ná sér í áhorfendur á Youtube.
Var þetta alltaf planið?
Það væri náttúrlega eðlilegast að segja nei og því segi ég já.
Bókin nefnist „Hvað er víral - 3 auðveld skref til þess að ná
sér í 5 milljón birtingar á sólarhring“. Þeir sem hafa áhuga á
markaðsstarfi, hönnun eða auglýsingagerð mega endilega
kíkja á Auglýsingastofuna 99 á Facebook. Þar verður hugs-
anlega hægt að nálgast bókina … Hugsanlega.
Ertu mikill aðdáandi Star Wars?
Þetta eru skemmtilegar myndir og boðskapurinn í þeim er mjög
sterkur. Ég ólst upp við þær eins og flestir. Þeir sem gerðu það
ekki búa væntanlega í Norður-Kóreu.
Hvernig er tilfinningin að sjálfur Darth Vader hafi
skoðað stikluna þína?
Það voru fjölmargir áhugaverðir sem deildu þessu en fyrir mig
persónulega þá er þetta í uppáhaldi enda um að ræða stærstu per-
sónu kvikmyndasögunnar.
Hvert er stefnan svo tekin núna?
Nú sinni ég 99 og þessari youtube-rás sem finna má á you-
tube.com/oskararnarson. Hvet fólk til að smella á subscribe og
gerast áskrifendur enda byrjaður að skipuleggja næsta mynd-
band. Samhliða þessu öllu saman er svo í vinnslu að gera mynd í
fullri lengd en ég kem betur að því síðar. Ég vil þakka öllum
kærlega sem deildu þessu og höfðu gaman af.
Morgunblaðið/Kristinn
ÓSKAR ÖRN ARNARSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Náði til
Darths Vaders
Forsíðumyndina tók
Golli
Margréti Maríu Sigurðardóttur,
umboðsmanni barna,
finnst börn frábær og hefur
ekki áhyggjur af framtíðinni.
Hún er búin að heimsækja yfir
hundrað grunnskóla og ætlar
sér að heimsækja þá alla áður
en hún lætur af störfum eftir
rúmlega tvö ár. Viðtal 14
Kóramót íslenskra kóra í Norður-Evrópu var
haldið á dögunum í Lundúnum. Tvö ár tók að skipu-
leggja mótið og voru þátttakendur alsælir að því
loknu. Menning 56
Valur Grettisson ætlaði
alltaf að verða skáld, en
lenti óvart í blaðamennsku,
eins og hann lýsir því.
Fyrsta skáldsaga hans, Gott
fólk, kom út í vikunni og
segir frá ungum manni sem
gengst undir ábyrgðarferli
sem verður að ótímabund-
inni refsingu. Bækur 58
Leikstjórinn og hönnuðurinn Óskar Örn Arnarson rekur auglýs-
ingastofuna 99 og heldur úti síðu á Youtube en um daginn fór
stikla eftir hann eins og eldur um sinu á veraldarvefnum. Allir
helstu miðlar vestanhafs, á borð við The Huffington Post, The Gu-
ardian, Time og fleiri hafa haft samband við Óskar. Stiklan sýnir
sýnishorn úr nýjustu Star Wars kvikmyndinni, The Force Awakens,
skeytt saman við brot úr kvikmyndinni Interstellar þar sem Matt-
hew McConaughey fer á kostum. Sjón er sögu ríkari.