Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2015
Í ár minnumst við þess að eitt hundrað ár eruliðin frá því konur fengu kosningarétt ogkjörgengi til Alþingis. Við ættum að minnast
þess líka að fátækt fólk fékk þá einnig atkvæð-
isrétt – með skilyrðum þó. Vinnuhjú sem nú
máttu kjósa áttu ekki að njóta þess réttar ef þau
voru í skuld við sveitarfélagið!
Þegar mannréttindasigrum er fagnað er jafn-
framt hollt að minnast þeirra sem mannréttindi
voru brotin á. Þegar litið er um öxl á lýðræð-
isvegferðinni sjáum við brotalamir sem voru ekki
alltaf augljósar í samtímanum. Við undrumst nú
þröngsýnina og íhaldssemina sem hafði mann-
réttindin af konum og eignalausu fólki fyrr á tíð.
En getur verið að við þurfum að bíða enn í
hundrað ár eftir því að Háskóli Íslands stígi út
úr forneskjunni og láti af þeirri aðskiln-
aðarstefnu sem hann ástundar gagnvart starfs-
mönnum sínum?
Í rektorskjörinu í Háskóla Íslands, sem nú er
nýafstaðið, erum við minnt á þá mismunun sem
starfsfólk í Háskóla Íslands býr við þegar kemur
að ákvarðanatöku um yfirstjórn stofnunarinnar.
Það starfsfólk sem ekki hefur háskólapróf upp á
vasann hefur rýrari kosningarétt en það starfs-
fólk sem hefur slíka gráðu – bara einhverja – í
sínum fórum! Líklegt er að í framtíðinni verði
fjallað um þetta í sögubókum og munu menn þá
býsnast yfir þeirri þröngsýni og íhaldssemi sem
enn hafi verið við lýði við Suðurgötuna í Reykja-
vík á því herrans ári 2015.
Sem betur fer líta menn nú menntun öðrum
augum en áður var gert og hefur barnalegur
hroki bóknámsfólks verið víkjandi. Öll skiljum
við sífellt betur að lífsgæði okkar verða til vegna
margvíslegrar þekkingar til hugar og handar og
samfélaginu hefur lærst að meta mikilvægi
margbreytileikans í færni einstaklinga og getu
þeirra til starfa og þá einnig hvernig þessarar
getu er aflað. Þar gildir engin stöðluð formúla.
Þess vegna er undarlegt að sú menntastofnun
þjóðarinnar sem mest tilkall gerir til virðingar
skuli vera þetta aftarlega á mannkynssögumer-
inni.
Á fréttavef gat að líta eftirfarandi skilgrein-
ingu á aðskilnaðarstefnunni við rektorskjörið:
„Atkvæði háskólakennara og annarra starfs-
manna sem hafa háskólapróf giltu sem 60%
greiddra atkvæða. Atkvæði stúdenta giltu sem
30% greiddra atkvæða og atkvæði annarra at-
kvæðisbærra aðila giltu sem 10% greiddra at-
kvæða.
Ég byrjaði að hreyfa þessu máli þegar ég kom
fyrst sem stundakennari að HÍ öðrum hvorum
megin við árið 1980. Síðan er liðinn aldarfjórð-
ungur og tíu ár betur. Hve lengi skyldi enn þurfa
að bíða?
Tímaskekkjan í Háskóla Íslands
* Þegar mannréttinda-sigrum er fagnað er jafn-framt hollt að minnast þeirra
sem mannréttindi voru brotin
á. Þegar litið er um öxl á lýð-
ræðisvegferðinni sjáum við
brotalamir sem voru ekki alltaf
augljósar í samtímanum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur
Jónasson
ogmundur@althingi.is
Rithöfundurinn
Halldór Arm-
and Ásgeirsson
tjáði sig um
skoðanaskipti á
samfélagsmiðl-
unum og skrifaði á Twitter:
„Twitter gegndarlaus echo cham-
ber. Það er verðmætt að búa í
samfélagi þar sem fráleitar skoð-
anir þrífast og allir eru ekki alveg
eins.“
Tónlistarmað-
urinn Jón Jóns-
son var hins veg-
ar meira að spá í
tungumálinu
sjálfu og setti
fram spurningu til kunningja
sinna á Twitter: „Hví hefur „ég
er að sjóða í þér“ aldrei náð
festu í málinu líkt og „ég er að
grilla í þér“ eða „ég er að steikja
í þér“?“
Fjölmiðlakonan
Sirrý Arn-
ardóttir deildi
upplifun sinni af
bæjarrölti sínu á
Facebook: „Við Kristján vorum á
röltinu í bænum í gær og hittum
franskan ferðamann og spjöll-
uðum við hann yfir súpu. Hann
var himinlifandi yfir lífinu hér.
Ferðast einn um landið og heill-
aðist alveg af Snæfellsnesi. ,,Það
er svo endurnærandi að ganga
einn og upplifa orkuna í nátt-
úrunni. Og lífið hjá ykkur er svo
einfalt og gott. Það er svo mann-
eskjulegt,“ sagði Frakkinn.
Glöggt er gestsaugað.“
Framkvæmda-
stjórinn og nem-
inn Diljá
Ámundadóttir
benti réttilega á
þá döpru stað-
reynd að fimmtudagurinn síðasti
ber sjaldnast nafn með rentu:
„Sú manneskja sem samdi
„Sumardagurinn frysti“ - brand-
arann ætti að koma ágætlega út-
ur grín-stef greiðslum dagsins.
Sem og aðra fyrstu sumardaga
Íslands svo sem.“
Útvarpsmað-
urinn Sólmund-
ur Hólm fagnaði
hins vegar sumr-
inu að eigin sögn
á Twitter svona:
„Ég er að fara að taka strætó í
Hveragerði til að detta í það
með pabba. Gleðilegt sumar!“
AF NETINU
Vettvangur
Eitt stærsta dagblað Indlands, The
Times of India, fjallar um líkindi
milli nýs leiðtoga stjórnmálahreyf-
ingarinnar AAP þar í landi og fyrr-
verandi borgarstjóra Reykjavíkur,
Jóns Gnarr.
Bhagwant Mann situr á neðri
deild indverska þingsins og tók
óvænt við leiðtogahlutverki AAP
eftir innbyrðis deilur í flokknum.
Indverska Times greinir frá því
að á Íslandi hafi grínisti að nafni
Jón Gnarr átt svipaðan bakgrunn
og indverski grínistinn og því gæti
Bhagwant Mann vel átt möguleika á
að auka fylgi flokksins.
Bhagwant hefur farið í gegnum
sín pólitísku framboð á gríni og
glensi og þar í landi velta menn því
fyrir sér hvort framboð hans sé
jafnvel ein satíra. Hann sé hins veg-
ar engan veginn fyrstur til að gera
pólitíkina að skemmtun né sá fyrsti
til að fara á hlátrinum í gegnum
slíkt. Slíkt hafi Jón Gnarr og
nokkrir aðrir leiðtogar einnig gert.
Indverskur Jón Gnarr
Indverska Times segir nýjan leiðtoga
eins helsta stjórnmálaafls þar í landi
minna á týpur eins og Jón Gnarr.
Morgunblaðið/Þórður
GOnguferain IJiner a utivist. is