Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 21
26.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Hinn vinsæli ferðaþjónustuvefur
Tripadvisor.com birti á dögunum
nýjustu samantekt sína á vinsæl-
ustu áfangastöðum ferðamanna
á jarðarkringlunni og byggir á
meðaleinkunn sem notendur
vefsíðunnar gefa áfangastöðum
og þjónustunni sem boðið er
upp á. Í fyrsta skipti trónir borg-
in Marrakesh í Marokkó á
toppnum, sem „besti áfanga-
staður ársins“. Marrakesh er
sögð „töfrandi staður, borg full
af mörkuðum, görðum, höllum
og moskum“. Spennandi sé að
kanna torg, garða og þröngar
götur gömlu borgarinnar, hinnar
sögufrægu „medínu“, en auðvelt
sé að gleyma sér þar heilu dag-
ana. Þá sé unun að ganga um
hinn fagra garð Jardin Majorelle
og ótal margt annað sé að sjá og
upplifa. Sá áfangastaður Tripad-
visor.com sem fær næst hæstu
einkunn notenda er Siam Reap í
Kambodíu. Þá koma Istanbul í
Tyrklandi, Hanoi í Víetnam, Prag
í Tékklandi, London, Rómaborg,
Buenos Aires í Argentínu, París
er í níunda sæti og miðborg
Cape Town í Suður-Afríku er í
því tíunda.
Í næstu sætum þar á eftir eru
New York-borg, Zermatt í Sviss,
Barcelona á Spáni, Goreme í
Tyrklandi og Ubud í Indónesíu.
Þótt húmi að þá iða mörg hverfi Marrakesh af lífi, langt fram á kvöld. Eftir heitan vordag njóta félagar þess að leika ballskák í Palmeraie-hverfinu, utan gömlu borgarmúranna. Marrakesh þenst út, hraðar
en nokkur önnur borg í Marokkó og er það þakkað stríðum straumi ferðamanna til þessa vinsæla áfangastaðar. Ferðaþjónusta er að verða helsta atvinnugreinin, fer senn fram úr landbúnaði.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sól, minjar eða markaðir? Í Marra-
kesh er hægt að upplifa það allt.
TRIPADVISOR VELUR BESTA ÁFANGASTAÐINN
Marrakesh á toppnum
Eins og frábær einkunnin sem notendur Tripadvisor gefa þjónustu í Marokkó ber vott um, kunna heimamenn þá list að
láta fara vel um gesti sína. Hér láta ferðamenn líða úr sér við logandi eld og kertaljós, á eðalstað í úthverfi borgarinnar.
Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K ,
S Í M I 5 1 2 8 1 8 1
VERIÐ VELKOMIN
Á NÝJAN VEITINGASTAÐ
Í RAUÐA HÚSINU
VIÐ GÖMLU HÖFNINA
Í REYKJAVÍK