Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Side 30
ínurnar og kanilinn. Hellið fyllingunni síðan í
kökuformið ofan á deigið. Fletjið síðan rest-
ina af deiginu út með kökukefli og skerið í
langar ræmur, hver um 1 cm þykk. Byrjið á
því að nota lengstu tvær ræmurnar og leggið
ofan á fyllinguna svo ræmurnar tvær myndi
stafinn X á miðri bökunni. Leggið hinar
ræmurnar síðan yfir, lárétt og lóðrétt og
fléttið þær ýmist yfir eða undir hvora aðra.
Notið stystu lengjurnar í endana. Ef það
reynist erfitt að ná lengjunum upp af borð-
inu til að færa á bökuna, þá er gott ráð að
rúlla þeim upp og afrúlla þær síðan á bök-
unni. Þrýstið endunum á lengjunum vel upp
við kantana og snyrtið burt óæskilegar flygs-
ur. Hrærið hálfa eggið og penslið ofan á epla-
bökuna. Færið síðan inn í ofn og bakið í um
60-65 mínútur eða þar til deigið er orðið
ljósbrúnt á litinn. Gott er að bera fram með
rjóma eða vanilluís.
6 eggjarauður
1 bolli sykur fyrir eggjarauðurnar
1 1/4 bolli Mascarpone
2 bollar þeyttur rjómi
ca. 20 stk. Lady fingers
1 bolli kaldur espressó
½ bolli kahlua
1 msk kakó
Blandið eggjarauðum og sykri saman í
vatnsbaði, undir sjóðandi vatni. Lækkið síð-
an hitann og eldið í um 10 mínútur, hrærið
stöðugt á meðan. Takið blönduna af hita og
hrærið þar til verður þykk og fölleit. Bætið
Mascarpone við blönduna og hrærið þar til
blandast vel. Í annarri skál, þeytið rjóma.
Blandið þeytta rjómanum varlega saman við
Mascarpone og eggjablönduna og leggið til
hliðar. Blandið kalda espressó-kaffinu við ka-
hlua líkjörið og dýfið Lady fingers ofan í, rétt
svo þar til þeir verða blautir. Alls ekki renn-
bleyta þá! Raðið Lady fingers í botn í 22 cm
kökuform eða form af svipaðri stærð og
dreifið Mascarpone- og rjómablöndunni yfir.
Endurtakið þetta með annað lag af Lady fin-
gers og rjómablöndunni. Geymið síðan inni í
ísskáp í 4 klukkustundir eða yfir nótt. Þegar
á að bera fram, sáldrið þá kakóinu yfir kök-
una með sigti.
Tiramisu frá Ítalíu
Matur
og drykkir
Vissir þú...
Morgunblaðið/Árni Sæberg
*...að til eru svo margar tegundir af epl-um í heiminum að ef þú ættir aðborða eina tegund af epli á dag, tækiþað yfir 27 ár. Rúmlega 7.500 tegundireru þekktar og á hverju ári bætast viðnýjar tegundir epla í eplaflóruna.Epli hefur ýmsa góða kosti og meðal
annars er talið að epli geti minnkað
líkurnar á sykursýki.
2 pakkar af vanillubúðing
2 bollar rjómi
1 bolli mjólk
½ bolli smjör
1 bolli vatn
¼ tsk salt
1 bolli hveiti
4 egg
Blandið vanillubúðingnum (blöndunni í
pakkanum) saman við rjóma og mjólk í skál.
Breiðið yfir skálina og færið inn í ísskáp. Hit-
ið ofninn í 220°C. Hellið vatni og smjöri í
stóran pott og látið suðuna koma upp.
Hrærið hveitinu í, ásamt saltinu, þar til verð-
ur að deigi og myndar kúlu. Færið deigið í
stóra skál og notið trésleif til að blanda eggj-
unum við, einu í einu. Hrærið vel eftir hvert
egg. Notið matskeið til að mæla og skafa kúl-
ur úr deiginu. Hnoðið í bollu og setjið á bök-
unarpappír á ofnplötu. Endurtakið þar til
deigið er búið. Bakið í 20-25 mínútur í ofn-
inum þar til fylltar á litinn. Miðjan á að vera
alveg þurr. Þegar bollurnar eru að kólna,
skerið þær annaðhvort í tvennt og sprautið
búðingablöndunni á milli eða notið
sprautupoka til að sprauta
inn í bollurnar.
Gott er að hella
smá súkkulaði á
toppinn og
bera síðan
fram.
1 bolli vatn
½ bolli smjör eða margarín
1⁄4 tsk. salt
1 bolli hveiti
3 egg, handþeytt
olía, til steikingar
1⁄4 bolli sykur
Súkkulaðiídýfa
1 msk. maíssterkja
2 bollar mjólk
100 g saxað suðusúkkulaði
1⁄4 bolli sykur
Bræðið smjörið eða margarínið á djúpri
pönnu ásamt vatni og salti á háum hita og
látið suðuna koma upp. Notið trésleif til að
hræra hveitið saman við. Lækkið hitann nið-
ur á lægsta stig og hrærið kröftuglega þar til
blandan myndar nokkurs konar kúlu (þetta
tekur um 1 mín.). Takið deigið af hitanum en
ekki hætta að hræra í deiginu. Hellið eggja-
þeytunni hægt og rólega í deigið.
Þá er komið að súkkulaðiídýfunni. Leysið
upp maíssterkjuna í 1 bolla af mjólk í lítilli
skál og leggið til hliðar. Blandið
súkkulaðinu við hinn bollann
af mjólkinni á pönnu við
vægan hita. Hrærið
stöðugt og hellið
sykrinum og
maís-
sterkju-
blönd-
unni út í
bráðn-
að
súkkulaðið. Lækkið hitann niður á lægsta stig
og hrærið vel í blöndunni þar til súkkulaðið
tekur að þykkna (bætið við maíssterkju ef
það þykknar ekki eftir 5 mín.). Takið pönn-
una af hitanum og hrærið í þar til blandan er
orðin mjúk, leggið þá til hliðar á hlýjan stað.
Þá er komið aftur að deiginu. Hellið olíu á
djúpa pönnu, um það bil 5 cm lag, og stillið á
meðalhita þar til olían nær um 180°C hita.
Setjið sykurinn á disk og geymið. Færið deig-
ið ofan í sprautupoka með tiltölulega stórum
stút. Kreistið 10 cm lengju ofan í olíubaðið.
Endurtakið þar til 3-4 lengjur eru á pönn-
unni. Steikið þær og snúið aðeins einu sinni
þar til lengjurnar eru orðnar gylltar, tekur
um 2 mín. á hvorri hlið. Færið tilbúnu chur-
ros-lengjurnar á disk með eldhúspappír til
að þerra olíuna af þeim. Þegar churros-
lengjurnar hafa kólnað nóg til að halda á
þeim, rúllið þeim í sykurinn. Borið fram
volgt með súkkulaðiídýfunni í skál.
Cream puffs frá Ungverjalandi
Churros frá Spáni
Appeltaart frá Hollandi
Deigið
250 g hveiti
175 g smjör
80 g fínn sykur
2 egg (1½ fyrir deigið en ½ fer í pensl-
un)
1 tsk. kanill
Fyllingin
1 kg epli (græn)
50 g fínn sykur
70 g ljósar rúsínur (má sleppa)
2 tsk. kanill
Blandið hveiti, smjöri, sykri, kanil og 1½
eggi í skál. Hnoðið með höndunum í mjúkt
deig. Fletjið ¾ hluta deigsins út með köku-
kefli svo það fylli botninn og hliðar á kringl-
óttu kökuformi, 24 cm. Hitið ofninn í 170°C.
Skrælið, kjarnhreinsið og skerið eplin í skífur.
Blandið eplunum saman við sykurinn, rús-
4 evrópskir
eftirréttir
GÓÐIR EFTIRRÉTTIR ERU OFT ALLRA MEINA BÓT. MÖRG
LÖND EIGA SÍN HEFÐBUNDNU SÆTINDI SEM ERU ORÐIN
FRÆG FYRIR ÞAÐ EITT AÐ BRAGÐAST DÁSAMLEGA.
HÉR KOMA ÞEKKTIR EFTIRLÆTIS EFTIRRÉTTIR FJÖGURRA
LANDA SEM AUÐVELT ER AÐ ÚTBÚA.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
HEFÐBUNDIÐ
OG VINSÆLT