Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Side 34
Ferskir ávextir og grænmeti eru hlaðin af víta-
mínum, steinefnum og öðrum næringarefnum. Þá
innihalda þau trefjar sem geta lækkað kólesteról í
líkamanum og stuðlað að góðri heilsu. Ef þörfin
fyrir að narta í eitthvað lætur á sér kræla er snjallt
að næla sér í grænmeti eða ávöxt. Brokkolí er til
dæmis frábært milli mála og slær á sykurþörf.
Appelsínur, ber, blómkál, brokkolí, dökk
salatblöð, eggaldin, epli, grænkál,
kúrbítur, paprikur, perur,
sellerí, skvass, tómatar
og vínber.
Ávextir og
grænmeti
Baunir og
kornmeti
Það sem baunir og kornmeti hefur, líkt og
grænmeti og ávextir, eru trefjar. Trefjar
halda kólesteróli í hæfilegu jafnvægi.
Baunir (svartar, pinto og nýrnabaunir),
brún hrísgrjón, buglur, bygg, hafrar, heil-
hveiti, heilhveiti- eða speltpasta, hörfræ,
kínóa, kjötsoð, kúskús,
maísmjöl, sojahveiti, tómatar,
tómatmauk, villt
hrísgrjón.
Gott er að borða feitan og magran fisk, kjöt
og einnig fæðu úr jurtaríki sem minnir á kjöt,
svo sem tófú. Unnar matvörur henta ekki og
sérstaklega ekki þær sem innihalda mikið af
mettaðri fitu.
Fiskur sem inniheldur mikið af omega 3
fitusýrum (lax, síld, makríll, silungur og
túnfiskur), fitusnauðar svínalundir,
kalkúnabringur, kjúklingabringur,
þunnt og magurt
nautakjöt og tófú.
Kjöt og fiskur
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2015
Matur og drykkir
SENDU HÆTTUNA HEIM MEÐ HOLLRI FÆÐU
Þarftu að lækka
kólesterólið?
FITUEFNIÐ KÓLESTERÓL ER LÍKAMANUM MIKILVÆGT OG SÉR LIFRIN UM AÐ FRAM-
LEIÐA MEST AF ÞVÍ. HINS VEGAR ER HÁTT KÓLESTERÓL Í BLÓÐI EINN AF HELSTU
ÁHÆTTUÞÁTTUM Í HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMUM. ÞEIR SEM HAFA HÁTT KÓLEST-
ERÓL Í LÍKAMANUM OG VILJA BORÐA HEILSUSAMLEGA FÆÐU ÞURFA AÐ VITA
HVAR Á AÐ BYRJA. HÉR ER NOKKUÐ GÓÐUR LISTI AF FJÖLBREYTTRI FÆÐU SEM
HJÁLPAR TIL VIÐ AÐ HALDA KÓLESTERÓLI Í LÁGMARKI OG BLÓÐÞRÝSTINGI Í
JAFNVÆGI. LISTINN ER EKKI TÆMANDI EN ÞÓ LANGUR OG GOTT AÐ TAKA
BLAÐSÍÐUNA BARA MEÐ SÉR Í BÚÐINA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Mjólkurvörur eru ríkar að kalki sem vinnur
vel gegn miklu magni af kólesteróli. Sleppið
þó rjómanum og veljið magrar mjólk-
urvörur umfram feitar.
Hreint jógúrt, kotasæla, létt-
mjólk, magrir ostar, möndl-
umjólk, sojamjólk og
sýrður rjómi
10%.
Mjólkurvörur
og svipaðir
valkostir
Getty Images/iStockphoto