Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 37
Snúrurnar í fjarstýring- arnar eins og girnileg- ar lakkrísreimar … hljóðið þýða sem heyrðist þegar leik var smellt í hólfið … tón- listin fallega sem gerði leik- ina ógleym- anlega. Ef eitthvað er klassík í leikjatölvuiðn- aðinum þá er það Nintendo- tölvan, sem fullu nafni nefndist Nintendo Entertainment System. Hún kom á markað árið 1985 og var fyrsta leikjatölvan frá Nin- tendo sem kom á markað utan Japan. Í Japan nefndist tölvan ein- faldlega Famicom eða Fjöl- skyldutölvan, en hér á Íslandi var hún alltaf kölluð „Nintendó“ meðal ungmenna, sem skiptust á GAMLA GRÆJAN Nintendo-tölvan að blása inn í leiki til að losa þá við ryk og drita á A- og B- takkann til þess að láta karaktera framkvæma einhverjar listir. Tölv- an var langsöluhæsta leikjatölva síns tíma og var byltingarkennd að því leyti að hún gerði þriðju aðilum kleift að hanna leiki fyrir hana. Ninteno Entertainment System hefur margoft verið valin besta leikjatölva sögunnar. 26.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Færa má rök fyrir því að The Onion sé virtasti grínmiðill heims. Laukurinn byrjaði sem háðsfullt háskólatímarit í Wis- consin í Bandaríkjunum og er í dag hálfgert fjölmiðlaveldi á sviði grínefnis. Flaggskipið er þó alltaf tímaritið The Onion og vefsíða þess nýtur gríðarlegra vinsælda enda er þar að finna allt sem grínþyrst fólk þráir, djúpfyndnar fréttir, háþróað myndbandagrín og stórkostlegar innsendar grein- ar frá kostulegu fólki með frum- leg vandamál og skoðanir. Nýlega var tekið upp á því að rukka fyr- ir aðgang að vefsíðunni en á The Onion-appinu er hægt að komast hjá því að þurfa að greiða fjár- hæðir fyrir það að brosa og hlæja hvenær sem þörf er á. Óhætt er að mæla með The Onion enda hafa gæði grínsins þar staðist tímans tönn allt frá árinu 1988. SNIÐUGT SMÁFORRIT Hágæðagrín beint í símann Bílaframleiðandinn Ford kynnti á dögunum til sögunnar nýja tækni fyrir bíla sem gerir þeim kleift að lesa á umferðarskilti og þar með hægja ferðina sjálfkrafa fyrir hönd ökumanns. Tæknin kallast Intelli- gent Speed Limiter, sem gæti verið þýtt sem greindarleg hraðatak- mörkun á íslensku, og var frum- sýnd í Þýskalandi en verður fáanleg á heimsvísu í nýjustu útgáfu Ford S-Max-bílanna frá fyrirtækinu. Tæknin grundvallast á því að myndavél er komið fyrir á framrúð- unni og upplýsingar frá henni eru sendar í tölvubúnað bílsins sem borið getur kennsl á það sem linsa myndavélarinnar fangar. Þegar kerfið ályktar að ökumaður aki yfir hraðatakmörkunum, getur bifreiðin sjálfkrafa stillt hraða sinn án þess að nota til þess bremsur. Í staðinn hefur kerfið áhrif á snúningshraða vélarinnar með því að stilla af bens- ínsmagnið sem flutt er til hennar. Það verður til þess að hraði bílsins minnkar jafnt og þétt þangað til hann nær settum hámarkshraða. Búnaðurinn er virkjaður með takka í stýrinu, en ökumaðurinn getur hins vegar ávallt haft aðgerðir bún- aðarins að engu með því að stíga ákveðið á bensíngjöfina. Markmiðið með þessari nýju tækni á vegum Ford er að koma í veg fyrir að ökumenn virði óviljandi hraðatakmarkanir að vettugi. „Öku- menn eru ekki alltaf meðvitaðir um hraða sinn og átta sig stundum ekki á broti sínu fyrr en eftir á, þegar þeim berst sekt í pósti eða lög- reglubíll segir þeim að nema stað- ar,“ sagði Stefan Kappes, yfirmaður öryggissviðs Ford, við kynninguna. „Nýja greinda kerfið okkar getur minnkað stress ökumanns og að- stoða viðskiptavini okkar við að halda sig innan hraðatakmarkana.“ Talið er að tæknin gæti notið vin- sælda í Evrópu, þar sem sektir fyr- ir hraðaakstur eru bæði hærri og alvarlegri en í Bandaríkjunum. Ökumenn í Bretlandi geta búist við um 100 punda sekt fyrir hrað- akstur, eða því sem nemur um 20 þúsund krónum. Í Finnlandi eru sektir launatengdar og iðulega mjög háar. TÆKNINÝJUNG Ford-bílar horfi á skilti fyrir þig Bílstjórinn getur enn sem komið er haft lokaorðið um hversu hratt bíllinn fer, þrátt fyrir skoðanir bílsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.