Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 40
Tíska *Nýverið var opnuð norræn hönnunarbúð íNew York sem heitir því skemmtilega nafniElska. Þær Jillian Tangen og Rebekah Witzkefrá Long Island stofnuðu verslunina sem erstaðsett í Queens-hverfinu í New York. Íbúðinni eru seldar vörur frá Skandinavíu enþar er að finna fallega húsmuni, föt, fylgihluti
og fleira. Slóðin á vefsíðu verlsunarinnar er
elskanewyork.com.
Elska New York
H
vaðan sækir þú innblástur? Af
netinu. Þegar mér leiðist skoða
ég föt á netinu, set allskonar í
körfuna, loka svo tölvunni og
fer í kalda sturtu. Er að reyna að spara
peninga.
Hvernig myndir þú lýsa fatastíl
þínum? Sporty Spice hittir goth
mom.
Hvað er það síðasta sem þú fest-
ir kaup á? Íþróttatoppur í Útilífi. Nú verð
ég örugglega mjög dugleg að stunda íþróttir.
..En það dýrasta? Ég á kannski svona þrjá
fína kjóla eftir íslenska hönnuði sem kostuðu
mjög mikið. Ég get því miður ekki ljóstrað upp
neinum tölum því ég sagði kærastanum mín-
um að þeir kostuðu mun minna en þeir
gerðu.
Hefur þinn persónulegi stíll þróast mikið
með árunum? Tja. Þegar ég var í Listahá-
skólanum að læra dans var ég í jogg-
inggalla í þrjú ár samfleytt. Það voru
mjúkir tímar. Síðan ég byrjaði að vinna á
auglýsingastofu hef ég svo keypt mér
nokkrar fullorðinsflíkur sem ég get mætt í á
fundi og svoleiðis.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Að þau séu mjúk og ég líti ekki hlægilega út í
þeim.
Hvaða sumartísku ætlar þú að tileinka þér? Það er mér ómögulegt að
ganga með derhúfur þar sem ég er með mjög stórt höfuð og einstaklega
þykkt hár. Ég er því í sífelldri leit að flottri sportí derhúfu í júmbó-stærð
sem gæti passað. Kannski mun draumurinn rætast þetta sumarið.
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd? Pabbi er alltaf flottur.
Hver er eftirlætisárstíð þín varðandi fatastíl og hvers vegna? Ég fíla
vor og haust, þegar það er smá kalt en samt sól svo ég get verið í pels,
en líka með sólgleraugu. Það er
algjört gelluveður.
Áttu þér uppáhaldsfatahönn-
uð? Já, bara allir sem hanna föt
sem ég passa í. Það eru bestu
fötin að mínu mati.
GELLUVEÐUR Á VORIN OG HAUSTIN
Berglind segir að eftir að hún
byrjaði að vinna á auglýs-
ingastofu hafi hún keypt sér
nokkrar fullorðinsflíkur sem hún
get mætt í á fundi og svoleiðis. "Sporty
Spice hittir
goth mom"
Berglind segist vera í sí-
felldri leit að flottri sportí
derhúfu í júmbó-stærð.
Berglind fílar vor og haust, þegar það er
smá kalt en samt sól svo hún geti verið í
pels og líka með sólgleraugu.
Nýjustu kaupin eru
íþróttatoppur úr Útilífi.
BERGLIND PÉTURSDÓTTIR DANSARI STARFAR SEM
TEXTAHÖFUNDUR Á ÍSLENSKU AUGLÝSINGA-
STOFUNNI. BERGLIND ER TÖFFARI SEM KÝS AÐ
KLÆÐA SIG Í MJÚK FÖT OG SEGIST ÞURFA AÐ
FARA Í KALDA STURTU TIL ÞESS AÐ SPARA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Sporty spice í
öllu sínu veldi.
Morgunblaðið/Júlíus