Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 41
26.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
E
ftir þennan þunga og hundleiðinlega vetur gat ég ekki annað
en sagt já þegar vinkona mín bauð mér að vera með í ný-
stofnuðum hjólaklúbbi hennar sem gengur undir nafinu Létt-
vínsleggir. Við erum ekki að tala um neinn afreksklúbb með
háleit markmið heldur hjólaklúbb með einn tilgang og það er að hafa
gaman.
Í þessum hjólaklúbbi fá húsmæður hjartað til að slá hraðar þegar
þeyst er um hjólastíga Reykjavíkurborgar af fullum krafti.
Í þessum hjólaklúbbi er ekki gerð nein krafa um að vera á töff
hjóli eða í einhverjum súper dúper spandex-galla heldur fá allar að
vera bara eins og þær eru. Eða það hélt ég allavega. Það voru því
ákveðin vonbrigði þegar undirrituð mætti í þremur mismunandi dýra-
prentum og fékk aldeilis að heyra að hún væri eins og hjólandi tísku-
slys.
Þegar konur eru svolítið hrifnar af dýraprenti geta munstrin aðeins
skarast eins og gerðist í þessum dásamlega túr um úthverfi Reykja-
víkur. Fyrst ber að nefna úlpu úr hlébarðamunstri sem keypt var í
spænska móðurskipinu Zöru fyrir hrun og kostaði „skid og ingen
ting“ eins og sagt er í Danmörku. Á einhverju krítísku augnabliki var
úlpunni skyndilega pakkað í kassa þegar undirrituð rakst á einhverja
lúðu í alveg eins úlpu í bænum … (sem er náttúrlega ekki mjög vand-
að en ég er með afsökun – var undir þrítugu þegar þetta gerðist).
Þegar úlpan fannst skyndilega í flutningum í fyrra eignaðist hún
hinsvegar framhaldslíf enda er efnið í henni þannig að hún lítur miklu
meira út fyrir að koma frá ítalska tískudúettnum Dolce & Gabbana.
Eina vandamálið er að þegar maður er búinn að binda beltið um sig
miðjan lítur út fyrir að undirrituð sé nýkomin úr brjóstastækkun (og
það hafi ekki verið til púðar í réttri stærð og því hafi verið fyllt á fyr-
ir allan peninginn). Einhverjir myndu ekki kalla þetta vandamál en
konur sem hafa alla tíð verið að reyna að reyra niður á sér barminn
hugsa öðruvísi.
Við hlébarðaúlpuna var ég óvart í Nike-leikfimisbuxum með slöngu-
prenti sem ég keypti nýlega og í Nike Free-skóm með gráu hlébarða-
munstri sem komu á sínum tíma í takmörkuðu upplagi. Þessir skór
voru sérpantaðir frá Bandaríkjunum af vinkonu minni en þegar þeir
komu loksins í pósti reyndust þeir aðeins of stórir. Það var því ekkert
annað í stöðunni en að senda þá með hraðpósti til hlébarðaelskandi
vinkonu sinnar á Íslandi.
Þegar ég gekk út í vorið í þessari múnderingu með bleikan hjálm
hvarflaði ekki að mér að þessi fatasamsetning væri ekki málið og það
hvarflaði heldur ekki að mér að þessar húsmæður þarna í þessum
hjólaklúbbi færu að rífa kjaft. Sem hálfgerður aldursforseti í klúbbn-
um er ég nefnilega komin á þann að stað að vera alveg „drullufokk-
sama“. Ég er til dæmis oftast í sömu íþróttafötunum þegar ég mæti á
æfingu og hingað til hefur enginn kvartað yfir því (ekki einu sinni
þessi síðhærði og skeggjaði sem ég sef hjá). Með aldrinum hefur Lína
langsokkur verið að vinna meira og meira á sem gerir það að verkum
að ég hef gaman af því að blanda saman ólíkum munstrum og ólíkum
efnum. Að vera of mikið í stíl getur verið allt of „boring“ eða svolítið
eins og íslenski veturinn.
Það fylgir því mikið frelsi að geta bara verið eins og Lína lang-
sokkur þegar mann langar til þess. Það tók alveg 38 ár að komast á
þennan stað – legg ekki meira á ykkur! martamaria@mbl.is
Lína byrjar í
hjólaklúbbi
Tobba Marinósdóttir, Kristín Ýr
Gunnarsdóttir, Elísabet Jóns-
dóttir og Marta María Jónasdóttir
fyrir utan Morgunblaðshöllina.
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía Walthers
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
Skeifunni 17
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
„...virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta. Allt sem þau
sögðu stóðst. Auðvelt að mæla með Remax Alpha!“
Áslaug og Benni
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
opið: mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Ný sending frá Mama B!