Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Síða 56
K
óramótið hófst á föstudagskvöldi
með móttöku hjá Sendiráði Ís-
lands þar sem Þórður Ægir
Óskarsson sendiherra ávarpaði
söngfólkið og kvað verkefni
sem þessi, sem og almennt starf íslenskra
kóra á erlendri grundu, skipta miklu máli við
kynningu á íslenskri menningu og söngva-
hefð. Enda kom á daginn að gestir á tónleik-
unum voru af ýmsum þjóðernum og á öllum
aldri. Til gamans má geta þess að daginn eft-
ir tónleikana hafði Dame
Filomena Shipman, fyrr-
verandi friðardómari, sam-
band við sendiráðið til að
láta í ljósi hrifningu sína
og koma á framfæri þökk-
um til aðstandenda og bað
um að vera endilega látin
vita þegar svipaður við-
burður yrði haldinn næst.
Mótsdagurinn var lang-
ur og strangur fyrir kór-
félagana og enn strangari
fyrir skipuleggjendurna í
Lundúnakórnum, með
Helga Rafn Ingvarsson
kórstjóra og Ingu Lísu
Middleton kórformann, í
eldlínunni. Allt gekk þó
eins og vel smurð vél og
þegar gestir höfðu haldið
til síns heima á mánudag-
inn gátu þau Inga og
Helgi andað léttar og gefið sér tíma til að
spjalla við blaðamann.
Tveggja ára undirbúningur
„Þetta byrjaði með því að kórar í Noregi,
Danmörku og Svíþjóð tóku sig til og ákváðu
að hittast og syngja saman. Ég er ekki alveg
viss um hvenær það var en ég veit að Lund-
únakórinn var stofnaður árið 1984 af sr. Jóni
Aðalsteini Baldvinssyni, þáverandi sendiráðs-
presti, og var fljótlega boðin þátttaka í
mótinu,“ segir Inga Lísa spurð um sögu
kóramótsins. „Það hefur síðan vaxið og orðið
fjölmennara í hvert skipti.“
Þegar kóramótið 2013 var haldið, í Lundi í
Svíþjóð, var Helgi Rafn nýtekinn við Ís-
lenska kórnum í Lundúnum. „Ég var stoltur
af gengi okkar þar en það hefur mikið vatn
runnið til sjávar síðan og kórinn orðinn mun
þéttari núna.“ En í þetta sinn hafði Helgi í
mun fleiri horn að líta þar sem Lundúnakór-
inn bar hitann og þungann af kóramótinu.
„Undirbúningsvinnan tók tvö ár, til dæmis
var kirkjan bókuð strax eftir síðasta mót.
Sjálf framkvæmdin var þó svo gríðarleg að
við hefðum ekki getað þetta án okkar traustu
undirnefnda sem allar voru skipaðar fólki úr
kórnum hér í London. Anna Baldursdóttir og
Eva Gunnarsdóttir sáu um að setja upp æf-
ingaplanið fyrir daginn, en það voru stans-
lausar æfingar og fundir frá hálfníu á laug-
ardagsmorgun fram að tónleikunum klukkan
fimm; Guðrún Jensen hjálpaði okkur við að
finna styrktaraðila; Vera Júlíusdóttir sá um
að skipuleggja glæsilegan þriggja rétta
kvöldverð eftir tónleikana og Andrea Ösp
Kristinsdóttir hélt utan um skemmtun og
dansiballið á kvöldskemmtuninni. Það voru
margir fleiri sem lögðu hönd á plóg og við
erum þeim endalaust þakklát. Inga Lísa
hafði yfirumsjón og var yfir nefndunum en
ÍSLENSKUR SÖNGUR BREIÐIST ÚT UM EVRÓPU
„Með því skemmtilegasta
sem maður upplifir“
ANNAÐ HVERT ÁR ER HALDIÐ KÓRAMÓT ÍSLENSKRA KÓRA Í NORÐUR-EVRÓPU OG Í ÁR VAR
KOMIÐ AÐ LUNDÚNAKÓRNUM AÐ SINNA GESTGJAFAHLUTVERKINU OG SKIPULEGGJA HEIMSÓKN
TÍU ANNARRA KÓRA TIL HÖFUÐBORGAR BRETLANDS.
Texti: Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
Myndir: Úr einkasöfnum
Helgi Rafn
Ingvarsson
Inga Lísa
Middleton
Stórkórinn fékk hátíðarkveðju frá biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur, og verkefnisstjóra kirkju-
tónlistar, Margréti Bóasdóttur, þar sem þær þökkuðu öllum kórunum fyrir gott starf á erlendri grundu.
„Bréfið endaði á orðunum: „Með bæn og blessun Guðs í líf og starfi“ og það var ekki amaleg byrjun á
laugardeginum að lesa þá kveðju fyrir hópinn. Við þökkum þeim fyrir þetta fallega bréf,“ sagði Helgi Rafn.
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.4. 2015
Bók Halldórs Laxnes um heimasveit sína í
Mosfellsdal, Innansveitarkrónika, er nú að-
gengileg sem rafbók á vefnum innansveitar-
kronika.is og þar má einnig hlýða á upplestur
Halldórs. Unnið hefur verið að þessu til-
raunaverkefni frá því í ársbyrjun 2014 en um
samstarfsverkefni nokkurra stofnanna og að-
ila er að ræða; Gljúfrasteins, Landsbókasafns
Íslands - Háskólabókasafns, Ríkisútvarpsins,
Forlagsins, verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Háskóla Íslands og fjölskyldu Halldórs.
Þessi vefur markar tímamót því í fyrsta
sinn er verki eftir Halldórs miðlað með þess-
um hætti. Notendum gefst kostur á að lesa
bókina í heild sinni sem rafbók, hlusta á upp-
lestur skáldsins og afla sér fróðleiks um
sögusviðið og sögupersónur.
VEFUR UM KRÓNIKUNA
HALLDÓR LES
Bók Halldórs Laxness, Innansveitarkrónika, er
nú aðgengileg sem raf- og hljóðbók.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hluti eins verksins á sýningunni í Listasafninu á
Akureyri en þau eru unnin í hina ýmsu miðla.
Útskriftarsýning nemenda listnámsbrautar
VMA, „Fimmtán“, verður opnuð í dag, laug-
ardag klukkan 15, í Listasafninu á Akureyri,
Ketilhúsi. Sýning á lokaverkefnum nemenda
hefur lengi verið fastur liður í starfsemi list-
náms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskól-
ans á Akureyri. Nemendur fá eina önn til að
vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetn-
ingu sýningar í samvinnu við leiðsagnarkenn-
ara og samnemendur þar sem áhersla er
lögð á sjálfstæð vinnubrögð.
Á útskriftarsýningunni má sjá fjölbreytt
verk en þetta er í fyrsta sinn sem hún er
haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.
LOKASÝNING NEMA VMA
„FIMMTÁN“
Kvartett gítarleikarans
og bæjarlistamanns
Hafnarfjarðar á síðasta
ári, Andrésar Þórs, kem-
ur fram á tónleikum í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði
í dag, laugardag, og hefj-
ast þeir klukkan 17. kl.
17:00. Tónleikarnir eru
hluti af menningarhátíð-
inni Björtum Dögum í Hafnarfirði.
Kvartettinn mun leika vel valin lög úr
smiðju Andrésar, bæði nýtt og áður óút-
gefið efni sem og lög úr nótnabók Andr-
ésar en hún kom út í nóvember í fyrra, í
tilefni af tíu ára útgáfuafmæli listamanns-
ins.
Þennan spræka djasskvartett skipa auk
Andrésar þeir Agnar Már Magnússon á pí-
anó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og
trommuleikarinn Scott McLemore.
KVARTETT ANDRÉSAR ÞÓRS
VEL VALIN LÖG
Andrés Þór
Menning
Á tónleikunum í St. Mary
Abbots-kirkju fluttu sjö
kóranna brot af fjöl-
breyttu lagaúrvali sínu og
fengu tónleikagestir því að
hlýða á sálma og ættjarð-
arljóð í bland við barna-
gælur og dægurtónlist, allt
frá Jónasi og Hallgrími til
Megasar og Magnúsar Eiríkssonar. Í lokin
sameinuðust svo allir kórarnir í Stórkór ís-
lenskra kóra í Norður-Evrópu og skiptust
kórstjórarnir á að stýra rúmlega 150
manna kórnum. Hljómburðurinn í kirkj-
unni er með eindæmum góður og lauk dag-
skránni með þjóðsöngnum sem hljómaði
stórfenglega í fallegri kirkjunni og lét vafalít-
ið engan tónleikagesta ósnortinn.
Eftir tvö ár verður kóramótið haldið í
Danmörku, þar sem Íslenski kvennakórinn
í Kaupmannahöfn, undir stjórn Sigríðar Ey-
þórsdóttur, og Staka, kór undir stjórn Stef-
áns Arasonar, munu sinna gestgjafa-
hlutverkinu í sameiningu. Stefán hefur
stjórnað Stöku frá árinu 2006 en kórinn
fagnaði tíu ára afmæli sínu í fyrra og mætir
reglulega á kóramót Íslendingakóranna í
Norður-Evrópu.
„Þetta er samt ekki Íslendingakór, það
eru nokkrir Danir í honum og einnig hafa
verið þar Færeyingar og allra þjóða kvik-
indi. Æfingarnar eru allar á dönsku og þetta
átti bara að vera góður kammerkór,“ segir
Stefán, en helsta markmið kórsins er að
kynna íslenska tónlist í Danmörku. „Við er-
um með þrjá Dani með okkur hérna á
mótinu og þeir skilja ekki neitt sko,“ bætir
hann við og hlær. Hann lætur þá þó hiklaust
syngja á íslensku og segir Danina mjög
ánægða með að vera ekki í venjulegum,
dönskum kór.
Að sögn Stefáns heldur Staka býsna
marga tónleika í Danmörku, fyrir utan
þessa hefðbundnu jóla-, páska- og vor-
tónleika en segir kúltúrinn í Danmörku
öðruvísi að því leyti að kirkjurnar borgi
kórum fyrir að koma og halda tónleika og
Staka fái nokkuð margar beiðnir um það.
Kórinn sé því vel undirbúinn fyrir svona
kóramót og hafi notað tækifærið og haldið
sína eigin tónleika í London á föstudag. En
stærsta áskorunin sé að stjórna Stórkórn-
um svokallaða. „Það er rosalega stór mun-
ur á að stjórna Stöku, sem er lítill hópur
sem þekkir mig vel, og svo nokkrum kórum
sem eru hver með sinn stjórnanda. Það er
til dæmis hver stjórnandi með sína aðferð
við að byrja lag og getur verið svolítil kúnst
fyrir söngvarana að þekkja það. Það er þó
nokkuð alheimslegt merki um að ef stjórn-
andinn dregur greinilega inn andann, þá er
hann að fara að bresta í söng.“
Kynna íslenska tónlist
í Danmörku
Stefán Arason