Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Síða 57
Kóramótið þótti takast vel og þátttakendur eru farnir að hlakka til næsta móts í Kaupmannahöfn
að tveimur árum liðnum. Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn klæddist grænu á tónleikunum.
ég, sem listrænn stjórnandi, bar ábyrgð á því
að tónleikarnir gengju vel.“
Ólýsanleg upplifun
En þótt dagurinn hafi byrjað snemma lét
söngfólkið það ekki aftra sér við að fagna vel
heppnuðum tónleikum fram eftir kvöldi. „Þar
var náttúrlega haldið áfram að syngja, flestir
kórarnir komu með skemmtiatriði, kórstjórar
og kórformenn voru látnir keppa í nokkurs-
konar „Actionary“ og úrslitin í nafn-
spjaldakeppninni kynnt, en Oslóarkórinn
vann farandbikarinn í annað sinn með snilld-
arútfærslu á Ópinu eftir Munch. Og síðan
var dansað fram á nótt. Þetta var sirka 20
klukkustunda prógramm allt í allt,“ segir
Inga Lísa og hlær.
Og kórstjórinn var að vonum kátur að
helginni liðinni. „Tilfinningin að sjá þetta allt
smella á laugardaginn gerði þessa margra
mánaða vinnu, alla þessa fundi og öll e-
mailin, þess virði og meira en það. Að sjá öll
brosin, heyra allan sönginn og fá að vinna
með og stjórna Stórkór íslenskra kóra í
Norður-Evrópu var ólýsanleg upplifun. Þar
að auki er svona vinna gífurlega mikils virði
fyrir einhvern eins og mig sem er að vinna
að því að byggja upp feril sem tónlist-
armaður. Reynslan af því að framleiða verk-
efni á þessum skala skilar sér í þekkingu
sem mun nýtast í minni vinnu í framtíðinni.“
Kóramótið í London var það fimmta sem
Inga Lísa hefur tekið þátt í. „Ég verð að
segja að svona kóramót eru með því
skemmtilegasta sem maður upplifir. Maður
er kannski ekki alveg jafnafslappaður þegar
maður er ekki bara þátttakandi en að sjá
þetta allt smella saman var alveg frábær til-
finning. Það gerast einhverjir töfrar þegar
svona margir Íslendingar sem búa erlendis
koma og syngja saman. Sambland af þjóð-
ernisstolti, heimþrá og gleði yfir því að vera
saman. Að syngja þjóðsönginn í svona
stórum hóp er líka alveg einstakt. Ég held að
ég sé ennþá með gæsahúð!“
Árið 2017 verður kóramótið haldið í Kaup-
mannahöfn, í boði tveggja kóra sem þar eru
starfræktir. „Það eru kórar með mikla
reynslu og frábæra kórstjóra svo ég efast
ekki um að það verði glæsilegt hjá þeim,“
segir Helgi Rafn og er greinilega strax far-
inn að hlakka til næsta móts.
Eftir boð í sendiráðinu á föstudagskvöldi tóku við stífar æfingar allan laugardaginn, svo tónleikar og
loks kvöldverður og kvöldskemmtun sem stóð fram eftir nóttu. Helgi Rafn stýrir hér raddæfingu.
Kórarnir og áheyrendur þeirra urðu ekki sviknir af hĺjómburðinum og hátíðleikanum í St. Mary Abbots kirkju.
* Það gerast einhverjirtöfrar þegar svonamargir Íslendingar sem
búa erlendis koma og
syngja saman.
Undirbúningsvinna fyrir kóramótið tók tvö ár. Helgi Rafn stýrir hér Lundúnakórnum á tónleikunum.
26.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Í Ásmundarsafni lýkur um
helgina áhugaverðri sýningu,
Vatnsberinn – Fjall+kona
sem Harpa Björnsdóttir
setti upp með verkum sjö listamanna
auk verka Ásmundar Sveinssonar
sjálfs. Rýnir Morgunblaðsis gaf sýn-
ingunni fjórar stjörnur.
2
Ámundi Sigurðsson,
grafískur hönnuður, mun á
sunnudag klukkan 14 ganga
um yfirlitssýninguna með
verkum sínum í Hönnunarsafninu í
Garðabæ, ásamt Hörpu Þórsdóttur
forstöðumanni og rifja upp sögur
tengdar einstökum verkefnum sem
hann hefur unnið að á 30 ára ferli.
4
Ástæða er til að minna á at-
hyglisvert vefuppboð á
verkum eftir Þórarin B.
Þorlákssson, einn frumherja
íslenskrar myndlistar, á vefnum Upp-
bod.is. Það stendur til 29. apríl og er
hægt að skoða verkin í Gallerí Fold.
5
Fjölbreytilegri Jazzhátíð
Garðabæjar lýkur um
helgina. Á laugardeginum
verða þrennir tónleikar í
bænum; fyrir eldri borgara í Jónshúsi
kl. 14, ungt fólk leikur í Haukshúsi kl.
17 og í Kirkjuhvoli kemur kvartett
fram um kvöldið. Hátíðinni lýkur á
sunnudag með stórtónleikum Stór-
sveitar Tónlistarskóla Garðabæjar.
3
Á sunnudag kl. 15 leiða sex
meistaranemar í myndlist
gesti um MA útskriftasýn-
ingu Listaháskóla Íslands í
Gerðarsafni. Áður, eða kl. 14, verður
endurfluttur gjörningurinn „Berglind“
eftir Soffíu Guðrúnu Kr. Jóhanns-
dóttur. Aðgangur er ókeypis.
MÆLT MEÐ
1