Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 47
framleiðslan notuð í hina nýju vatnslögn staðar-
ins.
Júlí 22.: Látinn Ólafur Geirsson, aðstoðaryf-
irlæknir að Vífilsstöðum. Oddur Ólafsson, yfir-
læknir, segir svo í minningargrein um Ólaf:
„BerklasjúkJingum helgaði hann líf sitt, berkla-
sjúklingar fundu hjá honum það traust, það ör-
yggi og þá vináttu, er einungis maður með stað-
góða þekkingu, atorku og velvilja getur í té látið“.
- o -
Hin mikla vöruskemma að baki vinnuskálanna
í Reykjalundi fullgerð. Stærð 1500 ferm.
- o —
Júlí: Arni Einarsson, framkv.stjóri í Reykja-
lundi og Haukur Þórðarson deildarlæknir, s. st.
sátu ráðstefnu í Krokeide um öryrkjamál. Allir
fulltrúarnir frá öryrkjafélögum innan D. N. T. C.
- o -
Gömlu hermannaskálarnir í Reykjalundi rifn-
ir og sléttað yfir tóftir. Skálar þessir voru í upp-
hafi staðarins nýttir sem verkstæði, eldhús og
borðstofa, en rýmdir jafnharðan og nýbyggingar
komu í gagnið. Síðast notaðir sem geymslur.
- o -
A Berklavarnadaginn voru seld 26.275 merki
og 9.754 eintök af tímaritinu.
- o -
Fullgerð og tekin í notkun 3 vistmannahús í
Reykjalundi. Húsin eru of sömu gerð og þau 11,
sem fyrir voru í smáhýsahverfinu. Þessi hús gefa
staðnum 12 ný vistmannarúm í viðbót.
- o -
Vistmenn í Reykjalundi voru í ársbyrjun 95,
en 97 í árslok. A árinu komu 183 vistmenn en
181 fór. í Múlalundi störfuðu um 60 öryrkjar.
1966.
Engin breyting gerð á tilhögun Vöruhapp-
drættisins utan sú, að 500 þús. kr. vinningurinn
í 7. fl. var felldur niður og fjárhæðinni skipt
í marga lægri vinninga og 30 eitt þúsund kr.
vinningum bætt við, þannig að heildartala vinn-
inga verður 16.280, en heildarfjárhæð vinninga
kr. 28.083.000,00. Enn á ný gefinn út mynd-
skreyttur auglýsingabæklingur, vandaður mjög
og honum dreift í 30 þús. eintökum.
Apríl 1.: Fjárhagsnefnd S. í. B. S. leggur
fram fjárhagsáætlun og hún samþykkt. Niður-
stöðutölur á sjóðsyfirliti kr. 9.335.000,00, af því
fé til ráðstöfunar kr. 8.167.000,00. Lagt til að
því verði þannig varið: Til Reykjalundar kr.
5.500.000,00. Til Múlalundar kr. 2.500.000,00.
Til Lánasjóðs kr. 100.000,00. Til bókasafna
Reykjalundar, Vífilsstaða og Kristness, alls kr.
67.000,00.
— o —
15. þing S. í. B. S. var háð í Reykjalundi
dagana 10.-12. júní. 1. forseti þingsins kjörinn
Maríus Helgason, umdæmisstj. á Akureyri. 76
fulltrúar frá 11 sambandsdeildum sátu þingið.
Gestir við setningarathöfnina voru: Forseti Is-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, Jóhann Hafstein,
heilbrigðismálaráðherra, Gísli Jónsson, fyrrv. al-
þm., heiðursfélagi S. I. B. S., Hjálmar Vilhjálms-
son, ráðuneytisstj. og Jónas Jónsson, fyrrv. ráð-
herra. - Heilbrigðismálaráðherra ávarpaði þing-
heim. Þá flutti Gísli Jónsson einnig ávarp og til-
kynnti jafnframt að hann gæfi sambandinu öll
ritlaun óskoruð af nýútkominni bók sinni „Frá
foreldrum mínum“. Hófst þá flutningur skýrslna
um störf sambandsins og fyrirtækja þess og var
það langt mál. Skýrslurnar báru þess vott að eng-
in kyrrstaða var í þróunarferli S. I. B. S., heldur
hið gagnstæða, enda tekjur sambandsins með
mesta móti. Framkvæmdastjórn Reykjalundar
með ógætum og afkoma góð, en miður í Múla-
lundi. Oddur Ólafsson, yfirlæknir, flutti erindi um
orkulækningar, en hann var þá nýkominn heim
frá eins árs námi í þeirri grein í Danmörku og
Englandi.
Aðalmál þingsins var staðfesting á nýrri reglu-
gerð fyrir Vinnuheimilið í Reykjalundi.
REYKJALUNDUR
45