Reykjalundur - 01.06.1971, Síða 15

Reykjalundur - 01.06.1971, Síða 15
Meðallífaldur hefur liækkað hægt og hægt síðustu áratugi. Því er ekki að neita, að með honum kemur hækkandi tíðnir ýnris konar hrörnunarsjúkdóma. Þeirri spurningu getur enginn svarað, hvort nokkurn tíma tekst að stemnra stigu við ellihrörnun vefja líkamans og þá sérlega hrörnun hjarta- og blóðrásarkerfisins. Hækkandi meðalaldur, útrýming bráðra sótta og betra eldi fólksins skapar þannig ný vandamál frá sjónarmiði heilsufars. Beinir e. t. v. vendamálinu fremur inn á nýjar brautir. Með hliðsjón af því getur lrent, að raunhæf lækkun í þessum hópi verði ekki svo nrikil, þegar til kastanna kemur. En hugsanlega finnast síðar meir fýrirbyggjandi aðgerðir, sem leggja lóð á vogarskálina í þeim efnum. Aukning á tæknilegum atriðum í endur- hæfingu og aukin þekking á þeim sviðum mun tvímælalaust stuðla að því í framtíð- inni, að endurhæfing þeirra, sem örorku hafa eftir sjúkdóma, verði fullkomnari en hún er nú. Þessi hópur þarf engu að síður félagslega endurhæfingu en hina læknisfræði- legu. Og gagnvart þessum hópi skiptir að sjálfsögðu miklu, hversu hagar til um and- legt atgervi einstaklinga, sem mynda hann. Til þessa hóps teljast tauga- og geðsjúkl- ingar. Öllum er kunnugt, að á meðal þeirra gefast nú á tímum ýmis tækifæri í lækning- arátt. Sú breyting til hins betra skapar aftur á móti aukna þörf þessara sjúklinga á endurhæfingu, einkum á félagslegu og atvinnulegu sviði. Jafnframt er talið auð- sýnt, að tíðni ýmissa geðkvilla, sérstaklega þeirra, sem rekja má til umhverfisins, spennunnar og samkeppninnar í þjóðfélag- inu, hafi aukizt og mun jafnvel aukast ennþá meir í framtíðinni. Það gefur því auga leið, að hlutur geðsjúkdóma í endur- hæfingarstarfsemi í framtíðinni hlýtur að verða töluverður og þörf geðsjúklinga til þeirrar Jrjónustu mjög brýn. Örorka af völdum slysa. Það er kunnugt, að tíðni slysa hækkar hægt og bítandi með hverjum áratugnum, og er Jretta fylgifiskur aukinnar umferðar, vaxandi iðnvæðingar og hraðara lífs. Þró- unin hefur orðið á þennan veg hvarvetna í heiminum. Á móti kemur aukinn áróður gegn slysum, auknar slysavarnir, aukin björgunarstarfsemi. Enginn getur að sjálf- sögðu um það sagt, hvenær tíðni alvailegra slysa nær hámarki, en trúlega hlýtur að koma að slíku hámarki. Hámarksgildi örygg- is í umferð, á vinnustöðum og annars staðar, hlýtur einnig einhvern tíma að nást. Þann- ig má ætla, að jafnvægi náist á milli slysa og slysavarna, og jafnframt ber að vona, að örygg'i gegn slysum verði að lokum Jryngra á meturn og lækki tíðni alvarlegra slysa. Þótt tíðni slysa vaxi og Jrau gerist alvar- legri, vex jafnframt tækni í slysalækningum og slysameðferð. Þannig minnka eftirköst slysa, en einnig lifa fleiri og fleiri hin alvarlegustu slys. Hjá því verður ekki kom- izt, að því fylgi oft á tíðum meiri örorka en hægt er að finna dæmi til á öðrum sviðum. í heild má við Jrví búast, að endurhæf- ingarþjónustan í landinu muni þurfa að sinna örorkutjónum vegna slysa í svipuð- um mæli og nú er. Æskilegt væri, að yfirliti af Jressu tagi um horfur á þörf endurhæfingar í fram- tíðinni fylgdi nokkur áætlun eða tillögur um, hvernig mæta skuli þörfinni. Ekki verður það þó gert hér, en Jress getið, að lög um endurhæfingu mæla svo fyrir, að nýlega stofnsett endurhæfingarráð láti fara fram könnun á þörf íbúa landsins á endur- hæfingu og semji jafnframt áætlun um, hvernig ber að leysa úr þeirri þörf. It EYKJALUNDUR 15

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.