Reykjalundur - 01.06.1971, Page 19

Reykjalundur - 01.06.1971, Page 19
hæfingarstofnunum og vinnustöðvum fyrir öryrkja. Nauðsynlegt er að samræma starf- semi hinna ýmsu stofnana, svo að endurhæf- ingarstarfið verði skipulega unnið í land- inu. Lagt er til, að ráðið útvegi þeim, sem þarfnast endnrhæfingar og þjálfunar, rúm á stofnun við sitt hæfi og síðan atvinnu að þjálfun lokinni. í því sambandi kemur til greina náið samstarf við hina almennu vinnumiðlun í landinu, sbr. 15. gr. Lagt er til, að ráðið stundi upplýsingastarfsemi og hvetji þá, sem þurfa endurhæfingu, til þess að leita þjálfunar. Kemur þá til greina, að ráðið hlutist til um útgáfu upplýsingarita um endurhæfingu og gildi hennar. Loks skal ráðið vera stjórnarvöldum til ráðgjaf- ar og aðstoðar um endurhæfingarmálefni. 4. gr. Áætlun sú, sem um ræðir í 3. gr. a, skal gerð fyrir árin 1972—1982. Skal með áætlun þessari stefnt að sem beztri starfrækslu end- urhæfingarstöðva og vinnustöðva í landinu. I sambandi við áætlunargerðina skal endur- hæfingarráð hlutast til um, að verksvið hinna ýmsu stofnana verði samræmt og skipulagt, svo að rekstur þeirra verði eins hagkvæmur og kostur er. Leita skal staðfestingar ráðherra á áætlun jressari. Endurhæfingarráð skal vinna að því, að hinni staðfestu áætlun verði fylgt. í Jrví skyni skal ráðið beita sér fyrir því, að ein- stök öryrkjafélög komi á fót vinnustöðvum fyrir öryrkja á jDeirn stöðum og með því verksviði, sem brýnust þörf er fyrir. Skýring við 4. gr. Grein þessi hefur að geyma nánari ákvæði um áætlun þá, sem um ræðir í 3. gr. a. Rétt þótti að ætla rúman tíma eða 2 ár, til þess að gera umrædda áætlun, og hún skal gerð um 10 ára þróun. Endurhæfing kemst ekki í fullkomið horf í einni svipan, J^ykir því nauðsynlegt að ætla 10 ár til Jress að koma upp þeim stöðv- urn, sem bezt gegna þörfinni um landið allt. Endurhæfingaráætlun þarf að endurskoða og endurbæta í samræmi við kröfu tímans, því þótti ekki rétt að gera ráð fyrir áætlun um lengri tíma en 10 ár. 5. gr. Ráðherra getur, að fengnum tillögum endurhæfingarráðs, veitt öryrkjafélögum, sveitarfélögum og öðrum aðilum leyfi til þess að koma á fót endurhæfingarstöð og vinnustöð fyrir öryrkja. Allar slíkar stofnanir skulu vera svo úr garði gerðar, að Jiær geti veitt þá þjónustu, sem eftir eðli þeirra og stærð er ætlazt til að þær veiti, Jiiar á meðal fræðslustarfsemi, sem nauðsynleg er að dómi endurhæfingar- ráðs. Slík fræðsla skal vei'a kostuð af ríkis- sjóði, enda sé tilhögun hennar samþykkt af menntamálaráðuneytinu. Allar endurhæfingarstöðvar og vinnu- stöðvar fyrir öryrkja eru háðar eltirliti end- urhæfingarráð. Skylt er að veita trúnaðar- mönnum ráðsins aðgang að stöðvunum, tækjum og öðrum búnaði og láta í té upp- lýsingar um allt, sem varðar rekstur og af- komu Jieirra. Ber ráðinu að leiðbeina stoln- unum Jressum um sérhvað það, sem betur má fara. Samkvæmt tillögum endurhæfingarráðs getur ráðherra svipt stofnanir þessar leyfi til starfa, ef þær bæta ekki eftir kröfu ráðs- ins úr ágöllum innan hæfilegs tíma. Skýring við 5. gr. Svo sem áður er sagt, er gert ráð fyrir Jjví, að aðrir aðilar en ríkisvaldið reki endur- hæfingarstofnanirnar. Lagt er til, að stofn- un og starfræksla slíkra stöðva sé háð leyfi ráðherra. í 3. mgr, er lagt til, að endurhæf- REYKJALUNDUR 19

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.