Reykjalundur - 01.06.1971, Page 24
Oddur Ólafsson:
Sitthvað um
endurhæfingarráð
og baráttumál öryrhja
Endurhæfingarráð var skipað síðastliðið
haust. Ráðið er þannig skipað:
Oddur Ólafsson (frá félagsmálar.) form.
Haukur Þórðarson (frá læknafél.) varaf.
Ólöf Ríkharðsd. (frá Öryrkjás&mb.) ritari
Heiðrún Steingrímsd. (frá Alþýðusamb.)
Sveinn Ragnarsson (frá Samb. ísl. sveitarf.)
Svavar Pálsson (frá fél. ísl. vinnuveit.)
Þóra Einarsdóttir (frá menntamálar.)
Endurhæfingarráð er til húsa í félags-
málaráðuneytinu og framkvæmdastjóri þess
er Jón Ólafsson, er lengi hefir verið fulltrúi
í vinnumáladeild félagsmálaráðuneytisins.
Ráðið hefir haldið nokkra fundi. Það
telur fyrstu verkefni sín að kanna aðstöðu
öryrkja í landinu, hve margir kynnu að
þurfa aðstoðar á þeinr sviðum, er lögin
taka til, og hvar þeir séu. Könnun á hög-
um öryrkja er nú í gangi. Að henni lok-
inni mun ráðið leggja áherzlu á að ganga
frá áætlnn um verkefni og framkvæmdir
næstu ára. Þegar hefir verið iiafin undir-
búningur um að umbótum á ýmsurn svið-
um, þar á meðal 1) aðstöðu til liæfni og
starfsprófana 2) menntunaraðstöðu ör-
yrkja 3) aðstöðu til vinnuþjálfunar og
verndaðrar vinnu 4) breytinga á fyrir-
komulagi atvinnuútvegunar fyrir öryrkja.
Eitt af því, er mun há atvinnuendurhæf-
ingu næstu ára, er skortur á lærðu starfs-
fólki. Það mun taka alllangan tíma að bæta
úr þeim skorti, en vonandi smábatnar þó
Oddur Ólafsson
ástandið. Endurhæfingarráð gerir sér ljóst,
að framundan eru vandasöm og viðamikil
verkefni. Uttekt á þeirri starfsemi, sem nú
fer fram í landinu, og lialdgóð þekking á
þörfinni, eru undirstaða þess, að árangur
verði af störfum ráðsins.
Ljóst er, að aðstaða til vinnuþjálfunar
og verndaðrar vinnu þarf að stórbatna.
Þess vegna hefir endurhæfingarráð nú skrif-
að öryrkjabandalaginu og lagt til, að við-
ræður verði hafnar um framtíðarfyrirkomu-
lag á rekstri öryrkjamiðstöðva í landinu.
Til glöggvunar og fróðleiks læt ég fylgja
hér með ályktun 99 frá Alþjóðavinnumála-
stofnuninni. Sú ályktun er að vísu gömul,
en hún sýnir vel áhuga alþjóðastofnunar
á vinnumálum öryrkja. Síðan ályktun þessi
var gerð, hefir mjög verið til hennar vitnað.
Hún hefir verið öflugur stuðningur í bar-
áttu öryrkja fyrir jafurétti á vinnumark-
aðinum, og á jafnvel við í dag eins og
árið, sem hún var samþykkt.
24
REYKJALUNDUR