Reykjalundur - 01.06.1971, Side 25

Reykjalundur - 01.06.1971, Side 25
Tillaga Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar nr. 99 um atvinnuþjálfun fatlaðra manna til viðreisnar þeim (1955) I. Skilgreiningar. 1. í tillögu þessari tákna: a. orðin „atvinnuþjálfun til viðreisnar“ þann hluta stöðugrar og samræmdrar viðreisnartilraunar, sem felur í sér ráð- stöfun til þeirrar atvinnuþjónustu, t. d. leiðbeiningar um atvinnuval, þjálfun til sérstakrar atvinnu og útvegun sérstakr- ar atvinnu, sem miðar að því, að fatl- aðir menn geti fengið og haldið í þá atvinnu, sem þeim hentar; og b. orðin „fatlaður maður“ þann mann, sem hefur minni horfur á að geta aflað sér hentugrar atvinnu sökum þess að hann er líkamlega eða andlega fatlaður. II. Svið atvinnuþjálfunar til viðreisnar. 2. Aðstoð um atvinnuþjálfun til við- reisnar skyldi standa öllum fötluðum mönn- nm opin, hvers eðlis sem fötlun þeirra er og hvernig sem hún er til komin og á hvaða aldri sem þeir eru, svo framarlega sem unnt er að búa þá undir að taka að sér hentugt starf og halda því og þeir hafa þolanlegá horfur á, að Jrað megi takast. III. Reglur og aðferðir við leiðbeiningar um stöðuval, atvinnuþjálfun og útvegun atvinnu handa fötluðum mönnum. 3. Allar nauðsynlegar og hagkvæmar ráðstafanir skyldu gerðar til Jress að koma á og efla leiðbeiningarþjónustu um atvinnu- val handa fötluðum mönnum, sem þurfa á aðstoð að halda við að velja sér atvinnu eða breyta til um hana. 4. Aðgerðirnar við leiðbeiningar um atvinnuval skyldu taka til þess, er að neðan greinir, að svo miklu leyti sem það samrým- ist kringumstæðum í landinu og á við í hverju einstöku tilfelli: a. að hafa tal af þeim sýslunarmanni, sem leiðbeinir um stöðuval; b. að kynna sér það, sem upplýst verður um atvinnusögu mannsins; c. að kynna sér skólaferil hans og annað það, er upplýst verður um menntun hans, munnlega og verklega; d. læknisskoðunar með atvinnuval fyrir augum; e. viðeigandi gáfna- og hæfileikaprófa og annarrar sálfræðilegrar prófunar, þar sem það hentar; f. að afla upplýsinga um kringumstæður hans sjálfs og skylduliðs hans g. að ganga úr skugga um hæfileika hans og hæfileikaþroska með því að prófa hann í starfi og með öðrum slíkum ráðum; h. tæknilegra prófa, hvort heldur munn- legra eða með öðrum hætti, hvenær sem slíkt virðist nauðsynlegt; i. sundurliðunar á líkamlegum hæfileik- um með hliðsjón af því, hvað hverri at- vinnugrein hentar, og þeim möguleika að Jrroska hæfileikana; j. að afla upplýsinga um atvinnu og tæki- færi til Jrjálfunar eftir því, hverjir hæfi- leikarnir eru, líkamlegir hæfileikar, og til hvers maðurinn er fallinn og hvert löngun hans stefnir, hverja reynslu hann liefur og hvað það sé, sem vinnumark- aðurinn Jrarfnast. 5. Þær reglur, ráðstafanir og aðferðir við atvinnuþjálfun, sem að jafnaði tíðkast, REYKJALUNDUR 25

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.