Reykjalundur - 01.06.1971, Síða 26
þegar um ófatlaða menn er að ræða, skyldu
hafðar við fatlaða menn, eftir því sem
læknisleg og uppeldisleg skilyrði leyfa.
6. (1) Þar sem þess er kostur, skyldi þjálf-
un fatlaðra manna gera þá svo úr garði, að
þeir geti sinnt arðbærum störfum, siíkum
að þeim komi að notum atvinnuhæfileikar
þeirra og meðfæddir eiginleikar að því er
til atvinnumöguleika kemur.
(2) Með þetta fyrir augum skyldi þjálf-
un þeirra vera:
a. samræmd stöðuvalinu, með ráði læknis,
við þau störf, þar sem vinna sú, sem
heimtuð er, hefur sem allra minnst áhrif
á fötlun hans;
b. hvenær sem það hentar eða er mögulegt,
vera í því starfi, sem hinn latlaði maður
hafði áður með höndum, eða lúta að
þeirri vinnu, sem því er skyld; og
c. henni haldið áfram, unz liinn fatlaði
maður hefur öðlazt næga kunnáttu til
þess að geta að eðlilegum hætti unnið
á sama grundvelli og ófatlaðir menn,
ef það er mögulegt, að hann geri svo.
7. Þar sem á því eru möguleikar, skyldi
hinn fatlaði maður þjálfaður við sömu skil-
yrði og ófatlaðir menn.
8. (1) Sérstök þjónustugrein skyldi stofn-
uð eða efld til þess að þjálfa þá fatlaða
menn, sem sökum þess, hve fötlun þeirra
er stórfelld, verða ekki þjálfaðir saman með
ófötluðum mönnum.
(2) Þar sem þess er kostur eða það á
við skyldu þessar þjónustugreinar, meðal
annars, innifela:
a. skóla eða kennslustöðvar, með heimavist
eða án hennar;
b. sérstök stutt og löng námskeið vegna
sérlegra atvinnugreina;
c. framhaldsnámskeið til frekari þjálfun-
ar fatlaðra manna.
9. Ráðstafanir skyldu gerðar til þess að
hvetja vinnuveitendur til þess að sjá fötl-
uðum mönnum fyrir þjálfun; skyldu þær
ráðstafanir innifela, eftir því sem við á,
fjárhagslega, tæknilega, læknislega og at-
vinnulega aðstoð.
10. (1) Ráðstafanir skyldu gerðar til þess
að efla sérstakar aðgerðir til útvegunar at-
vinnu handa fötluðum mönnum.
(2) Þær aðgerðir skyldu tryggja að vel
takist um ráðningar, með því að:
a. lmlda skrá yfir þá, er um atvinnu sækja;
I). halda skrá yfir starfshæfileika þeirra, æf-
ingu og óskir;
c. ræða við þá, áður en þeir eru ráðnir;
d. meta, ef nauðsyn krefur, líkamlega og
atvinnulega hæfileika þeirra;
e. livetja vinnuveitendur til þess að til-
kynna hlutaðeigandi stjórnarvaldi laus-
ar stöður;
f. hafa samband við vinnuveitendur, þeg-
ar þess gerist þörf, til þess að gera ljósa
starfshæfileika fatlaðra manna og útvega
þeim atvinnu;
g. hjálpa þeirn til að útvega sér þær leið-
beiningar um atvinnuval, atvinnuþjálf-
un og þá læknislegu og félagslegu þjón-
ustu, sem þeim kann að vera nauðsynleg.
11. Framhaldsaðgerðum skyldi haldið
uppi:
a. til þess að ganga úr skugga um það,
hvort útvegun atvinnu eða þjálfun til
atvinnu eða aðstoð við framhaldsþjálfun
hafa gefið góða raun, og til jress að gera
sér það ljóst, hver árangur hefur orðið
af ráðum, gefnum um atvinnu, og af að-
ferðunum;
b. til þess eftir megni að ryðja úr vegi
þeim hindrunum, er varnað gætu því,
að hinn fatlaði maður uni sér vel við
starf sitt.
26
REYK. JALUNDUR