Reykjalundur - 01.06.1971, Síða 47
HVER SAGÐI ÞETTA?
(Spurningar úr Islendingasögunum og Is-
landssögunni.)
1. Þeim var ég verst, er ég unni mest.
2. Gömlum kennum vér nú goðanum að
geitla á saltinu.
3. Engin hornkerling vil ég vera.
4. Berr er hver að baki nema sér bróður
eigi.
5. Eigi skal gráta Björn bónda, heldur
safna liði.
6. Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir
mér verð vinátta þín og sona þinna.
7. Skaltu það muna, vesæll maður, með-
an þú lifir, að kona hefir barið þig.
8. Enginn frýr þér vits, en meir ertu
grunaður um græsku.
9. Um hvað reiddust goðin, þá er hér
brann hraunið, er nú stöndum vér á?
10. Lítið lagðist hér fyrir góðan dreng, er
þrælar skyldu honum að bana verða.
— FELUMYND —
Hvar er veiðimaðurinn?
GÁTUVÍSA
(Karlmannsnafn.)
Hálft er nafn við saltan sjó,
— svo í Ijóði bundið —
annan hluta’ í öskustó
áttu’ að geta fundið.
E. K.
SKOTASAGA
Skoti var að gera við þakið á húsi sínu.
Allt í einu missti hann jafnvægið og datt
niður. Um leið og hann fór fram hjá eld-
húsglugganum, kallaði hann inn: „Þú þarft
ekki að ætla mér hádegiverð í dag, kona
góð!“
FELUNÖFN
xrxxxxxxxxxx
xxuxxxxxx
xxxt
xxxxfxxx
xxxr
xxóx
Hér á að finna sjö íslenzk fuglaheiti, með
því að setja stafi í stað krossanna. (Fremstu
stafir líuanna mynda eitt fuglsheitið.)
REYKJALUNDUR
47