Reykjalundur - 01.06.1971, Blaðsíða 50
Axel Bræmer:
Ekki
þessar stelpur
— Já, það ætla ég að segja þér, mamma,
að við viljum bara ekki hafa þessar stelpur
með í ferðalagið, sagði Venni ákveðinn.
— Alls ekki, sagði Frank bróðir hans og
tók í sama streng.
— Bíðið þið nú við. Verið þið nú ró-
legir, sagði mamma þeirra. — Þið megið þó
til að koma kurteislega fram við frænkur
ykkar, þegar þær koma í heimsókn. Ég er
alveg viss um, að Jrær langar mikið til að
leika sér við ykkur og fara með ykkur í
ferðalagið.
— Það getur vel verið, maldaði Venni i
móinn, en okkur langar ekkert til þess að
vera með þeim. Við viljum ekki leika okk-
ur við stelpur.
— Nei, og við viljum ekki sjá að hafa
þær með í ferðalagið, bætti Frank við.
— Við skulum nú annars sjá, sagði
mamma þeirra. Það er bara alls ekki víst,
að Nanna og Gyða kæri sig nokkuð um
að fara með ykkur í svona langa og erfiða
gönguferð. En lofið þið mér nú að taka
ve! á móti Jreim, meðan Jrær dvelja Iiérna.
Drengirnir svöruðu Jrví litlu. En það var
af jrví að þeir kærðu sig ekki um að hafa
50
frænkur sínar með í ferðalagið, sem Jreir
ætluðu að fara næstkomandi sunnudag.
Næsta föstudag komu Jrær Nanna og
Gyða. Þær voru Jrá ekki eins vitlausar og
Jreir liéldu, Venni og Frank. Þær gáfu þeim
stundum hýrt auga. En Jreir sátu fast við
sinn keip. Þeir vildu ekkert hafa með stelp-
ur að gera, og svo var Jrað þetta með ferða-
lagið, sem Jreir urðu að halda leyndu í
lengstu lög.
Að kvöldi laugardags útbjó mamma fjóra
matarpakka frammi í eldhúsi.
— Hvað ég ætlaði nú að segja, sagði
Frank, er hann sá til mömmu sinnar. —
Við viljum ekki hafa Jressar stelpur með
okkur á morgun.
— Það verður víst ekkert af Jrví heldur,
svaraði mamma og kímdi. — En telpurnar
langar nú samt í ferðalag á morgun og
ætla að vera allan daginn, og Jrað getið þið
ekki bannað þeim.
— Nei, auðvitað ekki, sagði Frank.
Snemma næsta morgun lögðu þeir af
stað, Venni og Frank. Þeir höfðu skipu-
lagt vel gönguferð um skóginn þarna í
grenndinni. Þótt enn væri vetur, var ágætt
REYKJALUNDUR
J