Reykjalundur - 01.06.1971, Page 53
Stjórnarfundur D.N.T.C.
Helsingfors 1971
Berklavarnarsamband Norðurlandanna
D. N. T. C. hélt stjórnarfund í Helsingfors
í lok maímánaðar s. 1. en í sambandinu eru
öll berklavarnarsambönd landanna.
Samband þetta var stofnað liér á landi ár-
ið 1948, og hefir haldið stjórnarfundi ann-
að hvert ár til skiptis á Norðurlöndum.
Um svipað leyti og þessi stjórnarfundur
var haldinn en þar mættu, sem fulltrúar
S.I.B.S. Arni Einarsson, framkvæmdastj. á
Reykjalundi og undirritaður, átti finnska
berklavarnarsambandið 30 ára afmæli. Var
þing finnska sambandsins haldið um sanra
leyti og var afmælisbragur yfir því þingi.
Var meðal annars afmælisins minnst með
sérstökum hátíðarfundi, jrar sem fulltrúar
Norðurlandanna mættu, og fluttu finnska
bróðursambandinu árnaðaróskir sambanda
sinna af þessu tilefni.
Á stjórnarfundinum voru mörg mál á
dagskrá er varða starfsemi sambandanna og
var skipzt á upplýsingum um leiðir þær,
sem farnar eru í liverju landi til að vinna að
því sameiginlega verkefni allra samband-
anna, útrýming berklaveikinnar og aðstoð
við þá, sem sjúkir hafa orðið.
Hafa þessir fundir ávallt verið mjög gagn-
legir og veitt margvíslegar leiðbeiningar,
sem borizt hafa til samtaka hvers lands með
fulltrúum jreirra er fundina hafa sótt.
Getum við í S.Í.B.S. verið stolt af því,
að hafa ekki eingöngu verið þiggjendur í
þeim hópi heldur einnig veitendur.
Eitt af aðalmálum fundarins var um
tryggingamál öryrkja og kom þar í ljós, að
mjög er misjafnlega að öryrkjum búið, en
í öllurn löndunum hafa orðið miklar breyt-
ingar til batnaðar í þeim efnum. Var sam-
jrykkt á fundinum, að efna til sérstaks fund-
ar með fulltrúum sambandanna um trygg-
ingamál og aðbúnað öryrkja í hinum vmsu
löndum.
Mengun lofts og matar er mjög á dagskrá,
sérstaklega í öllum iðnþróuðum löndum.
Var það vandamál einnig á dagskrá fundar-
ins, sérstaklega með tilliti til hjarta, astma
og lungnasjúkdóma.
Gerði fundurinn sérstaka ályktun, vegna
sívaxandi mengunar loftsins, sem stafaði af
síaukinni iðnvæðingu, sem einnig liefði í
för með sér vaxandi streitn í stað þess að
gera líf fólksins léttara.
Hefur Jressi Jrróun einkum komið fram í
auknurn hjarta- og lungnasjúkdómum.
Var það Jrví krafa fundarins, að samfé-
lögin láti þær ráðstafanir sitja í fyrirrúmi,
sem miði að því að Jiessi vandamál verði
leyst.
Iðnvæðingin má aldrei í nútíma þjóð-
félagi vera hótun heilsu samborgaranna
heldur á samfélagið að láta líf mannsins og
velferð sitja í fyrirrúmi.
Kjartan Guðnason.
REYKJALUNDUR
53