Reykjalundur - 01.06.1971, Blaðsíða 57
HVAR MÆTAST AUSTRIÐ OG VESTRIÐ?
Ljóðabréf
frá Agli Jónassyni, Húsavík
Húsavík, 30. júlí 1971.
Kœri Hjörleifur Gunnarsson.
Þú býður eina blaðsíðu i „Reykjalundi“
og blaðinu vil ég gjarnan rétta hönd.
En pað er litill matur i mínu pundi,
pví mér hefur gengið illa að nema lönd.
Vöggugjöf mér var svo lítil fengin; ,
veganestið rýrt og menntun engin.
En ég hef baslað svona eins og aðrir,
pú oft og tiðum væru kjörin hörð.
Og eðlilega búinn að fella fjaðrir,
pœr fokið hafa viða um grýtta jörð.
Sumir liafa haft að sliku gaman,
en héðan af ég tini pœr ekki saman.
Þvi óparfleg ungum var mér gefið,
— pvi illa hef ég stundum fengsins gcett —
eyrna minna og tungu stuðlastefið,
er stundir margar hefir létt og bœtt.
Sýnishorn ég setidi i nokkrum línum,
sem má kannske birta i „Lundi“ pinum.
Þinn
Egill Jánasson.
Hvað, sem öllum líður lestri,
löngu sannað er,
að austrið mætir alltaf vestri
undir sjálfum þér.
KYNFRÆÐSLA ! SKÓLUM.
Við Kennaraskólann þarf kynfræðslumenntadeild
svo kennt verði börnum fagið í einni heild.
Mannskepnan eðlar sig ekki nærri því rétt,
þó aparnir kunni að viðhalda sinni stétt.
EF ÞÚ MÆTTIR TÍGRISDÝRI, — HVAÐ ÞÁ?
Þó mætti ég ,,Tiger“, sem í tennurnar léti skína
tæplega yrði ég sleginn af ragmennskuótta.
Ég brygði mérfimlega bak við „Rauðsokku" mína
og blessuð skepnan mundi þá leggja á flótta.
MÓÐURMÁLIÐ.
íslenzk tunga spæld til grafar gengur,
geggjað er að hneggja um fornan sess.
Hún ku ekki hanga í stælnum lengur,
henni vantar ótal margt til þess.
EINKENNI NÚTÍMALISTAR.
Engin klipping eða rakstur,
illa hirtir sneplaflókar.
Lærakippir — lendaskakstur,
langt á milli skyrtu og brókar.
REYKJALUNDUR
57