Fréttablaðið - 09.11.2015, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 2 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 9 . n ó v e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri
Thorsson skrifar um úrtölu
menn í loftslagsmálum. 12-13
sport Strákarnir okkar unnu
ríkjandi heimsmeistara. 14
tÍMaMót Steingrímur Sævarr
Ólafsson, fjölmiðlaráðgjafi og
fyrrverandi fréttastjóri, er fimm
tugur í dag. 16
lÍfið Rokksveitin
Zhrine landaði
samning við Sea
son of Mist. 24-26
plús 3 sérblöð
l fólk l fasteignir
l Húsnæðislán
*Samkvæmt prentmiðlakönnun
Gallup apríl-júní 2015
Sími
512 4900
landmark.is
stjórnsýsla „Jafnvel þó að um ein
hvers konar neyðaraðstæður hafi verið
að ræða vegna peningaástandsins í
kirkjunni í kjölfar hrunsins þá verðum
við að breyta þessu strax og ekki síðar
en nú, hér á þessu þingi, því þetta
gengur ekki,“ sagði séra Geir Waage á
Kirkjuþingi í október.
Geir, sem er sóknarprestur í Reyk
holti, sagði að fjármunir úr jöfnunar
sjóði sóknanna í landinu hefðu verið
„teknir í nokkuð stórum stíl á undan
förnum árum til að launa presta og
til þess að greiða ýmsan kostnað á
Biskups stofu“. Eftir hrun hefðu á
þennan hátt samtals runnið 175 millj
ónir króna úr jöfnunarsjóðnum. Það
væri óheimilt samkvæmt lögum og
reglugerðum.
„Það er hvergi nokkurs staðar opnuð
leið í lögunum eða reglugerðinni til
þess að taka fé úr þessum sjóði til
þess að kosta prestsþjónustu eða til
annars kostnaðar heldur en einhverrar
umsýslu sjóðsins á Biskupsstofu,“ sagði
Geir.
Séra Gísli Jónasson, formaður fjár
hagsnefndar Kirkjuþings, dró í efa að
þessi aðferð væri ekki í samræmi við
lög og reglur. „Við getum sjálfsagt gert
ágreining um það hvort það hafi verið
rétt ákvörðun eða ekki en hún var
allavega gerð til þess að forða því að
fækka starfsmönnum meira en orðið
hefur verið,“ útskýrði Gísli.
Þegar upplýst var að kirkjuráð Þjóð
kirkjunnar hefði samþykkt að ekki yrði
fært frekara fé milli sjóða kvaðst Geir
hins vegar sáttur. – gar / sjá síðu 6
Sóknargjöld sögð fara í röng útgjöld
lögregluMál Rannsókn lögreglu í
tveimur aðskildum kynferðisbrota
málum beinist að húsnæði í fjöl
býlishúsi í Hlíðahverfi í Reykjavík,
þar sem talið er að árásirnar hafi
átt sér stað. Lögregla staðfestir að
tvær kærur hafi verið lagðar fram
í málinu. Samkvæmt heimildum
blaðsins voru árásirnar hrottalegar
og íbúðin búin tækjum til ofbeldis
iðkunar.
Fréttablaðið greindi frá árás
unum fyrir helgi, en þær áttu sér
báðar stað í október. Tveir karlar
eru grunaðir um árásirnar. Annar
er á fertugsaldri og stundar nám við
frumgreinadeild Háskólans í
Reykjavík, þar sem fórnarlömb
árásanna stunda báðar nám. Hinn
er á svipuðum aldri og starfsmaður
á hótelinu Reykjavík Marina. Hann
hefur verið sendur í leyfi á meðan á
rannsókn stendur.
Fyrri nauðgunin er sögð hafa átt
sér stað eftir bekkjarskemmtun
háskólanemanna á skemmti
staðnum Austri, í umræddri íbúð
í Hlíðunum. Níu dögum síðar á
hinni konunni að hafa verið nauðg
að, í sömu íbúð, af báðum mönn
unum eftir bekkjarskemmtun á
Slippbarnum.
Umráðamaður íbúðarinnar er
maðurinn sem starfaði hjá Reykja
vík Marina, sem rekur Slippbarinn.
Samkvæmt upplýsingum frá sam
nemendum kvennanna leikur grun
ur á að mennirnir hafi í það minnsta
í öðru tilvikinu byrlað konunni
ólyfjan áður en ráðist var á hana.
S a m k væ m t á r e i ð a n l e g u m
heimildum blaðsins fann lögregla
í íbúðinni ýmis tól og tæki sem
mennirnir eiga að hafa notað við
nauðg anirnar, svo sem svipur, reipi
og keðjur. Þá voru hankar í loftinu
sem grunur leikur á að mennirnir
hafi notað til að hengja upp aðra
konuna á meðan ráðist var á hana.
Lögreglan vill ekki staðfesta
hvað hafi fundist við húsleitina.
Hún staðfestir þó að hún hafi verið
gerð í framhaldi af því að menn
irnir voru handteknir. Mönnunum
var sleppt að lokinni frumrann
sókn lögreglu. Ekki var farið fram á
gæsluvarðhald yfir þeim. – ngy
Íbúð í Hlíðunum var
útbúin til nauðgana
Tveir karlar, grunaðir um hrottaleg kynferðisbrot, ganga lausir. Málið er í rannsókn.
Árásirnar tvær sem
lögregla rannsakar tengjast
báðar nemendum við
Háskólann í Reykjavík.
Fjölmenni sótti árvissan jólabasar Hringsins í gær. Í hópi þeirra sem gerðu góð kaup voru Geir Ólafsson tónlistarmaður og unnusta hans sem hér kaupa ungbarnaföt. Fréttablaðið/Vilhelm
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
D
-A
E
0
4
1
6
E
D
-A
C
C
8
1
6
E
D
-A
B
8
C
1
6
E
D
-A
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
8
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K