Fréttablaðið - 09.11.2015, Page 2

Fréttablaðið - 09.11.2015, Page 2
Guðað á gluggannVeður Hægir vindar og bjart með köflum framan af morgundegi, en austankaldi og dálítil slydda eða snjókoma sunnan til með kvöldinu. Hiti víða 0 til 5 stig. Sjá Síðu 18 ViðSkipti Í Mörkinni er vefnaðar- vöruverslunin Virka sem státar af því að vera stærsta bútasaumsverslun í Evrópu og ein sú stærsta í heimi. Í dag er verslunin með sex til átta þúsund tegundir af ströngum til bútasaums, en til samanburðar er stærsta búta- saumsverslun Ástralíu með um það bil níu þúsund tegundir. Hjónin Guð- finna Björk Helgadóttir og Helgi Þór Axelsson eru eigendur Virku og hafa rekið hana í 39 ár. Hjónin hafa átt stóran þátt í því að kynna bútasaum fyrir Íslendingum. „Við komum með bútasauminn til Íslands árið 1978, og tókum þátt í heimilissýningu í Laugardagshöllinni sem sló algjörlega í gegn. Þá byrjaði ég að kenna alveg á fullu og kenndi á hverju kvöldi á veturna í mörg ár,“ segir Guðfinna. Hjónin hafa árlega sótt bútasaums- sýningu í Bandaríkjunum frá 1979 og eru einu verslunareigendurnir sem hafa komið á hverju ári. „Margar búðir hafa komið öll árin en hafa skipt um eigendur. Bútasaumsverslanir skipta heilmikið um eigendur því þetta er svo mikil vinna, þú þarft að vera að kenna og þú þarft að vera að sauma sýnis- hornin,“ segir Guðfinna. Frá árinu 1994 hefur Guðfinna boðið erlendum hópum upp á búta- saumsnámskeið. Það hefur reynst afar vinsælt. „Við erum með mikið af erlendum hópum sem plana ferðir hingað og við erum búin að fá fyrir- spurnir fram á næsta vor,“ segir hún. Ferðamennirnir koma víðs vegar að, allt frá Bandaríkjunum til Ástralíu. Guðfinna segir stærstu hópana koma frá Svíþjóð og Noregi. Verslunin býður auk bútasaums upp á mikið úrval af fataefnum. „Fólk er að koma frá útlöndum og kaupa það líka. Konur sem koma til að heimsækja bútasaumsdeildina enda oft með því að kaupa heilmikið af fataefnum því þær hafa aldrei séð annað eins úrval.“ Aðspurð segir Guðfinna að galdur- inn við það að halda rekstri gangandi í svona langan tíma sé hvað þau hjónin séu samhent. „Þetta hefur verið rosa mikil vinna hjá okkur en líka svo skemmtilegt.“ Hvað framtíð verslunarinnar varðar segir Guðfinna þau hjónin lítið hafa íhugað hana. „Ætli ég verði ekki hérna með göngugrind níræð? Svo framar- lega sem við hjónin getum tekið okkur frí inni á milli,“ segir Guðfinna hin brattasta. saeunn@frettabladid.is Stærsta sérverslun með bútasaumsefni í Evrópu Hjónin Guðfinna og Helgi hafa rekið vefnaðarvöruverslunina Virku í 39 ár. Þau segja hana stærstu bútasaumsverslun Evrópu og eina þá stærstu í heiminum. Guðfinna hefur boðið erlendum ferðamönnum bútasaumsnámskeið í 20 ár. Gunnar Hansen leikari látinn Gunnar Hansen leikari lést á heimili sínu í B a n d a - ríkjunum á l a u g a r d a g . Hann var 68 ára en banamein hans var krabbamein. Hann var þekktastur fyrir að leika óbermið Leatherface í tímamótahrollvekjunni Texas Chain Saw Massacre, sem gerð var árið 1974. Hann lék einnig í íslensku bíómyndinni Reykjavík Whale Watching Massacre, en alls kom hann fram í 20 kvikmyndum um ævina. Hann var fæddur á Íslandi og bjó þar fyrstu fimm árin, en þá flutti fjölskylda hans til Banda- ríkjanna. Íslandsmótið í skrafli fór fram í þriðja skipti í gær. Átján tóku þátt, en sigurvegari var Vilhjálmur Þorsteinsson forritari. „Þetta var ótrúlega spennandi því þetta var svo jafnt,“ segir Jóhannes Benediktsson, formaður Skraflfélagsins. „Það fóru allir út með bros á vör enda frábært mót.“ Fréttablaðið/Vilhelm Guðfinna segir að galdurinn við að halda rekstri gangandi í svona langan tíma sé hvað þau hjónin séu samhent. Fréttablaðið/GVa Margar búðir hafa komið öll árin en hafa skipt um eigendur. Bútasaumsverslanir skipta heilmikið um eigendur því þetta er svo mikil vinna, þú þarft að vera að kenna og þú þarft að vera að sauma sýnishornin. Guðfinna Björk Helgadóttir verslunareigandi LögregLumáL Greindarskertur hollenskur maður sem hefur verið í einangrun á Litla-Hrauni  síðan  29. september hefur fengið að hafa sam- band við móður sína undir eftir- liti lögreglu. Hann, ásamt tveimur Íslendingum og öðrum Hollendingi, er í einangrun í tengslum við rann- sókn á smygli á 23 kílóum af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu. Að sögn verjanda mannsins telur lögreglan ekki efni til að aflétta ein- angrun yfir manninum þrátt fyrir að farið hafi verið fram á geðrann- sókn á honum. Af gögnum málsins má sjá að við skýrslutöku greindi hinn Hollendingurinn frá því að maðurinn væri með þroska á við tólf ára barn. Gæsluvarðhaldsúrskurðir yfir mönnunum renna út á morgun. – ngy  Fékk að ræða við móður sína SjáVarútVegur Hafrannsókna- stofnun hefur lagt til að leyfðar verði veiðar á 100 tonnum af rækju í Skjálfanda, 250 tonnum í Arnarfirði og 700 tonnum í Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2015/2016. Nýlegur leiðangur Hafró sýndi að magn ungfisks var yfir viðmiðunar- mörkum og því hefur stofnunin lagt til að rækjuveiðar hefjist ekki fyrr en dregið hefur úr ungfiski á veiði- svæðum rækjunnar. – shá Rækjukvótinn rúm 1.000 tonn Greindarskertur maður hefur verið í einangrun á litla-hrauni í tæplega sex vikur. Fréttablaðið/heiða 9 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 m á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E D -B C D 4 1 6 E D -B B 9 8 1 6 E D -B A 5 C 1 6 E D -B 9 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 8 1 1 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.