Morgunblaðið - 27.02.2015, Side 4
4 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Veiðimennirnir (Fas-andræberne) er önnur bók-in í spennusagnaröðinnieftir Jussi Adler-Olsen um
störf Carls Mørck og Assad fyrir
rannsóknardeildina Q sem er kvik-
mynduð. Í upphafi myndar leitar
gamall lögreglumaður til Carls
Mørck og biður hann að rannsaka
óupplýst morð á táningssyni sínum
og -dóttur sem myrt voru með hrotta-
legum hætti tuttugu árum áður.
Mørck neitar, en þegar gamli lög-
reglumaðurinn sviptir sig síðan lífi
finnst honum hvíla á sér sú skylda að
virða hinstu óskina.
Á sínum tíma játaði unglingurinn
Bjarne Thøgersen á sig morðin, en
naut aðstoðar stjörnulögfræðings
landsins sem tryggði honum stutta
fangelsisvist og að afplánun lokinni
hefur morðinginn öllum að óvörum
nóg fé á milli handanna þrátt fyrir að
vera af fátæku fólki kominn. Allt
bendir því til að hann hafi þegið
greiðslur fyrir að taka á sig sökina.
Fljótlega berast böndin upp í efstu
lög samfélagsins, því morðinginn
hafði sterk tengsl við hóp sterk-
efnaðra jafnaldra sinna á Griffen-
holm-heimavistaskólanum sem hafa á
fullorðinsárum orðið mjög valdamikil
í þjóðfélaginu. Foringi hópsins var og
er viðskiptaforkólfurinn Ditlev Pram
sem í slagtogi við Ulrik Dybbøl veit
sem fullorðinn maður fátt skemmti-
legra en að lúberja aðra undir áhrif-
um kókaíns. Eina stúlkan í vinahópn-
um gamla, Kirsten Marie Lassen
kölluð Kimmie, er hins vegar heim-
ilislaus og fer huldu höfði.
Handritshöfundarnir Nikolaj Arcel
og Rasmus Heisterberg eiga hrós
skilið fyrir að koma efnismikilli
spennusögu Adler-Olsen yfir á hvíta
tjaldið. Margar breytingarnar sem
kvikmyndamiðilinn kallar eðlilega á
eru til bóta. Þannig skerpir það t.d.
söguna að ofbeldisfullu siðleysingj-
unum í gamla skólagenginu er fækk-
að úr sex í fjóra. Einnig er til bóta að
sleppa næstum öllu er snýr að per-
sónulegu lífi Mørcks, en þau örfáu
samtöl sem rannsóknarlögreglumað-
urinn á við unglingsson sinn miðla
miklu um persónu hans. Eins er skilj-
anlegt að subbulegt lokaatriði bók-
arinnar þar sem handsprengja er í
aðalhlutverki hafi verið leyst með
sjónrænt flottari hætti.
Þrátt fyrir allmiklar styttingar þar
sem markmiðið er augljóslega að ein-
blína á spennuframvinduna verður
myndin á köflum óþarflega lang-
dregin. Það helgast einna helst af því
að stór hluti myndarinnar er sagður
með endurliti sem verður endurtekn-
ingarsamt og hægir á framvindunni í
stað þess að styrkja hana. Í endurlit-
unum eru rifjuð upp samskipti vina-
hópsins sem beittu ofbeldi í anda
kvikmyndarinnar A Clockwork Or-
ange með tilheyrandi drápum. Afar
myndrænt, hrottafengið ofbeldið
verður afskaplega leiðigjarnt til
lengdar og setja verður spurning-
armerki við þá ákvörðun kvikmynda-
gerðarmannanna að ýkja ofbeldið
frekar en hitt, því í bókinni stundar
vinahópurinn helst það að myrða
fórnarlömb sín en í myndinni er
hrottalegu og tilhæfulausu kynferðis-
ofbeldi bætt við.
Aftur mistekst handritshöfund-
unum úrvinnslan á sterkustu konu
bókarinnar. Konunni í búrinu í sam-
nefndri mynd eftir fyrstu skáldsög-
unni um Mørck var breytt úr þeim
töffara sem bókin lýsir í enn eina
þjáðu konuna í heimi spennumynd-
anna. Sömu örlög hlýtur Kimmie sem
í bókinni er gerandi í eigin lífi og hörð
í horn að taka þrátt fyrir augljós and-
leg veikindi sín. Bókin er hrein-
ræktuð hefndarsaga hennar á hendur
gömlu félögum sínum sem léku hana
grátt, en kvikmyndin er eymdarsaga
hennar, þó henni takist á lokametr-
unum að ná settu markmiði. Ýmsar
aðrar brotalamir eru í handritinu,
eins og t.d. þegar Kimmie veit sjálf-
krafa hvar Mørck er niðurkominn
þegar hann svíkur stefnumót sitt við
hana.
Líkt og í fyrri myndinni er allt yf-
irbragðið bæði drungalegt og dökkt,
sem skýrir vafalítið hvers vegna
myndinni hefur verið lýst sem „nordic
noir“ eða norrænni rökkurmynd.
Leikstjórinn Mikkel Nørgaard virðist
hins vegar halda að aðalleikararnir
þurfi stöðugt að vera með sígarettuna
í munnvikinu til þess að standa undir
því nafni.
Ljósi punktur myndarinnar er af-
bragðsleikur Nikolaj Lie Kaas og Far-
es Fares í hlutverkum sínum sem
Mørck og Assad. Samleikur þeirra er
góður og gaman að verða vitni að því
þegar Mørck er komið á óvart með
góðri kunnáttu Assad m.a. sem skyttu
og málamanns. Báðir eru þeir næmir á
kómískar tímasetningar og lyfta ann-
ars miðlungsmynd á hærra plan. Pilou
Asbæk og David Dencik eru sannfær-
andi í hlutverkum sínum sem Ditlev
Pram og Ulrik Dybbøl þó hlutverk
þeirra séu eðli málsins samkvæmt
fremur einhæf. Sarah-Sofie Boussnina
og Danica Curcic leika Kimmie á
tveimur tímaskeiðum. Boussnina
dregur upp skýra mynd af tánings-
stúlku í uppreisn sem lendir í miklum
hremmingum. Curcic hefur góða nær-
veru í oft þöglu hlutverki Kimmie á
fullorðinsárum og ekki er við hana að
sakast þó handritshöfundar í sam-
vinnu við leikstjóra hafi ákveðið að
draga tennurnar úr hlutverkinu.
Eftir stendur mynd sem er ágætis
afþreying sem tekur bókinni fram í
ýmsu þó aðrar brotalamir dragi hana
niður. Þess má að lokum geta að þetta
er lokamynd leikstjórans í seríunni þó
áður hafi verið gefið út að hann myndi
leikstýra fyrstu fjórum myndunum
um Mørck og félaga.
Hrottaskapurinn allsráðandi
Góðir Fares Fares og Nikolaj Lie Kaas eru góðir í hlutverkum sínum sem
Assad og Carl Mørck, en heilt yfir er myndin of langdregin og hrottafengin.
Borgarbíó, Háskólabíó og
Laugarásbíó
Fasandræberne / Veiðimennirnir
bbbnn
Leikstjóri: Mikkel Nørgaard. Handrit:
Nikolaj Arcel og Rasmus Heisterberg
byggt á skáldsögu eftir Jussi Adler-
Olsen. Aðalleikarar: Nikolaj Lie Kaas,
Fares Fares, Danica Curcic, Pilou As-
bæk, David Dencik, Sarah-Sofie Bo-
ussnina, Marco Ilsø, Johanne Louise
Schmidt, Beate Bille og Søren Pilmark.
Danmörk, 2014. 119 mín.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Hanna Þóra Guð-
brandsdóttir
sópran og Ant-
onía Hevesi pí-
anóleikari koma
fram í Laugar-
neskirkju í dag
kl. 12, en tónleik-
arnir eru hluti af
tónleikaröðinni
Á ljúfum nótum.
Á efnisskránni
eru ljóð, bænir og aríur sem tengj-
ast heilagri Maríu. Einnig flytja
þær aríu eftir W.A. Mozart. Efnis-
skrána fluttu þær í Hafnaborg í
desember sl. við góðar undirtektir
að því er fram kemur í tilkynningu.
Flytja Maríubænir
og aríur í hádeginu
Hanna Þóra
Guðbrandsdóttir
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og
Penninn Eymundsson taka höndum sam-
an í Hörpu um helgina og bjóða gestum
að hlýða á átta rithöfunda lesa úr verk-
um sínum og spjalla um þau. Mat-
arveislan Food and Fun verður í brenni-
depli og afurðir úr hafi og landbúnaði
verða kynntar, þá verður þar mat-
armarkaður Búrsins, beint frá býli, og
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Reykjavík
Bókmenntaborgin krydda dagskrána
með tónlist og bókmenntum. Höfund-
arnir sem koma fram milli kl. 13 og 15 á laugardag og sunnudag eru Bryn-
dís Björgvinsdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Sigurður Pálsson, Gerður
Kristný, Yrsa Sigurðardóttir, Andri Snær Magnason og Meðgönguljóð-
askáldin Björk Þorgrímsdóttir, Elías Knörr og Valgerður Þóroddsdóttir.
Verðlaunahöfundur Ófeigur Sig-
urðsson er einn þeirra sem lesa upp.
Bókmenntir á matarmarkaði í Hörpu
Hádegistónleikar með Íslenska flautukórnum verða í
Listasafni Íslands í dag kl. 12.10. Á efnisskránni eru
verk eftir Joseph Haydn og Franz A. Hoffmeister.
Flytjendur eru Berglind Stefánsdóttir á flautu, Hall-
fríður Ólafsdóttir á flautu og Sigurgeir Agnarsson á
selló.
Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa
fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands síðasta
föstudag hvers mánaðar. Þá er boðið upp á fjölbreytta
tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni, stilla
hugann af fyrir helgina og endurræsa skilningarvitin.
Aðgangur er ókeypis.
Haydn og Hoffmeister í hádeginu
Hallfríður
Ólafsdóttir
Leiksýning fram-
tíðardeildar
Gaflaraleikhúss-
ins, „Heili Hjarta
Typpi“, verður
aftur tekin til
sýninga í kvöld,
föstudag, eftir
hlé. Verkið var
sýnt síðasta
haust og fékk
góðar viðtökur áhorfenda og gagn-
rýnenda. Þetta er gamanleikrit sem
fjallar um þrjá mjög ólíka handrits-
höfunda í tilvistarkreppu: „Stór-
snillingur, hjartnæmur unglingur
og graðnagli reyna að vinna sam-
an,“ segir í tilkynningu.
Úr sýningunni.
Heili Hjarta Typpi
fer aftur á svið
2 VIKUR Á TOPPNUM!
STÆRSTA OPNUNAR-
HELGI ALLRA TÍMA Á
ÍSLANDI!
Besta leikkona í
aðalhlutverki
www.laugarasbio.is
Sími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus