Morgunblaðið - 27.02.2015, Side 9
DÆGRADVÖL 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
OKKAR MISSIR ALDREI
EINBEITINGUNA
ÚRSMÍÐAMEISTARI
www.gilbert.is
Heimir L. Fjeldsted skrifaði mérog sagði að góðkunningi sinn,
sem væri búinn að bíða í tæpa fjóra
mánuði eftir skurðaðgerð við
krabbameini, segðist þreyttur á
biðinni sem tæki meira á en skurð-
aðgerð. Hann segði hamingjuna
lengi á leiðinni þessa dagana en
kysi þó að líta á bjartari hliðar til-
verunnar og sendi þessa stöku:
Hef gleðina til hæða
þá hamingjan er sein
og naprir vindar næða
sem nísta merg og bein.
Stundum kemur það fyrir að
kveðist sé á á Leirnum og getur
verið skemmtilegt að fylgjast með
því. Ármann Þorgrímsson sagðist á
miðvikudag kl. 9.26 vera bjartsýnn
á framtíðina:
Glaður lífsins gæða naut
gatan mín var oftast hrein
glími senn við þessa þraut
sem þurfum við að leysa ein.
Þorkell Guðbrandsson tók undir
það kl. 9.40 að bjart væri fram
undan:
Aldrei varstu auðsins þræll
enga dáðir fyrirmenn.
Vona að þú vinur sæll
verðir með oss lengi enn.
Og bætti síðan við: „Mér líst
ekkert á þetta dauðahjal í þér, Ár-
mann, við þurfum að fá að hafa þig
lengi enn!“ Kl. 10.30 er skrifað fyrir
hönd Ármanns Þorgrímssonar:
Bjart fram undan – það eina sem er
öruggt í tilverunni:
Fúna tré og fölna blóm
fylgir skuggi veggjum
öll að lokum undir dóm
okkar gjörðir leggjum.
Ég vona að ég lifi eitthvað leng-
ur. Fékk tvær sterasprautur í gær.
Kl. 11.45 sendir Sigmundur Bene-
diktsson Ármanni sínar bestu bata-
kveðjur „og megirðu lengi með oss
vera!“
Að þér kveðum andans þrótt,
afl og gleði, vona gnótt,
Braga geði bót skal sótt
bænum meður dag og nótt.
Ljósið skært þín leiti til
ljóðakært með stefjaspil,
Sónartært við Suttungshyl
sál fær nært við bögu yl.
Davíð Hjálmar Haraldsson slær á
limrustrengi:
Lengi á biðstofu bjó
Bína (sem dátt áður hló
og trallaði og lög
lék á túbu og sög)
og loks þar úr leiðindum dó.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um gleðina og kveðist
á um gæði lífsins
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að vita hvenær maður hefur færst of
mikið í fang er eitt, að viðurkenna það er ann-
að. Mundu að framsetningin skiptir öllu.
20. apríl - 20. maí
Naut Það sem þú leggur á þig í nafni
skemmtunarinnar er virkilega hvetjandi.
Njóttu líðandi stundar betur og ekki reyna að
halda í neitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Farðu varlega í viðskiptum í dag og
sýndu gætni. Ekki leyfa gremju að krauma
innra með þér. Mundu bara að gjalda í sömu
mynt þegar þannig stendur á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú hafir sett markið hátt er eng-
in ástæða til að ætla annað en þér takist að
ná því. Gefðu þér tíma til þess að útskýra
hlutina svo ekkert fari milli mála.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Líkamleg óþægindi geta þýtt að þér líki
illa það sem þú er beðinn að gera. Jafnvel
þótt þú hafir rétt fyrir þér, er þá öll fyrir-
höfnin þess virði? Er ekki betra að halda frið-
inn?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú skaltu bretta upp ermarnar og
taka til hendinni heima hjá þér. Taktu tillit til
þess sem aðrir leggja til mála, það gæti hjálp-
að, en haltu svo þínu striki til loka.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst gaman að ferðast. Láttu fara
eins lítið fyrir þér og þú getur þar til stormur-
inn er genginn yfir. Eins og er átt þú ekki
möguleika til fulls árangurs.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er einhver sem er að þrýsta
á þig og vill fá þig til að gera hlut sem þér er
þvert um geð. Haltu þínu striki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu á fullu í allan dag. Vertu
glaður/glöð og lífið verður gott við þg. Njóttu
þess en gleymdu þó ekki að eiga samveru
með þínum nánustu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt ná árangri í því sem þú ert
að gera og dagurinn í dag ætti að skila þér
góðum árangri. Lestu í fólk.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þarfir þínar og makans verða
skarpari í dag. Taktu af skarið í ótilgreindu
sambandi og mundu að nöldur er ekki það
sama og aðgerðir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert ekki hræddur við að fara
hörðum höndum um sannleikann. Hugsaðu
tvisvar áður en þú kaupir nokkuð. Vertu því
við öllu búinn því annars getur allt snúist á
versta veg.
Í klípu
FRIKKI FANN LOKSINS SINN
SAMASTAÐ.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐA SLYS? ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÉG VÆRI
AÐ BÚA TIL BÓKASTOÐIR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver til að deila
pitsunni þinni með.
SÉRÐU ÞENNAN
GULLFISK,
GRETTIR?
ÞETTA ER SÁ
SÍÐASTI
SEM ÉG KAUPI
SKILURÐU
HVAÐ ÉG ER
AÐ SEGJA?
ÉG ÆTTI AÐ
NJÓTA HANS?
BRA!
BRA!
BRA!
Á HVERJU ÁRI FLJÚGA
ENDURNAR HANS ATLA
HÚNAKONUNGS YFIR
LANDIÐ MITT Á LEIÐ
SINNI HEIM...
HVERNIG VEISTU
AÐ ÞÆR TILHEYRA
HONUM?
ÞÆR VIRÐAST
VITA AÐ ÉG ER
ÓVINUR
ÞEIRRA!
Ástand gatna í höfuðborginni hefuraldrei verið verra, en það kemur
Víkverja ekki á óvart, vegna þess að
það er stefna borgarstjóra og for-
manns umhverfis- og skipulagsráðs
að takmarka umferð sem mest í borg-
inni.
x x x
Reykjavíkurborg ber ábyrgð á götum bæjarins en verði bíleig-
endur fyrir tjóni vegna ásigkomulags
gatna í borginni vísa borgaryfirvöld
allri ábyrgð á bíleigendur. Þeir verði
að aka eftir aðstæðum og hafi þeir
ekki tilkynnt borginni um holur sitji
þeir í þeim á eigin kostnað.
x x x
Víkverji hefur aldrei heyrt önnureins rök og hefur þó ýmislegt
furðulegt komið úr ráðhúsinu undan-
farin misseri. Ábyrgðin hlýtur að
vera borgarinnar, nema hún vari öku-
menn við holunum. Þannig er það alls
staðar sem Víkverji þekkir til.
x x x
Borgarstjóri ver forgangsröðunina.Fuglahús á Hofsvallagötu og
þrengingar í Borgartúni, á Snorra-
braut og Grensásvegi skipta meira
máli en viðgerðir á götum borg-
arinnar. Fólk á enda ekkert með það
að aka bílum í borginni nema þá helst
á sunnudögum. Það getur bara tekið
strætó, gengið eða farið leiðar sinnar
á hjóli. Segir stjórinn.
x x x
Fleiri tækju eflaust strætó ef hægtværi að treysta því kerfinu, en
sagan endalausa um flutninga fatl-
aðra í borginni segir allt um þjón-
ustuna. Ætla má að einhverjir hjól-
uðu ef stígar væru ruddir og gerðir
aðgengilegir fyrir hjólandi og sama á
við um þá sem vilja ganga. Reyndar
finnst Víkverja borgaryfirvöld gera
allt sem þau geta til að gera íbúum
borgarinnar gramt í geði, þegar sam-
göngumál eru annars vegar. Og ýmis
önnur mál einnig.
x x x
Á árum áður var gott að búa íReykjavík, en svo virðist sem
borgaryfirvöld vinni markvisst að því
að grafa undan fólki í borginni. Það
veit ekki á gott. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn birtist honum úr fjarlægð:
Með ævarandi elsku hef ég elskað þig,
fyrir því hef ég látið náð mína haldast
við þig. (Jeremía 31:3)