Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 10
10 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
B
jarkey fæddist í Reykja-
vík 27.2. 1965 en ólst
upp á Siglufirði og
flutti síðan til Ólafs-
fjarðar 1980. Hún gekk
í Grunnskóla Siglufjarðar, lauk
stúdentsprófi frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri, B.Ed.-prófi frá
KHÍ 2005 og fékk diploma í náms-
og starfsráðgjöf frá HÍ 2008.
Bjarkey sinnti ýmsum þjónustu-
störfum við Hótel Ólafsfjörð 1984-
86, var almannatryggingafulltrúi og
gjaldkeri á sýsluskrifstofu Ólafs-
fjarðar 1988-91, sá um daglegan
rekstur og var bókari og launa-
fulltrúi Vélsmiðju Ólafsfjarðar 1989-
2005, starfrækti, ásamt eiginmanni
sínum, Íslensk tónbönd á árunum
1994-99, starfrækti Veitingahúsið
Höllina 2005-2012 og er, ásamt eig-
inmanni sínum, eigandi og starf-
rækir Kaffi Klöru og Gistihús Jóa.
Bjarkey kenndi við Barnaskóla
Ólafsfjarðar 2000-2005, var stig-
stjóri 8.-10. bekkjar þar, kenndi auk
þess stafræna ljósmyndun og upp-
lýsingatækni, var kennari og náms-
og starfsráðgjafi við Grunnskóla
Ólafsfjarðar 2005-2008 og náms- og
starfsráðgjafi við Menntaskólann á
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir alþingismaður – 50 ára
Á brúninni Bjarkey og Helgi fara töluvert í gönguferðir um landið. Hér eru þau komin upp á Hornbjarg.
Afar félagslega sinnuð
og umhverfissinni í VG
Börnin hennar Bjarkeyjar F.v.: Tímon Davíð, Klara Mist og Jódís Jana.
Þann 22. apríl vinnur heppinn áskrifandi
glæsilega Toyota Corolla bifreið.
Í upphafi skyldi
endinn skoða. Sveinn fæddist í Kaupmanna-höfn 27.2. 1881 en ólst upp íÍsafoldarhúsinu við Austur-
stræti sem nú er í Aðalstræti. Þar
starfrækti faðir hans Ísafoldarprent-
smiðju og ritstýrði Ísafold og þar var
Morgunblaðið fyrst til húsa, en Ólaf-
ur, bróðir Sveins, var ásamt Vilhjálmi
Finsen, stofnandi þess árið 1913.
Sveinn var sonur Björns Jóns-
sonar, ritstjóra, alþm. og ráðherra, og
k.h., Elísabetar G. Sveinsdóttur hús-
freyju, systur Hallgríms biskups, og
Sigríðar, móður Haraldar Níelssonar
guðfræðiprófessors, afa Haraldar
Sveinssonar, framkvæmdastjóra
Árvakurs.
Eiginkona Sveins var af dönskum
ættum, Georgia Björnsson, f. Han-
sen, og eignuðust þau sex börn.
Sveinn lauk stúdentsprófi alda-
mótaárið 1900 og hélt síðan til Kaup-
mannahafnar til að stunda laganám.
Því lauk hann vorið 1907 og varð
sama ár yfirréttarmálaflutnings-
maður og 1920 varð hann hæstarétt-
arlögmaður. Á árunum 1907-20 rak
Sveinn málflutningsskrifstofu í
Reykjavík. Hann var settur mála-
flutningsmaður við landsyfirréttinn
1919. Þá var hann alþm. fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn eldri 1914-15 og síðan
fyrir Heimastjórnarflokkinn 1919-20,
og gegndi starfi sendiherra Íslands í
Danmörku 1920-24 og 1926-41.
Árið 1941 var Sveinn kjörinn af Al-
þingi ríkisstjóri Íslands og hinn 17.
júní 1944 var hann kjörinn af Alþingi
fyrsti forseti Íslands á Lögbergi á
Þingvöllum. Hann var tvisvar endur-
kjörinn án atkvæðagreiðslu. Sveinn
hafði m.a. umtalsverð áhrif sem for-
seti á mótun varnarmála og nýrrar
utanríkisstefnu hér á landi með sam-
skiptum sínum við Bandaríkja-
forseta.
Sveinn er eini forsetinn sem skipað
hefur utanþingsstjórn en það gerði
hann sem ríkisstjóri, árið 1942, í
óþökk ýmissa alþingismanna, ekki
síst sjálfstæðismanna. Sveinn skráði
endurminningar sem gefnar voru út
1957. Þá skrifaði Gylfi Gröndal bók-
ina Sveinn Björnsson – ævisaga.
Sveinn lést 25.1. 1952.
Merkir Íslendingar
Sveinn
Björnsson
90 ára
Ásta Hallgrímsdóttir
Kristbjörg Ingimundardóttir
85 ára
María Áslaug
Guðmundsdóttir
Sakibe Bakraqi
Valgeir Tryggvi
Ingimundarson
80 ára
Edda Gísladóttir
Guðbjörg Jóna Jónsdóttir
Hans Guðmundur
Hilaríusson
Margrét Erla Hallsdóttir
75 ára
Ásdís Daníelsdóttir
Gísli Finnbogi
Guðmundsson
Ingibjörg Svanbergsdóttir
Kjartan Sigurjónsson
Laufey Guðrún Lárusdóttir
Sonja Gunnarsdóttir
Tomas Enok Thomsen
70 ára
Árnína Kristín Dúadóttir
Flosi Jónsson
Gréta Gunnarsdóttir
Helga Gunnarsdóttir
Hrönn Árnadóttir
Jón Anton Speight
Sigurlaug Gröndal
William S. Gunnarsson
60 ára
Agnes Gunnarsdóttir
Ásta Halldóra
Guðmundsdóttir
Gróa Sigurðardóttir
Guðmundur R.
Ragnarsson
Helga Gunnarsdóttir
Jenný Jóakimsdóttir
Jóna Hammer Gylfadóttir
Pálína Guðný
Guðmundsdóttir
Rúnar Hauksson
Sigurður Sveinsson
Þuríður Kristín
Hallgrímsdóttir
50 ára
Björk Hreinsdóttir
Guðmundur Atlason
Guðmundur Ingi Geirsson
Guðrún Margrét
Ólafsdóttir
Hugrún Reynisdóttir
Jóhannes Eggertsson
Jón Magnús Guðjónsson
Ólafía Margrét Helgadóttir
Regína Berndsen
Sigríður Einarsdóttir
40 ára
Benedikt Jón
Guðmundsson
Birna Káradóttir
Erna Kristín Hauksdóttir
Gísli Birgir Olsen
Hrönn Johannsen
Hrönn Sigurðardóttir
Sólrún Edda Pétursdóttir
30 ára
Ágústa Sveinsdóttir
Daniel Collovich Axelsen
Helgi Þór Lund
Kimberly Kathleen Irwin
Kristinn Örn Viðarsson
Magnús Helgi Jakobsson
Tomasz Kaminski
Þórhildur Ólafsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Salvör ólst upp í
Kópavogi, býr á Álftanesi,
lauk BS-prófi í stærðfræði
frá HÍ og atvinnuflug-
mannsprófi og er flug-
maður hjá Icelandair.
Maki: Dagbjartur Ein-
arsson, f. 1985, flug-
maður.
Dóttir: Bríet, f. 2010.
Foreldrar: Hólmfríður
Gunnlaugsdóttir, f. 1959,
bókasafnsfræðingur, og
Egill Einarsson, f. 1948,
verkfræðingur.
Salvör
Egilsdóttir
40 ára Íris býr í Hafnar-
firði, lauk sjúkraþjálf-
araprófi í Danmörku,
B.Ed.-prófi frá KHÍ og er
sjúkraþjálfari á DAS.
Maki: Ólafur Ragnar Guð-
björnsson, f. 1975, verk-
stjóri.
Börn: Andri Marteinn, f.
2004, og Sara Bryndís, f.
2007.
Foreldrar: Hákon Örn
Gissurarson, f. 1949, og
Valdís Kristinsdóttir, f.
1950.
Íris Huld
Hákonardóttir
30 ára Íris býr í Kópavogi,
stundaði nám í ljós-
myndun og grafískri miðl-
un, hefur unnið við ljós-
myndun og umbrot og er
nú í fæðingarorlofi.
Maki: Davíð Kristjánsson,
f. 1980, rafvirki.
Börn: Irena April, f. 2005,
og Oliver Leo, f. 2014.
Foreldrar: Marten Ingi
Lövdahl, f. 1958, húsa-
smíðameistari, og Elín
Guðbjartsdóttir, f. 1959,
gullsmiður.
Íris
Martensdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is