Morgunblaðið - 27.02.2015, Síða 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 2. mars, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Á
sgrím
urJónsson
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Morten Storm hefur marga fjöruna
sopið en hann ólst upp við erfiðar að-
stæður í dönsku sjávarplássi, gekk
til liðs við glæpasamtökin Bandidos,
snérist til íslam, barðist með al-
Qaeda og var njósnari öryggis-
lögreglunnar í Danmörku, bresku
leyniþjónustunnar og síðar leyni-
þjónustu Bandaríkjanna.
Storm, sem er 39 ára gamall, gaf
nýverið út bók um tvöfalt líf sitt:
Agent Storm: My Life Inside al-
Qaeda and the CIA.
Morten Storm fæddist í janúar ár-
ið 1976 í bænum Korsør og ólst þar
upp hjá móður sinni og stjúpföður en
faðir hans, sem var drykkjumaður,
hafði yfirgefið fjölskylduna þegar
Storm var ungur. Stjúpfaðir hans
var ofbeldishneigður og ólst Storm
upp við heimilisofbeldi, bæði andlegt
og líkamlegt. Hann var ekki nema
þrettán ára gamall þegar hann
framdi sitt fyrsta vopnaða rán. Í
kjölfarið fylgdi ofbeldi og aðrir
glæpir með félögum sem flestir voru
innflytjendur frá Pakistan, Íran og
Tyrklandi. Þessum félögum kynntist
Storm í sérskóla sem hann gekk í
fyrir vandræðabörn og unglinga.
Gróðanum eytt í
áfengi og fíkniefni
Að sögn Storms var þetta ábata-
samur tími og hann átti alltaf nóg af
peningum sem hann eyddi í áfengi
og fíkniefni. Á tíunda áratugnum tók
hann fullan þátt í gengjastríðinu á
milli vélhjólagengja og stýrði hann
starfsemi Bandidos í heimabæ sín-
um.
Þegar hann var um tvítugt rakst
hann á ævisögu Múhameðs spá-
manns á bókasafni bæjarins og fann
hann strax mikla tengingu við spá-
manninn. Þar skipti miklu í hans
huga virðing og einfaldleiki í lífi Mú-
hameðs, barátta hans fyrir málstað
þar sem samstaða og hollusta skiptu
miklu. Eða eins og hann sagði síðar í
viðtali við CNN: „Þetta breytti mér.
Bókin höfðaði sterkt til mín. Þetta er
sannleikurinn og ég upplifði sann-
leikann.“
Héldu upp á trúskiptin
með ærlegu fylliríi
Glæpaforinginn ákvað með sjálf-
um sér að sverja spámanninum holl-
ustu og tók upp múhameðstrú. Fé-
lagar hans og trúbræður tóku þessu
fagnandi og héldu þeir félagar upp á
trúskiptin með ærlegu fylliríi, að
sögn Storms í viðtölum við fjölmiðla.
Storm var inn og út úr fangelsi á
þessum árum og fangelsisdvölin
herti hann í trúnni og öfgar tóku við.
Gömlu félagarnir í Bandidos voru
ósáttir við breytinguna á honum
enda lítt trúaðir. Hann lét sig því
hverfa og settist að í London þar
sem hann fann skjól í moskunni í
Regent Park.
Fimmtán ára ferðalag
milli tveggja heima
Þaðan lá leiðin, á skólastyrk frá
Sádi-Arabíu, til Jemens þar sem
hann lagði stund á nám í arabísku og
trúarbrögðum.
Þar hófst ferðalag hans milli
tveggja heima – Vesturlanda og
Mið-Austurlanda – ferðalag sem
varði í fimmtán ár. Hann reyndi oft-
ar en einu sinni að festa rætur í
heimalandinu, Danmörku, án árang-
urs. Storm eignaðist konu á þessu
tímabili og tvö börn en rótleysið réð
áfram ríkjum.
Eftir dvölina í Jemen sneri hann
aftur til London þar sem hann lifði á
stuðningi frá hinu opinbera og
smáglæpum. Þar eyddi hann löngum
stundum með skoðanabræðrum,
vafrandi á netinu þar sem síður
tengdar öfgahreyfingar voru helsta
viðfangsefnið. Þeir áttu það allir
sameiginlegt, líkt og fjölmargir aðrir
öfgasinnar í Bretlandi á þessum
tíma, að dreyma um að fara í heilagt
stríð.
En í byrjun árs 2006 urðu ákveðin
straumhvörf í lífi Storms þegar hann
var staddur í Jemen. Þar var honum
boðið til veislu ásamt Anw-ar al-
Awlaqi, Bandaríkjamanni fæddum
árið 1971 sem var ættaður frá Jem-
en. Awlaqi byrjaði að predika um
tvítugt, varð herskárri með tímanum
og fór að reka áróður fyrir heilögu
stríði eftir að hann flutti til Jemen
2004.
Sáðkorni efans sáð
Awlaqi heillaði fjölmarga aðra
unga íslamista. Þrátt fyrir að hafa
heillast af Awlaqi var Storm farinn
að efast um trúna og á hvaða leið
hann var. Hann átti erfitt með að
skilja að það væri Guðs vilji að
fremja mannskæð hryðjuverk eins
og þau sem voru gerð 11. september
2001, á Balí, í Madríd 2004 og Lond-
on 2005.
„Ef þetta er hluti af fyrirfram
ákveðinni áætlun Allah þá hafði ég
ekki áhuga á að vera hluti þess.
Minni trú mín hræddi mig og það
gerðist skyndilega,“ sagði Storm í
viðtali við Guardian í desember.
Bókina skrifar Storm með tveim-
ur fréttamönnum CNN, Tim Lister
og Paul Cruickshank, og sann-
reyndu þeir frásagnir hans þó svo
ekki hafi verið hægt að sannreyna
samskipti hans við leyniþjónustur
víða um heim nema með upptökum
og meira efni sem Storm átti.
Bæði leyniþjónusta Breta, MI5,
og PET, öryggislögregla danska
ríkisins, höfðu reynt að fá Storm til
liðs við sig á þessum tíma án árang-
urs. En þegar leiðir Storms og fé-
laga skildi hafði hann samband við
MI5 og ævintýralegt tvöfalt líf
Storms hófst. Í bókinni lýsir hann
drykkjustundum með liðsmönnum
PET, regluóðum MI5-njósnurum og
hrokafullum og forríkum CIA-liðum.
Kom fram eftir að reynt
var að drepa hann
En samband hans við leyniþjón-
usturnar rofnaði í kjölfar dráps CIA
á Al-Awlaqi. Bifreið Awlaqis var
sprengd í loft upp í lok september
2011 í Jemen og vill Storm meina að
ástæðan fyrir því að CIA gat fylgst
jafn grannt með Awlaqi og raun ber
vitni sé USB-lykill sem hann kom
fyrir á skotmarkinu. Þeim Awlaqi
var ágætlega til vina en Storm hafði
komið á sambandi milli króatískrar
konu, Irenu Horek og Awlaqis, hún
hafði snúist til íslam og átti sér þann
draum heitastan að giftast skæru-
liða.
Storm krafði CIA um 5 milljónir
Bandaríkjadala, 660 milljónir króna,
sem honum hafði verið heitið fyrir að
aðstoða við drápið en var hafnað.
Hann segir að þeir hafi jafnvel reynt
að taka hann af lífi. Því ákvað hann
að koma fram opinberlega og segja
sína hlið á málinu. Á svipuðum tíma
rofnaði sambandið við bresku og
dönsku leyniþjónustuna. „Njósnarar
eru réttlausir, við erum einnota,“
segir Storm í samtali við AFP-
fréttastofuna er hann kynnti bók
sína í París í vikunni.
Að sögn Storms er PET engu
betri en CIA því þar á bæ hafi fjöl-
skylda vinar hans, sem lést í Sýr-
landi árið 2013, enn verið upplýst um
að hann lék tveimur skjöldum og
vann með PET. „Þetta dregur
kjarkinn úr öðrum njósnurum. Því
ef þú getur ekki treyst þinni eigin
ríkisstjórn – hverjum getur þú þá
treyst.“
AFP
Ævintýralegt lífshlaup Storm gaf
nýverið út bók um tvöfalt líf sitt.
Tvöfalt líf Storms tíundað
Morten Storm gekk til liðs við Bandidos, snerist til íslam,
barðist með al-Qaeda og gerðist njósnari PET, MI5 og CIA
Sautjánda Hátíð Havanavindlanna
er nú haldin í höfuðborg Kúbu. Að
þessu sinni er hátíðin tileinkuð eft-
irlætisvindlum Winstons Church-
ills, sem kenndir eru við Rómeó og
Júlíu, í tilefni af 50 ára ártíð hans.
Hátíð Havanavindlanna haldin í sautjánda sinn
AFP
Vindlum Churchills hampað
Óttast er um líf a.m.k. 220 kristinna
Assýríumanna sem vígamenn Ríkis
íslams, samtaka íslamista, rændu í
norðaustanverðu Sýrlandi í vikunni.
Flestir fanganna eru konur, börn og
öldungar.
Mannránin urðu til þess að skelf-
ingu lostnar kristnar fjölskyldur á
svæðinu flúðu frá heimkynnum sín-
um, að sögn mannréttindahreyfing-
ar sem berst fyrir réttindum krist-
inna Assýríumanna. Hreyfingin
segir að nær 1.000 fjölskyldur, eða
um 5.000 manns, hafi flúið frá þorp-
um í Hasakeh-héraði. Um 800
flóttamannanna séu í bænum Hasa-
keh og 150 í bæ Kúrda við landa-
mærin að Tyrklandi.
Osama Edward, framkvæmda-
stjóri Assýrísku mannréttindasam-
takanna, telur að vígamenn Ríkis
íslams hafi tekið fólkið í gíslingu
vegna loftárása sem Bandaríkjaher
hóf í september. „Þeir tóku þau í
gíslingu til að nota þau eins og
skildi til að komast hjá loftárásum,“
hefur fréttaveitan AFP eftir Edw-
ard.
Um 25 ára forritari
Breskir sérfræðingar í baráttunni
gegn íslömskum öfgasamtökum
nafngreindu í gær mann sem sást
lífláta vestræna gísla á myndskeið-
um sem íslamistasamtökin hafa sent
frá sér síðustu mánuði. Breskir fjöl-
miðlar hafa kallað manninn „Jíhadi
John“ en höfðu eftir sérfræðingun-
um í gær að hann héti Mohammed
Emwazi. Hann fæddist í Kúveit fyr-
ir um það bil 25 árum en ólst upp í
vesturhluta Lundúna eftir að fjöl-
skylda hans flutti þangað þegar
hann var sex ára. Emwazi er kom-
inn af millistéttarfólki og lauk námi
í forritun áður en hann fór til Sýr-
lands árið 2012. bogi@mbl.is
Um 220 manns
rænt í Sýrlandi
Illræmdur böðull nafngreindur
EPA
„Jíhadi John“ Emwazi fæddist í
Kúveit og ólst upp í Lundúnum.
Sjónvarpsmaðurinn Jimmy Savile
beitti 63 einstaklinga á Stoke
Mandeville-sjúkrahúsinu kynferðis-
legu ofbeldi, þ. á m. alvarlega veik
átta ára börn. Þetta kemur fram í
niðurstöðum rannsóknar á vegum
breska heilbrigðiskerfisins, NHS.
Savile hafði að því er virðist ótak-
markaðan aðgang að sjúklingum
stofnunarinnar vegna frægðar sinn-
ar.
Kvartanir ekki
teknar alvarlega
Þrátt fyrir að tíu kvartanir hefðu
verið lagðar fram vegna framferðis
hans allt frá 1972, var engin þeirra
tekin alvarlega né voru yfirmenn
látnir vita.
Meðal fórnarlamba Savile var átta
eða níu ára stúlka
sem sjónvarps-
maðurinn nauðg-
aði tíu sinnum.
Atvikin áttu sér
stað þegar stúlk-
an var í heimsókn
á sjúkrahúsinu,
en ættingjar
hennar unnu á
stofnuninni.
Milli 1972 og 1985 voru níu óform-
legar kvartanir lagðar fram gegn
Savile á sjúkrahúsinu og ein formleg
kvörtun. Engar þeirra voru teknar
alvarlega né var þeim komið áfram
til yfirmanna á sjúkrahúsinu. Þess
vegna var engum upplýsingum safn-
að um framferði Savile né gripið til
ráðstafana, segir í skýrslunni.
Savile beitti 63 kyn-
ferðislegu ofbeldi
Nauðgaði átta ára stúlku 10 sinnum
Jimmy Savile