Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Vinningstillaga í hönnunarsam-
keppni um gerð uppbyggingar- og
þróunaráætlunar Keflavíkur-
flugvallar til næstu 25 ára gerir ráð
fyrir stækkun flugstöðvarinnar til
norðurs og lagningu nýrrar norður-
suður flugbrautar vestan við flug-
völlinn í framtíðinni. Á næstu 25 ár-
um er því spáð að farþegafjöldi um
Leifsstöð muni tvöfaldast, eða fara
úr nærri 4 milljónum á ári í 8 millj-
ónir árið 2040. Tekur tillagan mið af
þessum spám.
Áætlunin ber vinnuheitið Master-
plan en það var norska hönn-
unarstofan Nordic - Office of Archi-
tecture sem bar sigur úr býtum í
samkeppninni, en alls bárust sex til-
lögur frá Noregi, Danmörku, Hol-
landi, Bretlandi og Spáni.
Vinningstillagan þótti skara fram
úr varðandi sjálfbærni og skipulags-
og umhverfismál auk þess sem skýr
stefna er sett í tekjusköpun á upp-
byggingartíma og rík áhersla er á
samráð við hagsmunaaðila og nær-
samfélag flugvallarins, segir í til-
kynningu frá Isavia.
Airport City við völlinn
Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir
uppbyggingu á fluggörðum eða flug-
vallaborg (Airport City) norðan við
núverandi flugstöð en slík svæði hafa
sem kunnugt er verið byggð upp í
kringum alla helstu alþjóðaflugvelli
heims. Á þessu svæði reiknar hönn-
unarstofan norska m.a. með bíla-
stæðahúsum, ráðstefnuhótelum,
skrifstofu- og þjónustubyggingum
og annarri tengdri starfsemi í far-
þega- og fraktflugi, auk þess sem út-
flutningsfyrirtæki gætu komið sér
upp aðstöðu á flugvallarsvæðinu.
Nordic - Office of Arthitecture hef-
ur haft með höndum mörg stór þró-
unarverkefni, s.s. stækkun flugvall-
anna í Ósló og Björgvin í Noregi og
Zuzhny í Rússlandi. Verkefnastjóri
tillögunnar er íslenskur arkitekt,
Hallgrímur Þór Sigurðsson, og þekk-
ir hann vel umhverfi Keflavík-
urflugvallar. Hann hefur starfað hjá
fyrirtækinu í þrjú ár en vann þar áð-
ur í 10 ár í Danmörku. Samstarfsaðili
Nordic í verkefninu er ráðgjafarfyr-
irtækið COWI A/S í Danmörku en
alls hafa 10-15 manns unnið að tillög-
unni.
Nordic mun á næstu mánuðum
vinna að frekari útfærslu á tillögum
sínum í samráði við Isavia og er
stefnt að því að fullmótaðri uppbygg-
ingar- og þróunaráætlun verði skilað
í september næstkomandi. Verður
hún unnin í nánu samráði við hags-
munaaðila flugvallarins og mun vera
leiðarljós í framtíðarskipulagi svæð-
isins, segir Isavia.
Hægt að byggja upp í áföngum
Hallgrímur Þór segir í samtali við
Morgunblaðið að tillaga þeirra sé
mjög sveigjanleg að því leyti að hægt
sé að stækka flugstöðina í nokkrum
mismunandi áföngum, allt eftir því
hvernig farþegafjöldinn þróist.
Í tillögunni er reiknað með tveim-
ur bílastæðahúsum, bæði fyrir
skammtíma- og langtímastæði. Að
sögn Hallgríms var óskað sér-
staklega eftir tillögum að fjölgun
skammtímastæða.
„Þetta er fyrst og fremst þróunar-
áætlun fyrir flugvöllinn og felur ekki
í sér nein bein byggingarverkefni á
þessu stigi. Þegar áætlunin hefur
verið fullmótuð í haust, og samþykkt
af öllum, þá yrði það væntanlega
næsta skref að ákveða í hvaða fram-
kvæmdir verður farið. Okkar tillaga
er nokkurs konar leiðsögn til að geta
þróað flugvöllinn í rétta átt,“ segir
Hallgrímur Þór.
Nýir tekjumöguleikar
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri
Isavia, var formaður valnefndar. Í til-
kynningu Isavia er eftirfarandi haft
eftir henni:
„Valnefnd var einróma í niður-
stöðu sinni og var sömuleiðis sam-
hljómur í álitsgjöf hagsmunaaðila um
vinningstillögu. Tillaga Nordic er vel
útfærð og uppfyllir kröfur í þeim
þáttum sem settir voru fram í sam-
keppnisgögnunum. Sett er fram
heildstæð áætlun í umhverfismálum
og gert ráð fyrir miklu og góðu sam-
ráði við hagsmunaaðila á öllum stig-
um skipulagsgerðarinnar. Þá er
hugsað fyrir því að nýir tekjumögu-
leikar opnist í hverjum fram-
kvæmdaáfanga og að tækifæri til
tekjuöflunar opnist um leið og af-
kastageta er aukin.“
Með Elínu í valnefnd voru Þröstur
V. Söring, framkvæmdastjóri Kefla-
víkurflugvallar, Guðmundur Daði
Rúnarsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar,
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, for-
stjóri Skipulagsstofnunar, og Kjell-
Arne Sakshaug, forstöðumaður
skrifstofu þróunar og skipulags á
Óslóarflugvelli.
Sýning á tillögunum sex hefur ver-
ið sett upp á skrifstofum Isavia á
þriðju hæð í Leifsstöð og verður hún
opin almenningi kl. 9-16 alla virka
daga til 20. mars næstkomandi.
Önnur fyrirtæki sem þátt tóku í
samkeppninni voru INECO Inge-
nierta Y Economia del Transporte
SA á Spáni, Ramboll A/S í Dan-
mörku, Naco Netherlands Airport
Consultants í Hollandi, EC Harris
LLP í Bretlandi og Mott MacDonald
LTD í Bretlandi.
Samsett mynd/Nordic-Office of Architecture
Keflavíkurflugvöllur Svona gæti flugstöðin og næsta umhverfi litið út í framtíðinni. Eins og sjá má er m.a. gert ráð fyrir að völlurinn taki við mun fleiri flugvélum en í dag.
Möguleg framtíð í Leifsstöð
Norsk hönnunarstofa bar sigur úr býtum í samkeppni um uppbyggingu Keflavíkurflugvallar til
næstu 25 ára Flugstöðin stækkuð til norðurs Farþegafjöldi gæti verið kominn í 8 milljónir 2040
Samsett mynd/Nordic-Office of Architecture
Airport City Vinningstillagan gerir ráð fyrir fjölda bygginga við flugstöð-
ina, s.s. hótelum, bílastæðahúsum og ýmsum skrifstofubyggingum.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Samkeppni Fulltrúar úr valnefnd og frá Nordic-hönnunarstofunni. Elín
Árnadóttir er fyrir miðju og Hallgrímur Þór Sigurðsson annar frá hægri.