Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Alls tóku 7.103 borgarbúar þátt í
rafrænum íbúakosningunum Betri
hverfi 2015 í Reykjavík, þ.e. 7,3%
og hækkar úr 5,7% árið 2014 þegar
fjöldi þátttakenda var 5.272.
Talsvert fleiri konur en karlar
tóku þátt í kosningunum en hlutfall
kvenna sem kaus var 56% á móti
44% karla og var mynstrið svipað í
öllum hverfum borgarinnar.
Kosningaþátttaka var mest í
Grafarholti og Úlfarsárdal, eða
9,1%, en næstmest í Vesturbæ, Hlíð-
um og Laugardal en í þeim hverf-
um tóku 8% íbúa þátt. Minnst var
kosningaþátttakan í Breiðholti þar
sem 5,7% tók þátt.
Alls voru 107 hugmyndir að
verkefnum í hverfum borgarinnar
kosnar. Sum verkefnin eru lítil en
önnur stærri og kostnaðarsamari.
Hugmyndirnar að verkefnunum
koma frá borgarbúum. Reykjavík-
urborg skuldbindur sig til að fram-
kvæma kosin verkefni.
Rafræn
íbúakosn-
ing vinsælli
Fleiri konur en
karlar þátttakendur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kosning Kosningaþátttakan var
mest í Grafarholti og Úlfarsárdal.
Lagt var til á fundi borgarráðs í gær
að hætt verði við þrengingu Grens-
ásvegar á milli Miklubrautar og Bú-
staðavegar en áætlaður kostnaður
við framkvæmdina er 160 milljónir
króna. Kemur þetta fram í tilkynn-
ingu frá Sjálfstæðisflokknum sem
lagði fram tillöguna í kjölfar þess að
samþykkt var á fundi umhverfis- og
skipulagsráðs í fyrradag að leggja til
við borgarráð að setja 150 milljónir
krónur umfram fjárhagsáætlun í
malbiksviðgerðir vegna þess hve
malbik á götum borgarinnar er illa
farið. „Við erum að leggja til hvernig
megi klára þetta mál og leysa það
með einhverjum hætti,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
Fram kemur í tilkynningunni að
umhverfis- og skipulagsráð hafi ekki
lagt til með hvaða hætti spara mætti
á móti þessu aukaframlagi. „Þessir
peningar eru ekki teknir af trján-
um,“ segir Júlíus og bætir við að
ágætt sé að hætt verði við þrengingu
Grensásvegar þar sem sú aðgerð
hafi í raun engan tilgang annan en
þann að tefja flæði umferðar. „Við
höfum bent á margar aðrar leiðir til
að tryggja öryggi vegfarenda. Gatan
er sem betur fer ekki hættuleg og
slys eru mjög fátíð,“ segir Júlíus.
„Mikilvægt er hins vegar að fara í
malbiksviðgerðir á götum borgar-
innar þar sem lélegt viðhald gatna er
að valda fjárhagslegu tjóni og skapar
hættu í umferðinni,“ segir Júlíus.
Málinu var frestað í borgarráði.
Hætt verði við þrengingu Grensásvegar
Morgunblaðið/Ómar
Skemmdir Mikil þörf er á malbiksviðgerðum á götum borgarinnar.
Tillaga Sjálfstæðisflokks til að fjármagna malbiksviðgerðir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur á undanförnum vikum hand-
tekið á annan tug manna og lagt
hald á talsvert af fíkniefnum í að-
gerðum sem beinast gegn sölu
fíkniefna á samfélagsmiðlum.
Við húsleitir í umdæminu tók
lögreglan í sína vörslu kókaín, LSD
og um 200 g af amfetamíni, auk
kannabisefna sem var að finna á
allmörgum stöðum. Enn fremur
var lagt hald á peninga, sem taldir
eru vera til komnir vegna fíkni-
efnasölu.
Í hópi hinna handteknu eru að-
allega karlar á þrítugsaldri, en ein
kona var handtekin í aðgerðunum.
Flest málanna teljast upplýst.
Að mati lögreglu er umfang
fíkniefnasölu á samfélagsmiðlum
verulegt, en aðgerðunum verður
framhaldið. Þess má geta að all-
nokkrum Facebook-síðum, sem
hafa boðið fíkniefni til sölu, hefur
verið lokað.
Handteknir
fyrir dópsölu
á Facebook
1360 Ísland
RÓTARÝ
DAGURINN
VÖRPUM LJÓSI Á RÓTARY
LAUGARDAGINN 28. FEBRÚAR 2015
WWW.ROTARY.IS |DAGSKRÁ:
REYKJANESBÆR:
Rótarýklúbbur Keflavíkur
Duushús kl. 14-16
HAFNARFJÖRÐUR:
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar
Rótarýklúbburinn Straumur
Fjörður kl. 13-15, Bæjarbíó kl. 13-15,
Sívertsenshús kl. 13-15
GARÐABÆR:
Rótarýklúbburinn Görðum
Kl. 12-14 Hagkaupum, Ísbúðinni,
Ísafold, Toyota, Ásgarði og Álftaneslaug.
KÓPAVOGUR:
Rótarýklúbbur Kópavogs
Rótarýklúbburinn Borgir
Rótarýklúbburinn Þinghóll
Smáralind kl. 12-17
SELTJARNARNES:
Rótarýklúbbur Seltjarnarness
Hagkaup Eiðistorgi kl. 11-13.
REYKJAVÍK:
Rótarýklúbburinn Reykjavík - Grafarvogur
Rimaskóli kl. 13-15.30
Rótarýklúbbur Reykjavíkur
Sóltún – hjúkrunarheimili kl. 14.30.
MOSFELLSBÆR:
Rótarýklúbbur Mosfellssveitar
Krónan og í Kjarna kl. 12-13.30
AKRANES:
Rótarýklúbbur Akraness
Við rætur Akrafjalls kl. 10.30
BORGARNES:
Rótarýklúbbur Borgarness
Hjálmaklettur kl. 14.
SAUÐÁRKRÓKUR:
Rótarýklúbbur Sauðárkróks
Kaffi Krókur kl. 13 (ganga) og kl. 14.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Rótarýklúbburinn Ólafsfirði
Tjarnarborg kl. 19.30
NESKAUPSTAÐUR:
Rótarýklúbbur Neskaupstaðar
Fjórðungssjúkrahúsið kl. 14.30-16
EGILSSTAÐIR:
Rótarýklúbbur Héraðsbúa
Bókakaffi Fellabæ kl. 16-18
SELFOSS:
Rótarýklúbbur Selfoss
Krónan og Bónus kl. 13-16