Morgunblaðið - 27.02.2015, Side 59
Kipptu liðunum í lagmeðOmega3 liðamíni
• Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
• Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi
vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum.
• Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt
höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt.
SKJÓTARI EN
SKUGGINN
www.lidamin.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
Verkið Listamaðurinn Sigurður Kr. Árnason við málverkið af meisturunum.
Háskóladagurinn verður haldinn í
sjö skólum á landinu: Í Háskól-
anum á Akureyri, Háskólanum á
Bifröst, Háskólanum á Hólum, Há-
skólanum í Reykjavík, Háskóla Ís-
lands, Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og Listaháskóla Íslands.
Nálgast má dagskrá skólanna allra
á vefsíðunni www.haskoladag-
urinn.is þar sem einnig má skoða
myndir frá undirbúningi nemenda
og kennara í hinum ýmsu skólum
fyrir daginn. Undirbúningurinn
hefur staðið yfir í töluverðan tíma enda viðburðurinn stór og alla jafna vel
sóttur af þeim fjölmörgu sem vilja kynna sér nám á háskólastigi.
Haldinn á sjö stöðum
HÁSKÓLADAGURINN 2015
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugasamar Þær Viðja Karen Júlíusdóttir og Sólveig Erla Oddsdóttir munu svara spurningum gesta um námið
og námsframboðið á morgun. Sólveig er á þriðja ári í lögfræði og Viðja er á þriðja ári í heilbrigðisverkfræði.
stefndi á verkfræðina. Ég hugsaði
með mér að það hlyti að vera mest
spennandi starf í heimi að fá að vinna
með tölur og líffræði í bland þannig
að ég gæti hjálpað fólki á einhvern
hátt. Í heilbrigðisverkfræðinni bland-
ast þessir þættir,“ segir Viðja Karen
Júlíusdóttir, nemi í heilbrigðisverk-
fræði.
Sólveig Erla Oddsdóttir er nemi
á þriðja ári í lögfræði og er ein þeirra
sem svara munu spurningum áhuga-
samra um deildina á Háskóladaginn.
Sólveig útskrifaðist úr Verzl-
unarskóla Íslands og var ákveðin í
því að Háskólinn í Reykjavík yrði fyr-
ir valinu. Hún segist ekki sjá eftir
þeirri ákvörðun. „Það sem heillaði
mig var skipulagið, hópavinnan og
aðgengi nemenda að kennurum. Það
skiptir mig miklu máli að geta verið í
góðu sambandi við kennarana og
fengið skjót svör frá þeim þegar á
þarf að halda.“ Auk þess segir hún
það kost að hópurinn sem er á hennar
ári er ekki of fjölmennur en þau eru
tæplega fimmtíu talsins. „Ég hugsaði
ekkert um það þegar ég valdi HR að
hér ætti ég eftir að verða hluti af nán-
um hópi nemenda og grunaði ekki að
í skólanum ætti eftir að myndast vin-
skapur sem á eftir að endast til fram-
tíðar,“ segir Sólveig.
Snertir alla fleti
Eflaust mun Sólveig, rétt eins og
Viðja og aðrir sem kynna munu
námsframboð skólans á laugardaginn
fá spurningar um það hvernig hún
tók ákvörðun um námsleið. „Lög-
fræðin er einstakalega góður grunn-
ur fyrir svo margt og snertir í raun
alla fleti samfélagsins. Sjálf ætla ég
að nýta námið í fyrirtækjarekstur
með fjölskyldu minni og hef lært
mjög margt sem á eftir að koma að
góðum notum þar, eins og skattarétt-
ur, fjármunaréttur og fleira,“ segir
Sólveig Erla Oddsdóttir, nemi á
þriðja ári í lögfræði.
Hver deild innan skólans verður
með kynningarbása í alrými skólans,
Sólinni, en auk þess kynnir hver deild
í sínum stofum. Til dæmis verður
hægt að skoða námskrá næsta skóla-
árs í stofum lögfræðinnar.
Lego og aðrir töfrar
Ómögulegt væri að gera allri
dagskrá skil hér og eru áhugasamir
eindregið hvattir til að kynna sér vef-
slóðina sem kynnt er hér í ramma til
hliðar. Hins vegar er ærin ástæða til
að koma inn á hvað gert verðu fyrir
yngri kynslóðina sem er kannski ekki
á leiðinni á háskólanám alveg strax. Á
Háskóladeginum verður nefnilega
boðið upp á námskeið fyrir börn og
unglinga í Lego og töfrum vefhönn-
unar. Lego námskeiðið er fyrir 6-12
ára börn og þar verður til dæmis
kennt hvernig nota á tannhjól, gírun,
mótora og fleira og fá allir aðstoð við
að skapa sín eigin módel. Námskeiðin
verða klukkan 12, 13 og 15 og geta
áhugasamir skráð sig í móttöku Há-
skólans í Reykjavík.
Þeir unglingar sem vilja fá létta
kynningu á skapandi heimi vefhönn-
unar og þeim tækifærum sem felast í
forritun og tækni býðst að taka þátt í
opinni vinnustofu Skema og /sys/tra,
félags kvenna við tölvunarfræðideild
HR. Þar verður sérstök áhersla lögð
á gerð hreyfimynda og einfaldra
tölvuleikja auk þess sem kynning
verður á vefhönnun með HTML og
CSS. Námskeiðið er ætlað þeim sem
eru á aldrinum 15-20 ára.
Á höfuðborgarsvæðinu hafa há-
skólarnir tekið höndum saman og
bjóða upp á fríar rútuferðir á Há-
skóladeginum á milli Háskóla Ís-
lands, Háskólans í Reykjavík og
Listaháskóla Íslands.
Það er stórt skref að kaupa sína
fyrstu íbúð. Jafnvel svo stórt að það
getur valdið taugaáfalli. Það er að
minnsta kosti þannig sem ég hef
upplifað íbúðakaup síðustu vikurnar.
Fyrir einum og hálfum mánuði
sátum við unnusta mín yfir fast-
eignavefnum á mbl.is þegar við
sáum hina fullkomnu íbúð. Við ætl-
uðum okkur ekki að kaupa strax, en
fannst samt sem áður gaman að
skoða fasteignir. Umrædd fasteign
var nýuppgerð, þriggja herbergja
íbúð í Vesturbænum, og við féllum
fyrir henni strax. Án þess að hugsa
okkur um hringdum við í fasteigna-
salann og fengum að koma sama dag
og skoða hana.
Það mátti heyra englasöng þegar
við gengum inn í íbúðina: hún var
jafnvel fullkomnari en við héldum.
Áður en við vissum af vorum við
búnar að gera tilboð í hana, og viti
menn; því var tekið. Við tók sólar-
hringur af taugaveiklunarhlátri í
bland við mikið stress – og hausverk
yfir því hvernig við ættum nú að
geta borgað blessaða íbúðina. Við
höfðum þó búið í hálft ár í íbúð þar
sem við borguðum ekki leigu, og
höfðum því náð að skrapa
ágætlega saman fyrir
innborgun. Eftir að
hafa skoðað málin
gaumgæfilega fórum
við rakleiðis í bank-
ann og gerðum okkar
besta til að sannfæra
þjónustufulltrúann
um það að við værum
ábyrgar og hæfar til
þess að taka lán.
Greiðslumat var sett
af stað, og við tók
bið eftir niður-
stöðum í þrjá langa
daga. Það er óhætt
að segja að svefninn og
matmálstímarnir hafi
raskast rækilega þessa
þrjá daga og var biðin
við símann farin að vera
óbærileg. Loksins feng-
um við að vita að við
hefðum staðist
greiðslumatið, en þá
tók ekki við minna
stress. Við þurftum að
hella okkur út í stærstu
lánasúpu lífs okkar. Okk-
ur var ráðlagt að taka
blandað lán, auk þess sem
við fengum lán vegna
fyrstu kaupa hjá bankanum, og
skyndilega vorum við búnar að
skrifa undir samtals fimm lán. Fimm
lán!
Til að kóróna þetta allt saman
urðum við nú líka að fá okkur kredit-
kort með ansi hárri heimild, svo við
gætum keypt okkur húsgögn í nýju
íbúðina. Nota bene: við erum konur
sem hafa aldrei átt kreditkort, né
neinar skuldir. Þið getið ímyndað
ykkur viðbrigðin.
Næstu vikurnar þeyttumst við um
bæinn og keyptum hin ýmsu hús-
göng á raðgreiðslum. Við erum þó
ekki óábyrgari en það að við borg-
uðum eins mikið inn á og við gátum,
og reyndum að lágmarka skuldirnar.
„Þetta er það sem fylgir því að
kaupa sína fyrstu íbúð,“
sagði eldra og vitrara
fólkið í kringum okkur
og við kyngdum því.
Ef allt gengur eftir
fáum við íbúðina af-
henta um helgina, og
byrjum að borga af
lánunum á sama
tíma. Ég veit ekki
hvort við höfum
gert stærstu mis-
tök lífs okkar, eða
tekið bestu
ákvörðun sem við
munum nokkurn
tímann taka, en
hvort heldur sem
er þá erum við
hoppandi kátar og
teljum niður mín-
úturnar þar til við
flytjum inn í okkar
eigin íbúð. Ef allt
fer fjandans til, þá
vonum við bara að
við fáum skuldaleið-
réttingu eftir nokkur
ár. Nei, ég segi nú bara
svona.
»„Þetta er það semfylgir því að kaupa
sína fyrstu íbúð,“ sagði
eldra og vitrara fólkið í
kringum okkur og við
kyngdum því.
HeimurIngileifar
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
DAGLEGT LÍF 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015