Morgunblaðið - 27.02.2015, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 27.02.2015, Qupperneq 60
60 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015 VERTU VAKANDI! blattafram.is 84% tilvika flokkast sem gróft eða mjög gróft kynferðislegt ofbeldi. Undirþrýstingur í miðeyra með vökva. Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru, miðeyrað opið og engin vökvi. Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting í miðeyra. Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið frá miðeyra. Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun, ástungumog rörísetningum. Læknar mæla með Otovent. Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra, skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við flug, sundferðir eða köfun. Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna. Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt. Fæst í apótekum Fyrsta hjálp til að laga og fyrirbyggja eyrnabólgur Viðurkennd meðferð Umboð Celsus ehf Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Flottar vorvörur Str. 38-50 Kr. 15.900 kjóll Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Á fundi byggingafulltrúa Reykja- víkurborgar á þriðjudag var tekin fyrir fyrirspurn frá Knattspyrnu- félaginu Val um það hvort leyft yrði að byggja fjögurra hæða hús með atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur íbúðarhæðum á lóð nr. 4 við Hlíð- arenda. Afgreiðslu málsins var frestað, samkvæmt fundargerð og málinu vísað til umsagnar skipu- lagsfulltrúa. Brynjar Harðarson, fram- kvæmdastjóri Valsmanna ehf. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þessi byggingaráform Knattspyrnu- félagsins Vals væru óviðkom- andi bygging- aráformum Vals- manna ehf. á öðrum reitum Hlíðarenda. „Þessi reitur B er í eigu Knatt- spyrnufélagsins Vals og því sendi félagið inn þessa fyrirspurn. Þetta er þó ekki þannig, að félagið sjálft ætli að ráðast í byggingarfram- kvæmdir á reitnum, heldur yrði það mál í höndum Hlíðarenda SES,“ sagði Brynjar. Kostar tæpa 1,6 milljarða „Lóðin er á landi Vals og félagið er með áform um að reisa þarna 4.500 fermetra hús, atvinnuhúsnæði á neðstu hæðinni og þrjár íbúð- arhæðir. Nú hafa þeir skilað inn forteikningum og svo fer málið til umhverfis- og skipulagssviðs og svo framvegis,“ sagði Brynjar. Miðað við að byggingarkostnaður á hvern fermetra sé um 350 þúsund krónur, væri kostnaðurinn við byggingu Valsmanna 1,575 milljarðar króna. Brynjar telur, að fái áform Vals- manna jákvæða afgreiðslu í borg- arkerfinu, geti framkvæmdirnar, sem væntanlega verði stýrt af Hlíð- arenda SES, hafist um svipað leyti og framkvæmdir Valsmanna ehf. á Hlíðarendareitnum. Framkvæmd- irnar verði með öðrum orðum ekki í höndum Knattspyrnufélagsins Vals. Styðja Val og byggja upp Sjálfseignarstofnunin Hlíðarendi SES var stofnuð í september 2013 af Knattspyrnufélaginu Val og hef- ur stofnunin þann tilgang að vernda eignir knattspyrnufélagsins og tryggja að þær séu ekki veðsettar eða á einhvern hátt skuldsettar. Fer stofnunin með hlutafjáreign Knatt- spyrnufélagsins Vals í Valsmönnum hf., líkt og fram kom í Morg- unblaðinu í fyrra. „Afraksturinn sem verður af starfsemi sjálfseignarstofnunar- innar Hlíðarendi er svo hugsaður til þess að styðja Val og byggja upp til framtíðar,“ sagði Brynjar Harð- arson. Valur Fái Knattspyrnufélagið Valur leyfi til þess að byggja 4.500 fermetra hús á B-reit Hlíðarendasvæðisins myndi byggingin kosta um 1,6 milljarða. Valur vill leyfi til að byggja 4.500 fermetra hús á B-reit  Áformin óviðkomandi byggingaráformum Valsmanna ehf. á Hlíðarenda Brynjar Harðarson „Ljóst er að ef ekkert gengur og fundirnir, hver á eftir öðrum, verða árangurslitlir þá skoða menn þá möguleika sem eru í stöðunni. Við þurfum að þrýsta á það sem við leggj- um fram með einhverjum aðgerðum,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins (SGS), um komandi kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins (SA). Sáttafundur er boðaður í deilunni í dag. „Okkar helsta markmið er að hækka lægstu launin í 300. þús. kr. innan þriggja ára,“ segir Björn og bætir við að leitað verði almennilegra svara um hvort hægt verði að ná sam- an, á fundi félaganna í dag. Í leiðara nýs fréttabréfs SA í gær segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA, árangur kjara- samninga síðasta árs sé betri en vonir stóðu til. Kaupmáttur hjóna með meðaltekjur hefði aukist um 450 þús- und krónur á ári sem samsvari rúm- lega þriggja mánaða matarútgjöldum meðalheimilis. Kaupmáttur launa hafi aukist um 5% á síðasta ári, sem sé mesta aukning kaupmáttar á einu ári á Íslandi samhliða efnahagslegum stöðugleika. Þorsteinn segir að auk- inn kaupmáttur launa og efnahags- legur stöðugleiki sé samtvinnað markmið. „Ef allir vinna að því mark- miði verður hag heimilanna best borgið.“ SGS mun íhuga að- gerðir  Kaupmáttur hjóna jókst um 450 þúsund
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.