Morgunblaðið - 27.02.2015, Síða 61
FRÉTTIR 61Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Kauptúni 3, 210 Garðabær | S. 771 3800 | Opið: mán.-fös. kl. 12-18, lau. 12-16 og sun. 13-16 | www.signature.is
Exo borðstofuborð stækkanlegt
160 (200)x90 sm eik, 6 stk. Boston
borðstofustólar með brúnu textíl-leðri
og burstuðum stálfótum.
Fullt verð kr. 199.300
Tilboðsverð kr. 119.990
Exo borðstofuborð stækkanlegt 160
(200)x90 sm svart, 6 stk. borðstofu-
stólar S130 með svörtu textíl-leðri og
krómuðum stálfótum.
Fullt verð kr. 187.300
Tilboðsverð kr. 119.990
Glæsileg ný lína af exo borðstofuhúsgögnum
á frábæru verði!
Veður víða um heim 26.2., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -3 alskýjað
Akureyri -1 skýjað
Nuuk -12 skafrenningur
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 5 heiðskírt
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki 1 alskýjað
Lúxemborg 6 skúrir
Brussel 8 skýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 2 alskýjað
London 8 skýjað
París 11 alskýjað
Amsterdam 7 súld
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 6 skýjað
Moskva 2 skýjað
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -25 heiðskírt
Montreal -15 léttskýjað
New York -5 alskýjað
Chicago -7 snjókoma
Orlando 21 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:43 18:39
ÍSAFJÖRÐUR 8:54 18:38
SIGLUFJÖRÐUR 8:37 18:20
DJÚPIVOGUR 8:14 18:07
Af einhverjum ástæðum er Ís-land enn umsóknarríki um að-
ild að Evrópusambandinu. Enginn
skilur hvers vegna, þegar til þess er
horft að aðildarumsóknin var knúin
í gegn með bellibrögðum og ósann-
indum og þegar haft er í huga að Ís-
lendingar vilja alls ekki að landið
gangi í ESB.
Ekki síður þegar litið er til þessað núverandi stjórnarflokkar
og ríkisstjórn hafa lýst eindregnum
vilja til að draga aðildarumsóknina
til baka.
Ennfremur með það í huga aðandstaðan við aðild er sér-
staklega mikil á meðal stuðnings-
manna núverandi stjórnarflokka.
En það má líka líta út fyrir land-steinana og undrast að um-
sóknin sé enn látin liggja miðað við
ástandið þar.
Evran er búin að valda Evrópu-sambandinu miklum vanda
sem alls ekki sér fyrir endann á.
Og trú íbúa Evrópusambandsinsá sambandinu er ekki meiri en
svo að einungis 27% Ítala treysta
sambandinu, 40% Spánverja, 53%
Þjóðverja og 28% Breta, að því er
Evrópuvaktin hefur eftir La Repub-
blica.
Ísland á ekkert erindi í ESB. Umþað vitnar ástandið í ESB og
vilji íslensku þjóðarinnar.
Samt er Ísland af óútskýrðumástæðum enn umsóknarríki.
Óskiljanlegt
STAKSTEINAR
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminja-
vörður, segir að engin ákvörðun hafi
verið tekin um hvaða listaverk verði
flutt á lóðina fyrir
framan Safnahús-
ið við Hverfisgötu
í Reykjavík eða
hvort eitthvert
listaverk verður
yfirhöfuð flutt
þangað. Til greina
geti komið að gert
verði nýtt lista-
verk sem verði
komið fyrir á lóð
Safnahússins.
„Það var ekki tímabært að fjalla
um málið í menningar- og ferðamála-
ráði, vegna þess að Þjóðminjasafnið,
sem fer með ábyrgð hússins og lóð-
arinnar, var ekki búið að senda neitt
erindi til borgarinnar,“ sagði Margrét
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Fyrr í mánuðinum greindi Morg-
unblaðið frá því, að meirihluti menn-
ingar- og ferðamálaráðs Reykjavík-
urborgar hefði fallist á tillögu
Hafþórs Yngvasonar, safnstjóra
Listasafns Reykjavíkur, um að lista-
verkið Holan, eftir Ásmund Ás-
mundsson, yrði flutt á lóðina í tilefni
nýrrar grunnsýningar á sjónrænum
menningararfi. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, þau Júlíus Vífill Ingvarsson
og Marta Guðjónsdóttir, greiddu at-
kvæði gegn tillögunni.
Margrét sagði ennfremur: „Þjóð-
minjasafnið ber ábyrgð á Safnahús-
inu, sem heyrir til forsætisráðuneyt-
isins. Það liggur fyrir erindi frá
Þjóðminjasafninu í forsætisráðuneyt-
inu um málið. Þar að auki þarf að fara
með málið fyrir Listskreytingasjóð og
Minjastofnun Íslands þar sem Safna-
húsið er friðað. Þetta er því ekki mál,
sem höndum verður kastað til, við
ákvarðanatöku.
Það á eftir að ákveða hvort eitt-
hvert listaverk verður flutt á lóðina,
eða hvort það verður hreinlega búið
til nýtt listaverk. Þetta á eftir að
ákveða í fullu samráði við forsætis-
ráðuneytið.“
Á ábyrgð Þjóðminjasafnsins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Safnahúsið Húsið er friðað og á ábyrgð Þjóðminjasafnsins. Fullt samráð
þarf að hafa við Minjastofnun um hvers konar breytingar.
Margrét
Hallgrímsdóttir
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður segir að til greina komi að gera nýtt
listaverk sem komið verði fyrir á lóð Safnahússins Ekkert hefur verið ákveðið
Greiðslukortavelta erlendra ferða-
manna í janúar sýnir að erlendir
gestir eyddu um 9% meira í janúar
en í desembermánuði á undan skv.
athugun Rannsóknaseturs versl-
unarinnar. Sú grein ferðaþjónust-
unnar sem bar mest úr býtum í jan-
úar er sú sem bauð skipulegar
ferðir, skoðunarferðir o.fl.
„Erlendir ferðamenn greiddu
með kortum sínum liðlega 2 millj-
arða króna fyrir slíkar ferðir sem
er 71% aukning frá janúar í fyrra.
Greiðslukortavelta erlendra
ferðamanna hér á landi var alls 7,2
milljarðar kr. í janúar sem er 32,5%
hærri upphæð en í sama mánuði í
fyrra. Af einstökum útgjaldaliðum
má nefna að um 50% aukning var í
veltu bílaleiga í mánuðinum frá því
í fyrra og yfir þriðjungsaukning
var í veltu hótela- og gistihúsa,“
segir í frétt. Erlend kortavelta í
verslunum jókst um nær 20% frá
janúar í fyrra.
Eyddu 9% meira í
janúar en desember