Morgunblaðið - 27.02.2015, Page 65

Morgunblaðið - 27.02.2015, Page 65
FRÉTTIR 65Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015 Atli Vigfússon Laxamýri „Það er alltaf gaman að hafa ali- endur, auk þess sem eggin þeirra eru mjög góð. Ég er lengi búinn að búa með þær og yfir veturinn læt ég þær út hvernig sem viðrar því þær kunna mjög vel við að viðra sig.“ Þetta segir Jóhannes Jónsson bóndi í Heiðarbót í Reykjahverfi sem er með u.þ.b. 30 alilendur og þessa dagana eru ungarnir frá því í sumar að byrja að verpa svo það er nóg til af andareggjum, en þau eru eftirsótt vara, bæði í bakstur og til matar. Jóhannes hefur reynslu af andabúskap frá því hann var strákur á Húsavík, en eftir að hann hóf búskap á bænum Heið- arbót fjölgaði öndunum, enda góð aðstaða þar og stutt að fara í vatn þar sem þær geta baðað sig í ánni sem rennur rétt við bæjarhúsin. „Á þessum árstíma læt ég þær inn á hverju kvöldi og það er mjög auðvelt að reka þær. Oftast eru þær hér við húsin yfir daginn og njóta útivistarinnar. Stundum getur verið erfitt að ná þeim af ánni þegar þær fara þangað sem þær geta þegar er snjólétt. Hund- arnir hjálpa mér stundum og eru þeir mjög duglegir að synda til þeirra og ná þeim saman. Það er enginn vandi að temja hundana við að reka endurnar rétt eins og kindurnar,“ segir Jóhannes, en í Heiðarbót eru þrír Border Collie- hundar. Andahúsið hjá Jóhannesi er mjög vistlegt og undir þær ber hann sag og kurl til þess að hafa sem þurrast hjá þeim. Þá eru þar mörg hreiður, en á hverjum morgni verpa þær einu eggi hver og miðað við stærð eru þetta mjög miklir afurðafuglar. Þegar þær hafa lokið varpi fara þær út og fyrir það haldast þær hreinar og fínar í fiðrinu sem skiptir þær miklu til þess að líða vel. Þær fá mikið af brauði og öðru fóðri og eru vel í holdum þó þær séu úti við á köldum dögum. Yfir sumarið unga þær mikið út og stundum getur verið erfitt að finna þær þar sem þær hafa lag á að komar á staði þar sem hægt er að vera í felum. Endurnar í Heiðarbót eru í mörgum litum og eru mikil prýði á bænum. Jóhannes segir að það þurfi að fara að stækka andahúsið því hann tími aldrei að fella gömlu, fallegu kollurnar sem hann heldur svo mikið upp á. Lík- lega verður þetta stórbú þegar fram í sækir. Aliendurnar una sér vel úti  Jóhannes Jónsson bóndi í Heiðarbót í Reykjahverfi er vanur andarækt  Hundarnir á bænum tamdir til að reka endurnar rétt eins og kindur Morgunblaðið/Atli Vigfússon Una sér vel Jóhannes Jónsson í Heiðarbót með andahópinn. Fuglarnir fara út á daginn hvernig sem viðrar. Litríkar Endurnar í Heiðarbót eru í mörgum litum og mikil prýði á bænum. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Uppbygging á Grandasvæði við Reykjavíkurhöfn hefur verið hröð á undanförnum árum. Um 200 fyr- irtæki eru á svæðinu og með tilkomu Hvalasafnsins eru nú þrjú söfn á Granda auk þess sem þar hefur sprottið upp fjöldi veitinga- og kaffi- húsa auk verslana. Til viðbótar eru nú tveir reitir í gömlu verbúðunum í Grandagarði 19 og 29 sem ætlaðir eru undir verslanir eða þjónustu. Að sögn Gísla Gíslasonar, fram- kvæmdastjóra Faxaflóahafna, bár- ust hátt í 50 umsóknir um að hefja þar starfsemi og segir hann að í næstu viku verði ákveðið hvers kon- ar starfsemi verði fengin á svæðið. „Við horfum til verslunar og lítum til þess að menn séu með rekstar- reynslu. Eins viljum við auka fjöl- breytnina á svæðinu. Við fengum mjög fjölbreyttar umsóknir og margs konar rekstur sem fólk hefur áhuga á að hefja þarna,“ segir Gísli. Fyrirmyndin erlendis frá Að sögn hans er fyrirmyndin af uppbyggingu ólíkra rekstraraðila fengin erlendis frá og finnur hann þegar fyrir auknum áhuga ferða- manna á svæðnu. „Það er vel þekkt í mörgum höfnum erlendis að verið sé að endurlífga svæði í grennd við hafnir. Segja má að það hafi tekist sums staðar vel en annars staðar ekki. Við erum að reyna að gera þetta með hliðsjón af íslenskum að- stæðum. Það er ekkert leyndarmál að við höfum leitast eftir því að auka þjónustuna nær höfninni og gefa þannig almenningi tækifæri á því að upplifa hafnarsvæðin,“segir Gísli. Þrjú söfn á litlu svæði Tíu veitinga- og kaffihús eru á Granda ef ísbúðin Valdís er talin með. Gísli segir kúnst að ákvarða uppbygg- inguna og raða í réttan kokkteil. „Sums staðar er starfsemi í sjáv- arútvegsfyrirtækjum og útgerð en önnur svæði henta betur undir sókn almennings. Sjá má uppbyggingu þjónustu við verbúðirnar á Geirsgötu og þessu svæði safna, veitingahúsa og verslana sem er á Grandagarðinum og hluta Mýrargötusvæðis,“ segir Gísli. Frá og með deginum í dag gefst almenningi kostur á að heimsækja Hvalasafn sem hefur hafið starfsemi á Fiskislóð 18. Þar með eru þrjú söfn komin á þennan tiltölulega litla reit sem Grandasvæðið er. Auk Hvalasafnsins er Sjóminjasafnið í Grandagarði 8 og Sögusafnið við Grandagarð 2. Gísli segir ekki úti- lokað að bæta fleiri söfnum á svæð- ið. „ Þetta er skemmtilegur kokteill og söfn lífga upp á umhverfið og minna okkur á skemmtilega hluti. Eins má nefna að í nokkrum út- gerðafyrirtækjanna þar leynast sögufrægir gripir, þannig að á hafn- arsvæðinu og sérstaklega Örfirisey luma menn á ýmsum sprotum sem aldrei er að vita nema spíri frekar,“ segir Gísli. Kúnst að raða í réttan kokkteil  Uppbygging á Grandasvæði þegar leitt til aukins áhuga ferðamanna á svæðinu  Tíu veitinga- og kaffihús og þrjú söfn  Uppbygging hafnarsvæða sums staðar tekist vel en annars staðar ekki Söfn, veitinga- og kaffihús á Grandasvæði Sjóminjasafnið Grandagarði 8 Sögusafnið Grandagarði 2 Hvalasafn Fiskislóð 18 Texasborgarar Grandagarði 11 Sjanghæ Grandagarði 9 Matur og drykkur Grandagarði 2 Kaffivagninn Grandagarði 10 Café Retro Grandagarði 14 Ópnað kaffihús í Sjávarklasanum Grandagarði 14 Valdís Grandagarði 21 The Coocoo’s Nest Grandagarði 23 Grandakaffi Grandagarði 101 Víkin kaffihús Grandagarði 8 Morgunblaðið/Styrmir Kári Grandi Aukið mannlíf hefur sett svip sinn á Grandasvæðið með tilkomu auk- innar þjónustu. Margt var um manninn þar á Hátíð hafsins árið 2014. Íslendingurinn sem lést af slys- förum í Narvik í Noregi síðastliðið þriðjudagskvöld hét Magnús Krist- ján Magnússon. Hann var frá Hamraendum í Stafholtstungum í Borgarfirði og fæddur 16. maí 1985. Magnús heitinn var ókvæntur og barnlaus en lætur eftir sig unnustu. Samkvæmt fréttum norskra fjöl- miðla varð Magnús heitinn fyrir járnbrautarlest skammt frá bænum Narvik. Lést í slysi í Noregi Ellilífeyrisþegum fjölgaði á síðasta ári um 3,8% eða 1.141. Örorkulífeyr- isþegum fjölgaði á sama tímabili um 1,1% eða 177 og auk þessa hefur end- urhæfingarlífeyrisþegum fjölgað um 13,1% eða um 185. Þetta kemur fram í Tölutíðindum Tryggingastofnunar ríkisins sem sýna breytinguna frá desember 2013 til sama mánaðar í fyrra. Fram kemur að lífeyrisþegum hefur á tímabilinu desember 2013 til desember 2014 fjölgað í öllum tengd- um bótaflokkum nema sérstöku upp- bótinni þar sem þeim hefur fækkað. Mesta fjölgun þeirra sem fá tekju- tryggingu, milli áranna 2013 og 2014, átti sér stað hjá ellilífeyrisþegum þar sem fjölgunin var 2.093 manns eða 8,3%. Ellilífeyrisþegum sem fá heim- ilisuppbót fjölgaði einnig mest eða um 428. Aftur á móti varð fækkun líf- eyrisþega í bótaflokknum sérstök uppbót mest hjá ellilífeyrisþegum um 21,7% eða 1.286 manns milli ára. Bent er á að laga- og reglugerða- breytingar hafa töluverð áhrif á breytingar á fjölda grunnlífeyr- isþega Ellilífeyris- þegum fjölg- aði um 1.141

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.