Morgunblaðið - 27.02.2015, Page 67
FRÉTTIR 67innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Toyota Corolla-bifreið er vinning-
urinn í nýju áskrifendahappdrætti
Morgunblaðsins. Bifreiðin verður
dregin úr potti með nöfnum áskrif-
enda blaðsins 22. apríl næstkom-
andi.
Morgunblaðið er óvenjulegt í
dag, af þessu tilefni, það hefst á
baksíðunni og endar á forsíðunni.
Raunar lesa margir blaðið þannig
enn, af gömlum vana, frá því bak-
síðan var forsíða innlendra frétta.
Á morgun verður blaðið aftur með
venjubundnum hætti.
Ánægjulegar viðtökur
„Þetta er annar bíllinn sem við
gefum í áskrifendahappdrætti í ár.
Viðtökur áskrifenda hafa verið
mjög ánægjulegar og fyrir okkur
er skemmtilegt að geta brugðið
svona á leik með áskrifendum og
þakkað þeim fyrir viðskiptin. Svo
hlökkum við til að afhenda heppn-
um áskrifanda þennan glæsilega
bíl í apríl,“ segir Haraldur Johann-
essen, ritstjóri Morgunblaðsins.
Leikurinn með blaðið og happ-
drættið er samstarfsverkefni
Morgunblaðsins og Toyota á Ís-
landi. Toyota fagnar því að á þessu
ári eru liðin fimmtíu ár frá því
fyrsta Toyotan var flutt til lands-
ins. Bílar af þessari tegund hafa
því verið hér á markaði í hálfa öld.
„Við erum líka að fagna því að ár-
ið 2014 var 25. árið í röð sem
Toyota var mest seldi bíllinn á Ís-
landi. Við erum afskaplega þakklát
fyrir það og þökkum traustið.
Þetta gerist ekki af sjálfu sér,“
segir Páll Þorsteinsson, upplýs-
ingafulltrúi Toyota á Íslandi.
Virðulegur fjölskyldubíll
Bíllinn sem einn heppinn áskrif-
andi vinnur 22. apríl næstkomandi
er af nýjustu kynslóð Toyota
Corolla. Hann er að sögn Páls
rúmgóður og virðulegur fjöl-
skyldubíll af millistærð. Corolla er
einn mest seldi bíll í heimi. Yfir 40
milljónir hafa selst frá því fram-
leiðslan hófst 1966. Fyrsta Coroll-
an kom til Íslands 1970 og hún hef-
ur verið með vinsælustu bílum hér
og var um árabil mest seldi bíllinn
á landinu. Corolla hefur verið
merkisberi Toyota á Íslandi í lang-
an tíma, ásamt Land Cruiser-jepp-
anum.
Corolla í happdrætti áskrifenda
Morgunblaðinu
snúið við í dag
Morgunblaðið/RAX
Happdrættisbíll Corolla-bíllinn sem dreginn verður út í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins er í sýningarsal Toyota í Kauptúni. Hjá honum standa sölu-
ráðgjafar Toyota, f.v. Gunnar Eggertsson, Garðar Már Garðarsson, Arnar Jónsson og Hlynur Ólafsson.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Miðað við alla rútuumferðina, sem
oft er við mjög tvísýnar aðstæður,
óttast ég að vont rútuslys geti orðið.
Ekki endilega á Þingvöllum heldur
einhvers staðar á fjölförnustu leið-
unum. Við höfum séð margar rútur
skrika út af í vetur á leiðinni frá
Reykjavík og að Gullfossi og Geysi. Í
mínum huga er það bara spurning
hvenær einhver rúllar á hliðina með
mögulegum slysum á fólki,“ sagði
Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslu-
fulltrúi Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Hann hélt í gær erindi á málþingi
Rótarýklúbbs Rangæinga, Farar-
heill eða feigðarflan, í Gunnarsholti.
Þar var fjallað um öryggi ferða-
manna og náttúruvernd.
„Til okkar streyma farartæki í öll-
um veðrum, hvort heldur rútur,
smábílar eða bílaleigujeppar,“ sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið.
„Fjöldi ferðamanna sem kemur á
veturna er orðinn eins og á góðum
sumardegi. Á málþinginu kom fram
að sum stór rútufyrirtæki hefðu sent
jafn margar rútur með ferðamenn
nú í janúar og í ágúst í fyrra.“
Einar sagði að snjómokstur á
Þingvöllum hefði kostað 4-6 milljón-
ir frá því í nóvember sl. og ekkert lát
væri á vetrinum. Margir ferðamenn-
irnir kunna ekki að fóta sig í snjó og
hálku, detta og jafnvel meiða sig.
T.d. þurfti að flytja ferðamann á
sjúkrahús í síðustu viku eftir byltu.
„Það hefur alltaf verið eitthvað
um að ferðamenn týnist á Þingvöll-
um,“ sagði Einar. Ferðamenn eru
gjarnan settir út á Hakinu og eiga
svo að ganga niður Almannagjá til
móts við rútuna á Völlunum. Það
hefur gerst nánast á hverjum degi
síðustu sumur og haust að ferða-
menn hafi misst af rútunum sínum.
Ósjaldan hafa landverðir og starfs-
menn þjóðgarðsins þurft að aðstoða
þetta fólk.
„Við höfum áhyggjur af því að
þetta hefur líka gerst nú í vetrar-
veðrunum. Það hefur borið nokkuð
mikið á þessu. Fólk hefur jafnvel
verið skilið eftir við mjög kaldar og
vondar aðstæður,“ sagði Einar.
Hann sagði að leiðsögumenn bentu
ferðamönnum hvert þeir ættu að
ganga. Svo gerði él og þá tapaði fólk
áttum og villtist. Þegar örtröðin
væri sem mest á fjölsóttum stöðum
gætu ferðamenn misst af hópunum
sínum og verið skildir eftir.
Einar sagði að Þjóðgarðurinn vildi
vinna með hópferðaþjónustunni að
því að skilgreina verkferla og hvern-
ig hægt væri að tryggja að farþegar
týndust ekki úr hópunum. „Við vilj-
um alls ekki að fólk týnist og verði
úti á Þingvöllum. Ferðaþjónustufyr-
irtæki koma nú orðið í öllum veðrum
á Þingvelli og Gullna hringinn,“
sagði Einar. Hann sagði að í vonda
veðrinu í fyrradag hefðu ferðamenn
meira að segja verið á Þingvöllum.
Stefnt er að því að setja upp veg-
vísa og auðkenna bílastæðin á Þing-
völlum eftir sérstöku kerfi nú í vor.
Vonast er til að það auðveldi ferða-
mönnunum að rata um þjóðgarðinn.
Óttast slæmt rútuslys
og slys á farþegum
Villuráfandi ferðamenn skildir eftir á Þingvöllum
Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen
Þingvellir Mikill straumur ferðamanna hefur verið til Þingvalla þrátt fyrir vetr-
arríkið. Ekki kunna allir að fóta sig í hálkunni og hafa sumir fengið byltur.
Öryggi ferðamanna
» Á málþinginu var m.a. fjallað
um eldgos á Suðurlandi og
hvernig Almannavarnir bregð-
ist við fjölgun ferðamanna.
» Þá var og fjallað um hvernig
björgunarsveitir geti tekist á
við ört vaxandi verkefni,
ábyrgð ferðaþjónustunnar og
umhverfisáhrif ferðamennsku.
Skýrar vísbendingar eru um að
lækkun vörugjalda á sykri og sæt-
indum, svokölluðum sykurskatti,
hafi enn ekki skilað sér að fullu að
mati ASÍ, sem hefur greint breyt-
ingar á vísitölu neysluverðs, sem
birt var í gær. Þá hafa bækur
hækkað talsvert undanfarna mán-
uði umfram það sem hækkun virð-
isaukaskatts gefur tilefni til auk
þess sem lítil áhrif sjást af afnámi
vörugjalda í verðlagi á bílavara-
hlutum og byggingarvörum, skv.
fréttaskýringu á vef ASÍ.
Bent er á sem dæmi að sæta-
brauð og kökur hafa hækkað í
verði um 3,9% frá áramótum sem
ASÍ segir að sé umfram hækkun á
virðisaukaskatti og engin sjáanleg
áhrif séu af lækkun á vörugjalda á
þessum vörum. „Þá hafa sykur,
súkkulaði og sætindi samtals
lækkað um 4,8% frá því um ára-
mót sem er nokkuð minna en áhrif
neysluskattsbreytinganna gefa til-
efni til en einkum má rekja það til
lítillar lækkunar á súkkulaði og
sælgæti.
Bækur halda áfram að hækka í
febrúar og hafa frá því um ára-
mót hækkað um 5,6% sem er tals-
vert umfram þau 3,7% sem hækk-
un á virðisaukaskatti gefur tilefni
til.“ »33
Lækkun gjalda ekki
skilað sér að fullu
ASÍ gagnrýnir verðlagsbreytingar