Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 16
21. janúar 2015 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is Listin er máttarstólpi tjáningarfrelsis. Hún sækir orkuna í sköpunarkraftinn sem rennur í æðum fólks. Listafólk beitir gáfu sinni og skapar verk sem hafa form og öðlast merkingu þegar þau eru móttekin í samfélaginu. Listin ræktar lífið með hug- rekki og hugsjónum og spyrnir gegn eyði- leggingu. Tjáningarfrelsið vill fara yfir landa- mæri án þess að vera með vegabréf og til- skilin leyfi. Það stekkur yfir aðskilnaðar- múra undir skothríð andstæðra skoðana. Tjáningarfrelsið er undir smásjá í öllum samfélögum. Viðbrögðin geta verið mis- kunnarlaus þegar frelsið fer út fyrir tilsett mörk, þegar einhver ögrar með listinni og brýtur hin helgu vé. Listin ver mennskuna og særir engan nema þann sem móðgast og afhjúpast. Allir geta verið fulltrúar tjáningarfrels- is, aðeins ef þeir vilja, en til að beita því og verja það þarf ævinlega hugrekki, hug- myndaflug og skilning á afleiðingum þögg- unar. Sá sem gengur undir fána tjáningar- frelsis þarf að vera viljugur til að berjast fyrir frelsi annarra til að tjá skoðanir sínar. Listafólki ætti alls staðar að vera frjálst að skapa þau verk sem það vill. Það hefur málfrelsi, ritfrelsi, myndfrelsi, tónfrelsi, hönnunarfrelsi, sviðslistarfrelsi, frelsi til að tjá sig án ótta og ritskoðunar og kúg- unar, frelsi til að skapa óræð listaverk sem breyta samfélaginu. Listafólk ruggar bátum og ruglar fólk í ríminu með verkum sínum, kemur því á óvart, opnar nýjar víddir og afhjúpar heimsku og þekkingarleysi. Listin gegnir þýðingarmiklu hlutverki í samfélaginu því listaverk geta leyst fólk úr spennitreyju ótta, kúgunar og fordóma. Listafólk nýtir tjáningarfrelsið m.a. til að vinna gegn ánauð annarra og andlegu ofbeldi sem þrífst í samfélögum. En það er ekki nóg að hafa frelsi, lista- fólk þarf að fá tækifæri, tíma og aðstæð- ur til að vinna. Tækifæri til að skapa og starfa við það sem það leggur metnað og alúð í. Flestallir þurfa að öðlast þekkingu og fá æfingu til að virkja sköpunarkraftinn á áhrifaríkan hátt. Hvert samfélag þarf á öflugu listafólki að halda, hvert samfélag þarf að styðja við list og tjáningarfrelsi ef það vill dafna sjálft. Sá stuðningur er ríkulega og dag- lega endurgreiddur með mikilvægum gjöfum sem bæta samfélagið, því listin er hreyfing sem er linnulaust að störfum. Það er sterkt samband milli listar og tjáningarfrelsis. Orðið listfrelsi sprettur umsvifalaust fram og það hrópar: „Verið ekki hrædd, notið frelsið til tjáningar með listrænum hætti. Ekki bíða til morguns!“ Listin og tjáningarfrelsið MENNING Gunnar Hersveinn rithöfundur M.A. BESTA MYNDIN – BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – BESTI LEIKSTJÓRI BENEDICT CUMBERBATCH KEIRA KNIGHTLEY T H E I M I TAT I O N G A M E FRUMSÝND 23. JANÚAR “AN INSTANT CLASSIC”“BENEDICT CUMBERBATCH IS OUTSTANDING” “THE BEST BRITISH FILM OF THE YEAR” “EXCEPTIONAL” “FASCINATING & THRILLING” TILNEFND TIL 8 ÓSKARSVERÐLAUNA INSPIRING B A S E D O N T H E I N C R E D I B L E T R U E S TO R Y O F A L A N T U R I N G L íkt er á komið með núverandi ríkisstjórn og þeirri fyrri þegar kemur að umgengni um Framkvæmdasjóð aldr- aðra. Á síðustu fimm árum hefur stórkostlega miklum peningum verið ráðstafað til annarra verkefna en lög gera ráð fyrir. Framkvæmdasjóður aldraðra á það líkt með margumræddu útvarpsgjaldi að það er nefskattur, skattur sem leggst eins á alla skattskylda Íslendinga. Ríkisvaldið hefur, á liðnum árum, varið stórum hluta tekna sjóðsins til verkefna annarra en framkvæmda. Í fimmtu grein laga um sjóðinn er talið upp til hvernig verkefna á að verja tekjum hans. Þar eru talin upp brýn verkefni, svo sem bygging þjónustumiðstöðva, dagvistar, dvalarheimila, sambýla og hjúkr- unarheimila. Síðasti liðurinn kveður svo á um önnur verkefni sem stuðla að uppbyggingu öldr- unarþjónustu. Ríkisvaldið, hvert sem það er á hverjum tíma, hefur tekið þúsundir milljóna frá þessum bráð- nauðsynlegu verkefnum og notað þá peninga til annarra hluta. Óþarft á að vera að telja upp eða nefna hversu brýnt er að gera átak í þeim helstu verkefnum sem Framkvæmdasjóður aldraðra á að sinna, samkvæmt gildandi reglugerð. Hefðu stjórnvöld ekki gerst svona fingralöng og hér hefðu verið til að mynda byggð hjúkrunarheimili en peningar ekki verið teknir af öldruðum, væri álagið mun minna á til dæmis Land- spítalanum, en þekkt er að þar liggur gamalt fólk fast, þar sem engin úrræði eru til fyrir það fólk, það kemst ekki af sjúkrahús- inu. Segja má að þegar eyrnamerktir peningar eru notaðir til allt annarra hluta en á að gera, sé misfarið með þá peninga. Annar nefskattur hefur verið í fréttum síðustu mánuði, það er útvarpsgjaldið og umræður um meðferð á þeim skatti hafa farið víða. Nú hefur verið tryggt, að á þessu ári, renna hærri fjárhæðir til Ríkisútvarpsins en dæmi eru um. Sama verður ekki sagt um aldraða og þeirra velferð. Þá skortir greinilega stuðning, þeir eiga ekki hollvini innan þings og utan. Þetta er til skammar. Við verðum að gera betur og hætta að taka eyrnamerkta peninga úr uppbyggingu á hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum og nota þá peninga til allt annarra hluta. Það er smán að þessu háttalagi. Mestur hluti framkvæmdasjóðsins fer í húsaleigu víðsvegar um landið og rekstur öldrunarheimila. „Það er áhersluatriði hjá mér varðandi uppbyggingu hjúkrunarrýma að þessa fjármuni sem renna í rekstur fáum við til uppbyggingar nýrra hjúkrunarrýma,“ sagði Kristján Þór Júlíusson í samtali við Fréttablaðið. Frá árinu 2010 til 2014 hafa 8,2 milljarðar króna runnið í sjóðinn. 1.672 milljónum hefur verið úthlutað úr sjóðnum til verkefna sem hafa sótt í sjóðinn. Mismunurinn, um 6,5 milljarðar, fer í ýmsa hluti, svo sem rekstur stofnanaþjónustu, leigugreiðslur vegna hjúkr- unarheimila og viðhalds öldrunarstofnana. „Það er mjög slæmt að festa framkvæmdasjóð í klöfum rekstr- arkostnaðar og geta ekki beitt sér í uppbyggingu nýrra hjúkrunar- rýma,“ sagði Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara. Þessi staða er óásættanleg. Það verður að gera betur og fara verður að settum reglum, ekki síst æðsta stjórn ríkisins. Ríkið ráðstafar sérmerktum tekjum þvert á reglur: Standa ekki við uppbygginguna Kann Hagstofan að reikna? Hagstofan hefur reiknað að hagvöxt- ur síðasta árs sé langtum minni en spáð hafði verið. Björn Valur Gísla- son, varaformaður VG og varaþing- maður, vakti máls á þessu á Alþingi í gær. „Til hvaða ráðstafana hyggst ríkisstjórn hægri flokkanna grípa til að snúa þessari þróun við?“ spurði Björn Valur og beindi spurningunni til Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar forsætisráðherra, sem svaraði að verið væri að fara yfir útreikninga Hagstofunnar og því sé óþarft að vera með svartsýni þess vegna, annað eigi eftir að koma í ljós. Svo er bara að bíða og sjá hvort Hagstofan hafi skilað röngum útreikningum. Tilfinningasamir menn Áfram á sama stað. Björn Valur Gíslason sagði meðal annars: „Ég var að vitna í opinberar tölur um að hagvöxtur á Íslandi væri að mælast á fyrstu níu mánuðum ársins 0,5 prósent. Hvar hefur það komið fram að það yrði leiðrétt nema innan úr Stjórnarráðinu? Þetta eru bara tilfinn- ingar hjá tilfinningasömum mönnum sem halda að hlutirnir séu öðruvísi en þeir eru.“ Forsætisráðherra hélt uppi vörnum og sagði að ýmsir aðilar hefðu farið yfir gögn Hagstofunnar og vinna við að meta hagvöxt benti til þess að að öllum líkindum væri skekkja í tölunum, „ … að allar þessar áhyggjur háttvirts þingmanns eru ástæðulausar“. Ráðherra vill hlífa Sprengisandi Fyrstu orð Sigrúnar Magnúsdóttir á þingi í embætti umhverfisráðherra lutu að Sprengisandi þegar hún svaraði Steingrími J. Sigfússyni. „Ég er búin að segja að mér finnst hvorki rétt að leggja þarna malbikaðan veg né setja háspennulagnir yfir Sprengisand. Hins vegar finnst mér alveg geta komið til greina að við getum lagt þær í jörðu. Ég veit að það kostar mikið, en mér finnst eðlilegt að fyrirspyrjandi beini þessari fyrirspurn síðar til þeirra ráðherra sem fara með þetta eða eru með þetta á sínu verksviði,“ sagði nýr umhverfisráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, á Alþingi í gær. sme@frettabladid.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 B -B D 2 C 1 7 7 B -B B F 0 1 7 7 B -B A B 4 1 7 7 B -B 9 7 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.