Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 07.01.2015, Qupperneq 4
7. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 UMHVERFISMÁL „Samkvæmt gögn- um hjá Matvælastofnun tóku slátur leyfishafar sjálfir ákvörðun um að innkalla kjöt af gripum af þessu svæði í varúðarskyni,“ segir Kjartan Hreinsson, dýralæknir hjá Matvælastofnun, um fullyrð- ingar Gísla Halldórs Halldórsson- ar, bæjar stjóra á Ísafirði, varðandi díoxínmengun í búpeningi í Engidal fyrir um fjórum árum. „Ástæða þess að slátra þurfti búpeningi í Engidal var bannið sem MAST hafði sett á kjötið og uppnámið sem MAST olli með því að innkalla íslenskt lambakjöt frá Evrópu,“ sagði Gísli í Fréttablaðinu í gær. „Matvælastofnun setti dreif- ingarbann á afurðir frá svæðinu meðan unnið var að rannsókn máls- ins. Þegar niðurstöður sérfræði- hópsins lágu fyrir tóku bændurn- ir sjálfir ákvörðun um að slátra búfénu,“ segir Kjartan. Matvæla- stofnun beri skylda til að upplýsa og tilkynna um varasöm matvæli á markaði. „Einnig í varúðarskyni ef grunur er um að matvæli uppfylli ekki skilyrði matvælareglugerða og séu ekki örugg til neyslu.“ Þá gerir Kjartan athugasemd við orð Gísla um að dönsk rannsókn hafi ekki sýnt díoxín yfir viðmið- unarmörkum úr sýnum úr Engidal. Vísar Kjartan í skýrslu sérfræð- ingahóps. Þar segir meðal annars að sýni bendi „sterklega til þess að að mjólkurafurðir og nautgripir frá Efri-Engidal eigi ekki að fara á markað og hafi ekki átt að fara á markað“. - gar Matvælastofnun segir rangt hjá bæjarstjóra Ísafjarðar að stofnunin hafi innkallað kjöt frá Engidal: Sláturleyfishafar innkölluðu kjötið sjálfir BITBEIN Enn er deilt vegna magns díoxíns í kjöti úr Engidal við Skutuls- fjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 2.954 börn fæddust mæðrum utan hjónabands árið 2013. Börn mæðra í hjónabandi voru hins vegar 1.372 á því ári. SKEMMTUN Þrettándabrenn- um höfuðborgarsvæðisins, sem fara áttu fram í gær, var frest- að sökum veðurs. Hvasst var í Reykjavík í gær og tóku aðstand- endur því þessa ákvörðun. Athöfn Vesturbæinga mun hefj- ast klukkan 18.00 þann 9. janúar við KR-heimilið. Brennur íbúa Grafarvogs og Grafarholts fara fram degi síðar. Grafarvogsbúar munu hittast við Hlöðuna klukkan 17.15 og þaðan mun fólk ganga fylktu liði að brennustæðinu við Gufu- nesbæinn. Í Grafarholti hefjast herlegheitin klukkan 18.00 við Guðríðar kirkju. - jóe Brennum í borginni frestað: Veður seinkar þrettándagleði ÞRETTÁNDI Frá þrettándagleði við Ægisíðu fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON RÚSSLAND Rússneski stjórnar- andstæðingurinn Alexei Navalní skar á mánudag í sundur ökkla- band, sem sett var á hann til að fylgjast með ferðum hans. Honum var skipað í stofufang- elsi heima hjá sér þrátt fyrir að fangelsisdómur í desember hafi verið skilorðsbundinn. Navalní hefur verið einn helsti gagnrýnandi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, og segir mála- ferlin gegn sér eingöngu til þess ætluð að refsa honum fyrir gagn- rýnina. - gb Navalní mótmælir enn: Skar í sundur ökklabandið EFNAHAGSMÁL „Mjög mikilvægt er að okkur takist að verja þann stöðugleika sem náðst hefur,“ segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). Samtökin kynntu á blaðamannafundi í gær sýn sína á stöðu efnahagsmála. Stöðugleika efnahagslífsins síðustu misseri segir Þorsteinn nokkuð sem landsmenn hafi ekki átt við að búa undanfarna tvo áratugi eða svo. Hagvöxtur hafi verið með ágætum frá 2011, verðbólga lækkandi og mjög lág á síðasta ári, jöfnuði náð í ríkisfjármálum, auk þess sem dregið hafi úr atvinnuleysi og gengi krónunnar verið stöðugra síðustu fjögur ár en um „all- langt skeið“ þar á undan. „Það er mjög mikilvægt að okkur takist að verja þennan stöðugleika,“ segir Þorsteinn, en í kynningu SA eru allar forsendur sagðar fyrir því að árið geti orðið farsælt og að einstakt tækifæri sé til að bæta lífskjör landsmanna á grundvelli nýfengins stöðugleika. Ein for- senda þess sé þó að launahækkanir í komandi kjarasamningum verði ekki umfram það sem framleiðni í landinu standi undir. Framleiðni- aukning hafi hins vegar verið ónóg síðustu ár, eða um eitt prósent á ári, og hámarkssvigrúm til launahækkana í heild því 3,5 til 4,0 prósent. Hækkanir umfram það með miklum sveiflum í kaupmætti séu ávísun á verðbólgu sem að lokum leiði til falls krónunnar. „Í aðdraganda samninganna er mikil ólga, mun meiri en á síðasta ári og þrátt fyrir fimm prósenta kaupmáttaraukningu á árinu sem var að líða eru uppi kröfur um stórkostlegar launa- leiðréttingar sem erfitt er að skilja hvað liggur að baki.“ Þorsteinn telur viðbúið að veturinn verði snúinn en ekki sé sjálfgefið að koma þurfi til harðra átaka. Leiðin til árangurs sé að ná saman milli almenna vinnumarkaðarins og þess opinbera um vinnubrögðin sem styðjast eigi við til lengri tíma litið. „Við verðum að brjótast út úr þessari hringekju sem við höfum verið í þar sem ekki er sátt og nægilegt sam- ráð milli aðila á vinnumarkaði og við upplifun þróunar eins og varð á síðasta ári þar sem stór hluti opinbera vinnumarkaðarins sleit sig frá samræmdri launaþróun og olli þeirri ólgu sem við sjáum nú.“ Þá segir Þorsteinn flækja komandi viðræð- ur að engin samræmd lína sé frá Alþýðusam- bandinu heldur komi hvert verkalýðsfélag fram með sína kröfugerð. „Það gerir það að verkum að fram undan eru mjög snúnar og flóknar viðræður.“ Í komandi samningum segir Þorsteinn tíma- bært að horfa til þess að auka kaupmátt allra, lægstu launin hafi síðustu ár hækkað langt umfram meðaltekjuhækkun og samfellt átak til hækkunar á þeim undanfarin átta ár. „Ljóst er að ekki verður gengið lengra í hækkun lægstu launa,“ segir Þorsteinn og bendir á að uppi sé krafa allra hópa, ekki síst lækna, um umtalsverðar hækkanir. Kröfugerð í þá veru beri þess merki að ekki sé lengur sátt um áherslu á hækkun launa. „Ég held að verk- efnið næstu misserin sé fyrst og fremst að auka kaupmátt allra launa.“ olikr@frettabladid.is ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON Samtök atvinnulífsins (SA) kynntu í gær verkefnin fram undan auk „flugeldavísitölu“ þar sem kom fram að fylgni er á milli hagvaxtar og innflutnings skotelda. Í fyrra voru flutt inn 1,5 kíló á mann, aðeins meira en 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Áherslan nú á kaupmátt allra Ekki verður lengra gengið í að hækka lægstu laun, að sögn SA. Þau hafi hækkað umfram önnur síðustu ár. Flóknir kjarasamningar fram undan án samræmdrar kröfu frá ASÍ. Svigrúm sé til 3 til 4 prósenta hækkunar. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir áratugareynslu á íslenskum vinnumarkaði sýna að sátt verði aldrei um misskiptingu þar sem einstakir hópar eða atvinnugreinar fái launahækkanir um- fram aðra. „Það verður þá alltaf grunnurinn að kröfum annarra,“ segir hann. Kröfur lækna nú séu svo aftur úr öllu samhengi við verðmætasköpun í þjóðfélaginu. „Þarna er hópur sem vill leiðrétta alþjóð- lega samkeppnisstöðu sína í einu stökki og ef það á að ganga eftir, eins og flest virðist benda til, þá mun reyna á hvort sátt sé um það í samfélaginu að þeir verði teknir fram fyrir með þessum hætti.“ Sá tónn hafi verið áberandi umræðunni. Kröfur úr takti við verðmætasköpun AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ advania.is/vinnufelagar Hafðu samband í síma 440 9010 eða í tölvupósti á sala@advania.is * Tilboð gilda til 31.01.2015 eða á meðan birgðir endast. á nýju ári Nýjar vélar JANÚAR TILBOÐ* Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá KÓLNAR Í VEÐRI Áfram víða strekkingur á landinu í dag og sums staðar hvassviðri syðra og skúrir eða él sunnan og vestan til. Suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri til morguns og má búast við hörkufrosti um helgina. 0° 12 m/s 3° 13 m/s 4° 15 m/s 5° 20 m/s 10-18 m/s. 5-13 m/s. Gildistími korta er um hádegi -4° 19° 3° 6° 17° 2° 5° 4° 4° 19° 10° 15° 15° 5° 5° 4° 5° 5° 4° 16 m/s 3° 15 m/s 2° 12 m/s 1° 9 m/s 2° 10 m/s 2° 15 m/s -1° 17 m/s 1° -2° 0° -3° 0° -3° -2° -6° -2° -6° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 A -1 9 7 C 1 7 7 A -1 8 4 0 1 7 7 A -1 7 0 4 1 7 7 A -1 5 C 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.