Fréttablaðið - 07.01.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 07.01.2015, Síða 16
7. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR TÍMAMÓT „Mér er efnið hugleikið. Það tengist æskuminningum mínum því ég var fimm ára þegar ég missti föður minn í sjóslysi. Sjö heimilisfeður fórust frá Dal- vík sama dag. Það var mikil blóðtaka,“ segir Haukur Sigvaldason smiður um dagskrá Íslenska vitafélagsins um sjó- slys við Íslandsstrendur sem fram fer í Víkinni, sjóminjasafni við Grandagarð, í kvöld, miðvikudag, og hefst klukkan 20. Sigvaldi, faðir Hauks, fór í róður með bróður sínum, Gunnari, á Val EA 9. apríl 1963. Þeir voru á línu fram af Hval- vatnsfirði þegar ofsaveður brast á mjög snögglega. Báturinn fórst og Gunnar fór niður með honum en Sigvaldi náðist um borð í Esjuna, án lífsmarks, hann var úrskurðaður látinn á Sjúkrahúsi Akur- eyrar undir kvöld. Sama dag fórst Haf- þór EA frá Dalvík. Þrettán börn urðu föðurlaus í plássinu í einu vetfangi. „Ég man þegar mömmu var tilkynnt andlát pabba. Bróðir hennar kom með lækninum heim og dró sig svo í hlé meðan læknirinn talaði við mömmu en ég var dinglandi við lærið á henni, auðvitað talinn óviti. Ég veit að lækn- irinn bauð henni sprautu til að deyfa sársaukann og hún gæti sofið, en hún afþakkaði með þeim orðum að hún þyrfti að vakna upp til barnanna sinna. Ég var yngstur af þremur systkinum. Hin voru níu og tólf ára,“ lýsir Haukur sem segir líf sitt vissulega hafa breyst við slysið. „Mamma fór fljótlega að vinna utan heimilis en mínar aðstæður voru góðar miðað við margra því móðir hennar og þrjú systkini bjuggu á hæð- inni fyrir ofan okkur og mikill samgang- ur var á milli. Ég hafði öruggt skjól en samt var engin tilfinningaúrvinnsla og pabba vantaði alltaf. Ég byrjaði ungur að gera ýmsa hluti sjálfur og fullorðnaðist snemma.“ Sama ár og Haukur missti föður sinn, 1963, fórust 55 íslenskir sjómenn. Fyrstu þrír fjórðungar tuttugustu aldarinnar voru varðaðir sjóslysum. Steinar J. Lúð- víksson, blaðamaður og rithöfundur, skrifaði margar bækur um þá atburði undir heitinu Þrautgóðir á raunastund. Björgunar- og sjóslysasaga Íslands. Hann verður líka með fyrirlestur í kvöld í Víkinni. Allir eru velkomnir og aðgang- ur er ókeypis. gun@frettabladid.is Pabba vantaði alltaf Íslenska vitafélagið er með fræðsludagskrá um sjóslys við Íslandsstrendur í Víkinni, Grandagarði, í kvöld. Meðal þeirra sem þar miðla sögum er Haukur Sigvaldason smiður. SMIÐURINN „Ég byrjaði ungur að gera ýmsa hluti sjálfur og fullorðnaðist snemma,“ segir Haukur, sem verður meðal þeirra sem taka til máls í Víkinni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON bóndi og veðurathugunarmaður, Garði, Kelduhverfi, sem lést þann 28. desember, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju 10. janúar kl. 11. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Jóhanna Ólafsdóttir Ólafur Brynjar Sigurðsson Jón Sigurðsson Sigurgeir Sigurðsson og fjölskyldur. Yndisleg móðir okkar, SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR frá Norðfirði, er látin. Rúna Sæmundsdóttir Kolbrún Sæmundsdóttir Björn Árdal Auður Stefanía Sæmundsdóttir Sigurður Rúnar Sæmundsson Nanna Hákonardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT MATTHILDUR ÁRNADÓTTIR Flúðabakka 4, Blönduósi, lést þann 22. desember sl. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 10. janúar kl. 14.00. Signý Magnúsdóttir Ingi Einar Sigurbjörnsson S. Marzibil Lúthersdóttir Erna Hallfríður Sigurbjörnsdóttir Þorvaldur Skaftason Sigurður Agnar Sigurbjörnsson Ármey Óskarsdóttir Dóra Sigurbjörnsdóttir Björn Ragnarsson Erla Sigurbjörnsdóttir barnabörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS H. MAGNÚSSON bifvélavirki, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 4. janúar. Sigríður Bjarnadóttir Hólmfríður Magnúsdóttir Árni Guðnason Hildur Magnúsdóttir Þorsteinn Einarsson Sigríður Magnúsdóttir Sturla Jónsson Magnús Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR sjúkraliði, Glósölum 7, Kópavogi, lést á jóladag, 25. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðmundur Gíslason Ástkær faðir okkar, afi og langafi, GUÐJÓN EINARSSON lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 25. desember. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 9. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Edda G. Ólafsdóttir Eiríkur Guðjónsson Anna Þ. Guðjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, EINHILDUR ÞÓRA PÁLMADÓTTIR Aðalgötu 5, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi sunnu daginn 1. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 12. janúar kl. 13.00. Þór Pálmi Magnússon Hulda Guðmundsdóttir Oddný Magnúsdóttir Þórhallur Steinarsson Jón Kr. Magnússon Linda Gunnarsdóttir Halldóra Magnúsdóttir Ívar Guðmundsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, AGLA TULINIUS læknaritari, Ásholti 38, Reykjavík, lést 22. desember. Útförin fer fram frá Hjallakirkju föstudaginn 9. janúar kl. 13.00. Guðmundur Karl Sigurðsson Auður Guðjónsdóttir Þóra Sigurðardóttir Jóhann Eysteinsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, hjartkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁSGEIR MARKÚS JÓNSSON flugvirki, Bugðutanga 5, Mosfellsbæ, lést að morgni 4. janúar á Landspítalanum við Hringbraut. María Marta Sigurðardóttir Davíð Ásgeirsson Rakel Ásgeirsdóttir Einar Gunnarsson Samúel Ásgeirsson Lovísa Snorradóttir Ólafur Jón Ásgeirsson Gerður Rós Ásgeirsdóttir Sigurður Wiium barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR GUNNARSSON frá Steinsstöðum, Espigrund 9, Akranesi, sem lést 24. desember, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 9. janúar kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Gjafa- og minningarsjóð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi. Guðríður Guðmundsdóttir Þórir Bergmundsson Gunnar Guðmundsson Sesselja Ingimundardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, NANNA JÓNSDÓTTIR Sunnubraut 41, Kópavogi, sem lést á Vífilstöðum 23. desember sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 8. janúar kl. 13. Óskar Guðmundsson Bjarni Þór Óskarsson Sigurbjörg U. Guðmundsdóttir Helga Óskarsdóttir Snorri Traustason Anna Kristín Óskarsdóttir Oddný N. Óskarsdóttir Patrich Wennergren barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri SIGURÐUR GUÐJÓNSSON Brávallagötu 44, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans á jólanótt. Jarðarförin fer fram 9. janúar kl. 13.00 í Fossvogskirkju. F.h. ættingja og vina, Tómas Óskar Guðjónsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BRÍET TORFADÓTTIR (DÚNNA) Krókamýri 78, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 26. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun, fimmtudaginn 8. janúar, kl. 13.00. Andrés Ingi Magnússon Torfi Helgi Leifsson Margrét Sigurðardóttir Magnús Andrésson Rósa Þórarinsdóttir Andrés Andrésson Elfa Sif Jónsdóttir Margrét Sif Andrésdóttir Einar Þór Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN INGIMUNDARSON Álfaskeiði 43, Hafnarfirði, áður bóndi á Yzta-Bæli, Austur-Eyjafjöllum, lést þriðjudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 9. janúar kl. 13.00. Örn Sveinbjarnarson Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir Sigurður Ingi Sveinbjarnarson Markús G. Sveinbjarnarson Selma Filippusdóttir Ingimundur Sveinbjarnarson Hrafn Sveinbjarnarson Anna Dóra Pálsdóttir Ester Sveinbjarnardóttir Magnús Sigurðsson Helga Sif Sveinbjarnardóttir Haukur Örn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 A -7 7 4 C 1 7 7 A -7 6 1 0 1 7 7 A -7 4 D 4 1 7 7 A -7 3 9 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.