Fréttablaðið - 07.01.2015, Page 22
| 6 7. janúar 2015 | miðvikudagur
Fyrirtækið Tulipop var stofnað
árið 2010 af vinkonunum Helgu
Árnadóttur, tölvunarfræðingi og
MBA, og Signýju Kolbeinsdóttur,
vöruhönnuði og teiknara. Markmið
Tulipop-ævintýraheimsins var og
er að búa til skapandi og falleg-
ar vörur fyrir börn sem höfða til
fólks á öllum aldri.
Markmiðið er enn hið sama
en með auknum vexti fyrirtæk-
isins og umsvifum utan Íslands
hafa sífellt fl eiri tækifæri komið
á borð fyrirtækisins á öðrum
sviðum en vöruframleiðslu, sem
hafa meðal annars leitt til þess
að Tulipop gaf út leik fyrir snjall-
tæki fyrr á árinu í samstarfi við
breskan leikjaframleiðanda. Auk
þess fi nna þær stöllur fyrir vax-
andi áhuga fyrirtækja í leikfanga-
og afþreyingargeiranum.
Signý: „Okkur fi nnst gífurlega
spennandi að stíga frekari skref í
átt að því að færa Tulipop-ævin-
týraheiminn og persónurnar til
lífsins, og var leikurinn sem við
gerðum liður í því. “
Helga: „Við erum búnar að reka
þetta fyrirtæki í fi mm ár. Signý
skapaði ævintýraheiminn þar sem
hver persóna hefur sína sögu. Það
hefur mikil vinna farið í sköp-
unina og alveg frá því við byrj-
uðum að kynna Tulipop erlendis
höfum við verið spurðar að því
hvort við ætluðum ekki að gefa út
Tulipop-bækur, fara í sjónvarp og
svo framvegis. Það er því gaman
að fi nna fyrir vaxandi áhuga alls
konar aðila í afþreyingargeir-
anum á Tulipop-heiminum sem
vilja færa hann til lífs, svo sem
í gegnum tölvuleiki eða sjónvarp
eða annað. Við erum byrjaðar að
vinna í einhverjum slíkum verk-
efnum, sem eru þó á algjöru byrj-
unarstigi enda geta slík verkefni
tekið langan tíma.“
Einbeita sér að einum markaði
Tulipop hefur átt mikilli vel-
gengni að fagna og selt vörur til
yfi r tíu landa. Fyrir einu og hálfu
ári síðan tóku þær hins vegar þá
ákvörðun að einbeita sér aðeins að
markaðnum hérlendis og í Bret-
landi.
Helga: „Við fórum í smá nafl a-
skoðun á þessum tíma þegar við
ákváðum að það væri kominn tími
til að fá fjárfesta inn í félagið. Við
fórum yfi r hvað var að virka og
hvað ekki. Við höfðum verið að
fara á mjög stórar vörusýning-
ar og fá í kjölfarið pantanir frá
mörgum löndum, kannski átta og
komumst að því að oft var mjög
erfi tt að fylgja því almennilega
eftir. Við fengum kannski pant-
anir frá nokkrum búðum í Hol-
landi, Þýskalandi og Frakklandi
og sendum vörur þangað. Síðan
hafði maður engin tök á því að
heimsækja búðirnar, hringja í
þær eftir þörfum eða hafa sam-
band við þarlenda fjölmiðla. Þann-
ig að við ákváðum, af mörgum
mismunandi ástæðum, að velja
Bretland.“
En hefði komið til greina að
stækka fyrirtækið hraðar til að
mæta þessari auknu eftirspurn?
Helga: „Já. Hin leiðin hefði
verið að fara á þessum tíma í risa-
stóra hlutafjáraukningu, selja nær
allt fyrirtækið og stækka miklu
hraðar. En okkur liggur bara ekk-
ert svo mikið á. Við erum ekki með
þannig vöru, eins og tæknivörur,
þar sem skiptir öllu að vera fyrst-
ur. Þannig að okkur fannst skipta
meira máli að þróa þetta hægar.“
Signý: „Við vildum líka eiga
meira í fyrirtækinu. Á þessum
tímapunkti hefðum við ekki selt
fyrirtækið mjög dýrt, það var ekk-
ert hlutafé inni í því og vörurnar
voru enn þá takmarkaðar.“
Í lok ársins 2013 fékk Tulipop
fjárfesta til liðs við sig. Signý
leiddi í kjölfarið þróun á breikkun
vörulínu fyrirtækisins sem hefur
stækkað mikið.
Signý: „Þetta er heimurinn
minn. Það skipti mig þess vegna
máli að hann væri útfærður á fal-
legan máta en ekki í einhverri
fl ýtimeðferð.“
Helga: „En þetta er alltaf spurn-
ing, hversu hratt maður á að
stækka. Okkur fannst ekki liggja
neitt á, það væri betra að taka
minna skref og síðan þegar að því
kæmi að fjármagna teiknimynda-
seríu eða leikföng eða eitthvað
annað þá þyrftum við kannski að
stækka hraðar. Ef við síðan náum
árangri í Bretlandi þá verður auð-
veldara að ná árangri annars stað-
ar. Næsta skref verður hagkvæm-
ara. Ná árangri á einum markaði
og byggja svo á því annars staðar
í stað þess að fara í sama átakið á
mörgum mörkuðum í einu.“
Þær segja báðar að það sé mikil
áskorun að skerpa fókusinn og
kunna að segja nei.
Helga: „Á þessum fi mm árum
höfum við fengið alls konar
spennandi fyrirspurnir, til dæmis
frá Japan eða Suður-Ameríku,
frá einhverjum sem hafa áhuga á
Tulipop. En til að slíkt geti yfi r-
leitt farið af stað þarf svo mörg
skref. Það þarf að þýða upplýsing-
ar yfi r á annað tungumál, afl a sér
upplýsinga um innfl utning í landið
og svo framvegis. Þetta er fl jótt
að vinda upp á sig og síðan veit
maður ekkert hvað verður úr því.
Þannig að til að halda fókus og
sinna þeim stöðum sem við erum
á þá þarf að kunna að segja nei.“
Heimamarkaðurinn skiptir máli
Fyrirtækið sprengdi af sér hús-
næði sem það var í á Hverfis-
götu og hefur komið sér þægilega
fyrir á góðum stað á Fiskislóð
með útsýni yfi r hafi ð. En er það
hindrun að vera á litla markaðn-
um Íslandi?
Signý: „Nei, það hefur ekki
reynst neitt voðalega erfi tt. Stund-
um er fjarlægðin erfi ð, að vera á
þessari eyju. En þess vegna erum
við að herja á Bretland, þangað er
stutt að fara, fl ogið oft í viku og
þægilegur tímamismunur.
Helga: „Ég hefði ekki trúað
því fyrr en á reyndi hvað tíma-
mismunurinn skiptir miklu máli.
Framleiðendurnir okkar eru í
Asíu og maður þyrfti helst að
hringja í þá heiman frá, áður en
maður mætir til vinnu á morgn-
ana til að ná þeim á skrifstofu-
tíma.
Signý: „Þó að markaðurinn
hérna heima sé lítill þá skipt-
ir hann líka máli. Grunnurinn
að öllu öðru er að það gangi vel
hérna.
Helga: „Já, það kemur oft fram
á sýningunum að þetta sé íslenskt
merki. Þá er spurt hvernig okkur
gangi á Íslandi. Þá er gaman að
segja frá hversu vel þetta hefur
gengið hér. Við höfum fengið frá-
Mikill áhugi á ævintýraheimi Tulipop
frá leikfanga- og afþreyingariðnaði
Þær Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir, eigendur Tulipop, finna fyrir áhuga ýmissa aðila í afþreyingar-
geiranum sem vilja koma Tulipop-heiminum í tölvuleiki eða sjónvarp. Slík verkefni eru hafin en á byrjunarstigi.
ÆVINTÝRALEGUR HEIMUR TULIPOP Vinkonurnar Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir standa að fyrirtækinu Tulipop sem hefur vaxið hratt. Með auknum vexti fyrirtækisins og umsvifum utan Íslands hafa sífellt fleiri tækifæri
komið á borð fyrirtækisins á öðrum sviðum en vöruframleiðslu. Fréttablaðið/Stefán
Það er því
gaman að
finna fyrir vaxandi
áhuga alls konar
aðila í afþreyingar-
geiranum á Tulipop-
heiminum sem vilja
færa hann til lífs, svo
sem í gegnum tölvu-
leiki eða sjónvarp
eða annað.
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
A
-4
5
E
C
1
7
7
A
-4
4
B
0
1
7
7
A
-4
3
7
4
1
7
7
A
-4
2
3
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K