Fréttablaðið - 07.01.2015, Page 40
7. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Viktoríu
Hermannsdóttur
Breski leikarinn Stephen Fry
hefur þakkað aðdáendum sínum
fyrir góðar kveðjur eftir að
hann staðfesti
að hann ætli að
giftast kærasta
sínum á þessu
ári.
Samkvæmt
blaðinu The
Sun lögðu
hinn 57 ára
Fry og 27 ára
Elliott Spenc-
er inn umsókn
um giftingu á Þorláksmessu
á skráningarstofu í Norfolk á
Englandi.
Fry staðfesti tíðindin á Twitt-
er og skrifaði: „Það virðist sem
búið sé að kjafta frá ákveðnu
máli. Ég er auðvitað mjög, mjög
hamingjusamur en ég var að
vonast eftir brúðkaupi í kyrr-
þey. Engar líkur á því! Takk
kærlega fyrir kveðjurnar ykkar.
Þær snertu mig djúpt.“
Fry staðfestir
trúlofun sína
STEPHEN FRY
Ástralskt kebab á gamlárskvöld
Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Ástralíu síðan í desember. Í kvöld spilar hann tvívegis í Óperuhús-
inu í Sydney. Með á sviðinu verða sjö meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Sydney. Á morgun lýkur síðan ferðalag-
inu með giggi í Melbourne. Þrennir tónleikar eru svo fram undan í Japan og að þeim loknum fer Ásgeir í langa
tónleikaferð um Bandaríkin. Fréttablaðið fékk sendar nokkrar skemmtilegar myndir frá túrnum um Ástralíu.
SKOÐAR TÚRBÓK Friddi hljóðmaður
virðir fyrir sér túrbókina og dagskrá
næstu daga.
Á STRÖNDINNI Ásgeir Trausti og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson frá Hvammstanga
á ströndinni í Ástralíu.
STUND MILLI STRÍÐA Kiddi Hjálmur
stelst í smá lúr baksviðs.
SPENNTUR Trommarinn Helgi Svavar
bíður eftir því að komast á svið.
BLESS Bandið kveður tónleikagesti í Marion Bay í Tasmaníu.
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN 2014 Ásgeir og félagar áttu þrjú flug á gamlársdag.
Þeir lentu rétt fyrir áramótin og fengu sér kebab í kvöldmat.
HEITT Hitinn hefur verið mikill í
Ástralíu og því mikilvægt að bera á sig
góða sólarvörn.
BRÆÐUR BAKSVIÐS Ásgeir ásamt
bróður sínum Þorsteini Einarssyni,
söngvara Hjálma, baksviðs á The Fall
Arts & Music Festival í Marion Bay.
VIÐ BRYGGJUNA Þorsteinn fyrir
fram an lengstu bryggju í Ástralíu.
Save the Children á Íslandi
Besta hátíð ársins er liðin. Vellystingar jólanna með allri sinni gleði og glans,
ljósum og skrauti, hafa siglt sinn veg og
nú tekur alvaran við. Jólatrén dauð, jóla-
kökurnar orðnar gamlar og bara vondu
molarnir eftir í Macintosh-dollunni.
Stemmingin er eins og í lélegu eftirpartíi
þar sem allt fjörið er búið og því kominn
tími til þess að sigla inn í nýtt ár.
EFTIR AÐ HAFA belgt sig út af reyktu
kjöti, malti&appelsíni og öðru góðgæti
eru flestir búnir að fá nóg. Og þá fara allir í
átak. Þar á meðal ég. Líkamsræktar -
stöðvar fyllast af útbelgdum baráttuboltum
með hangikjötstaumana út á kinn.
Allir ætla að taka sig á og verða betri á
þessu ári en því síðasta. Aldrei er jafn
mikið að gera í líkamsræktarstöðvum
og í byrjun árs.
ÉG HEF áður sagt frá litlum lík-
amsræktaráhuga mínum á opin-
berum vettvangi pistlaskrifa. Það
hefur lítið breyst síðan það var
skrifað en viljinn er þó alltaf fyrir
hendi, innst inni. Mig dreymir nefnilega
um að verða svona líkamsræktartýpa.
Þessi sem elskar ræktina, kann á öll tækin
og kemst ekki í gegnum daginn án þess að
hreyfa sig. Og hefur ekkert fyrir því.
ÉG MÆTTI að sjálfsögðu galvösk í ræktina
ásamt bróðurparti þjóðarinnar í byrjun
vikunnar. Vesalings fólkið sem stundar
líkamsrækt allan ársins hring kemst ekki
fyrir lengur í stöðinni. Það horfir á mann
aumkunaraugum sem segja: „Þú endist
ekki út mánuðinn.“ Og hugsanlega er það
rétt. Helmingurinn af þeim sem henda sér
í janúarátak verður líklega hættur fyrir
þann tíma.
LÍKAMSRÆKTARÁRANGUR minn hefur
ekki verið glæstur í gegnum tíðina. Lík-
lega með þeim verri í sögunni, en batnandi
mönnum er best að lifa og aldrei að vita
nema maður meiki það í gegnum þennan
janúarmánuð. Það er reyndar ólíklegt en
mikið vona ég að ég nái að sýna þessum
líkamsræktarbrjálæðingum í tvo heim-
ana þetta árið og verða einn af þeim. Með
grænan djús, prótíndrykk og hlaupandi um
á hlaupabrettinu eins og það sé tilgangur
lífs míns. Það er aldrei að vita nema 2015
sé árið.
Gleðilegt nýtt átak
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
siSAM
5, 7, 10, 11
5, 8
10:10
4:50
UNBROKEN KL. 6 – 9
THE HOBBIT 3 3D KL. 6 – 9
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 – 8
EXODUS KL. 8
MOCKINGJAY– PART 1 KL. 10.15
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30
THE HOBBIT 3 3D KL. 5 - 6 - 8 - 9
THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 4 – 7 - 10
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45 - 8
EXODUS KL. 6 - 9.30
MOCKINGJAY - PART 1 KL. 10.20
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.30
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
A
-1
9
7
C
1
7
7
A
-1
8
4
0
1
7
7
A
-1
7
0
4
1
7
7
A
-1
5
C
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K