Morgunblaðið - 17.06.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþingi í hnút eftir tillöguna
Ný breytingartillaga við makrílfrumvarpið mætir mikilli andstöðu á Alþingi
Mikið uppnám varð á Alþingi í gær eftir að breyt-
ingartillaga var lögð fram við frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um stjórn veiða á Norðaustur--
Atlantshafsmakríl. Jón Gunnarsson, formaður
atvinnuveganefndar Alþingis, segist telja að kröf-
um stjórnarandstöðunnar hafi verið mætt með til-
lögunni, en þar er mælt fyrir um úthlutun makríl-
kvóta til eins árs í senn og framsalsbann kvótans
til næstu þriggja ára.
„Hér er verið að leggja til að þau skilyrði sem
Umboðsmaður Alþingis mælti fyrir um í sínu áliti
verði uppfyllt og að sama skapi verið að nálgast
þau sjónarmið sem hafa verið eitt helsta ágrein-
ingsefnið í fiskveiðistjórnunarmálunum, sem er
framsalið á aflaheimildum,“ sagði Jón.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna,
sagði tillöguna ekki vera breytingu heldur að hún
væri „gjörsamlega ný tillaga“. Afleitt væri að
leggja fram slíkar breytingar þegar komið væri
tveimur vikum fram yfir ætluð starfslok þingsins.
Næsti þingfundur með hefðbundnu sniði verður
ekki fyrr en eftir helgi, að sögn Einars K. Guð-
finnssonar, forseta Alþingis. „Á föstudag verður
hátíðarfundur í tilefni af 100 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna. Hefðbundinn þingfundur verður
því ekki fyrr en eftir helgi,“ sagði Einar, en hann
gat ekki sagt til um hvenær þingloka mætti vænta.
Þá eru umræður um breytingar á rammaáætlun
um orkunýtingu enn í sömu skorðunum, að sögn
Jóns Gunnarssonar. „Í mínum huga virðist vera
sem margir í minnihlutanum kæri sig ekki um
áframhaldandi uppbyggingu í orkufrekum iðnaði í
landinu, eins mikilvægt og við teljum að það sé
gagnvart verðmætasköpun í samfélaginu og til að
hægt sé að standa undir velferðarsamfélagi.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Alþingi Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis,
gat ekki sagt hvenær vænta mætti þingloka.
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu hefur
lokið rannsókn á
mjög umfangs-
miklu fíkniefna-
máli sem teygði
anga sína til Sví-
þjóðar, Hollands,
Frakklands og
Brasilíu.
Við rannsókn-
ina, sem hófst í júlí 2014, var lagt
hald á tæplega 700 grömm af kók-
aíni, um 4 kíló af amfetamíni og rúm-
lega 7 kg af sterum, auk 150
kannabisplantna og 500 gramma af
kannabisefnum.
Framkvæmdar voru níu húsleitir í
þágu rannsóknarinnar, þar af ein á
veitingastað. Á fjórða tug manna var
yfirheyrður og sátu tíu þeirra í
gæsluvarðhaldi síðastliðið haust.
Málið verður sent til embættis
ríkissaksóknara á næstu dögum, en
sakborningarnir eru á aldrinum 20-
44 ára. Meintir skipuleggjendur
hafa allir áður komið við sögu hjá
lögreglu. Rannsóknin var unnin í
samvinnu við lögregluna á Suður-
nesjum, tollgæsluna og tengslaskrif-
stofu Íslands hjá Europol.
Þá naut lögreglan aðstoðar lög-
regluyfirvalda í Svíþjóð, Frakklandi
og Brasilíu. Var innflutningur stöðv-
aður á kókaíni til Íslands frá bæði
Hollandi og Brasilíu, sem og inn-
flutningur á amfetamíni til Íslands
frá Svíþjóð, auk innflutnings á ster-
um til Íslands frá Kína og fram-
leiðslu á kannabisefnum hér á landi.
Stöðvuðu
innflutning
fíkniefna
Kannabis Ræktun
þess var stöðvuð.
Mikill að umfangi
Verzlunarskóli Íslands hafnaði 60
nemendum með 9 eða hærra í meðal-
einkunn í ár. Benda forráðamenn
skólans á að einkunnir hafi hækkað
mikið undanfarin ár og þannig hafi
meðaleinkunn nýnema í stærðfræði
hækkað úr 7,8 árið 2004 í 9,2 árið
2014. Af þeim sem völdu skólann í
fyrsta vali voru 322 með hærri meðal-
einkunn en 9. Meðaleinkunn umsækj-
enda var 9,0 og meðaleinkunn þeirra
sem teknir voru inn var 9,4.
Frá því að samræmdu prófin voru
aflögð hafa einkunnir hækkað til
muna og velta forráðamenn skólans
því fyrir sér hvert þetta stefni.
Hafnað með
einkunn yfir 9
Matvælastofnun og Bændasamtök
Íslands sendu út rafrænan spurn-
ingalista til um 2.000 bænda fyrir
helgi vegna fjárdauðans og höfðu
109 svör borist strax í gærmorgun.
„Við sendum rafrænan spurn-
ingalista sem við erum að byrja að
vinna úr. Ég geri ráð fyrir því að
þessir 109 hafi orðið fyrir ærdauð-
anum, eða semsagt meiri afföllum en
eðlilegt er. Það þarf lengri tíma í að
skoða þetta og fá svör, þetta fór á
föstudagskvöldið,“ segir Sigurborg
Daðadóttir yfirdýralæknir.
Svavar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka sauð-
fjárbænda, tekur í svipaðan streng
og segir að bændur á bæjum þar
sem eitthvað er að, séu miklu dug-
legri að svara.
„Spurningalistinn er ítarlegur
þannig að það tekur smá tíma að
svara þessu. Við sjáum samt líka að
það eru alveg hundrað bændur sem
eru byrjaðir að svara, það er nefni-
lega hægt að byrja að svara og taka
svo pásu,“ segir Svavar.
Þarf meiri svörun
Hann er nú að fara yfir tilkynn-
ingar sem hafa borist samtökunum
og bera saman við þær sem hafa
borist Matvælastofnun. Þeirri vinnu
er ekki lokið.
„Það þarf meiri svörun en það
sem við erum komin með, en við höf-
um samt nú þegar fengið staðfest-
ingu á því að þessar dauðu kindur
skipta þúsundum.“
Sigurborg segir ærdauðann virð-
ast hafa byrjað upp úr áramótun þó
að borið hafi mest á þessu í apríl og
maímánuði . brynjadogg@mbl.is
Spurningalisti sendur til
bænda vegna fjárdauðans
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
Sauðfé Fjárdauði virðist hvorki
bundinn við aldur né kyn sauðfjár.
109 svör hafa
borist af 2.000
Á bæjarstjórnarfundi á Akureyri í gær voru ein-
göngu kvenkyns bæjarfulltrúar, í fyrsta skipti í
sögu bæjarins. Var þessi háttur hafður á í tilefni
þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu
kosningarétt til Alþingis. Ellefu bæjarfulltrúar
gærdagsins voru Sigríður Huld Jónsdóttir, sem
gegndi embætti forseta bæjarstjórnar, Anna
Hildur Guðmundsdóttir, Bergþóra Þórhalls-
dóttir, Dagbjört Elín Pálsdóttir, Eva Hrund
Einarsdóttir, Halldóra Kristín Hauksdóttir, Ingi-
björg Ólöf Isaksen, Margrét Kristín Helgadóttir,
Silja Dögg Baldursdóttir, Sóley Björk Stefáns-
dóttir og Þórunn Sif Harðardóttir. Tíu fyrrver-
andi kvenbæjarfulltrúar voru viðstaddir fundinn
og er hópurinn allur á myndinni að ofan. Eiríkur
Björn Björgvinsson bæjarstjóri sat fundinn að
vanda og fékk að vera með á þessari sögulegu
mynd; liggjandi fyrir framan hópinn!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tímamótum fagnað í höfuðstað Norðurlands
Konur tóku völdin í bæjarstjórn Akureyrar
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fluttu tillögu á borgarstjórnarfundi í
gær gegn hugmyndum um flutning á
starfsemi Landhelgisgæslunnar frá
Reykjavík.
Nokkuð heitar umræður sköpuð-
ust um málið en meirihlutinn ákvað
að vísa málinu til borgarráðs.
„Það fannst mér snautlegt og
Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá því að
við vildum fá umræðuna á fundinum.
Það er opinn vettvangur en borgar-
ráð er lokaður,“ segir Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins.
„Það er algengt þegar tillögur
koma sem meirihlutanum finnst
óþægilegar og hann treystir sér ekki
til að fella þær þar að þeim sé vísað í
borgarráð, þar sem tillögurnar eru
afgreiddar eftir dúk og disk, ef nokk-
urn tímann. Það eru fjölmörg dæmi
um að tillögur gufi upp í borgarráði,“
segir Kjartan.
Sjálfstæðismenn lögðu fram bók-
un um málið þar sem kemur fram að
það sé athyglisvert að fulltrúar kjósi
að vísa tillögunni til nefndar í stað
þess að afgreiða hana í borgarstjórn.
„Slík afgreiðsla vekur spurningar
um raunverulegan vilja borgar-
stjórnarmeirihlutans fyrir því að
Landhelgisgæslan verði áfram í
Reykjavík og að búið verði þannig að
starfsemi hennar í borginni, jafnt
flugdeild sem skiparekstri
stofnunarinnar, að hún nái að þróast
og eflast.“
Tillaga um Gæsl-
una send í nefnd
Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá