Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Evrópusambandið tekur ekkimikið mark á yfirlýsingum ís-
lenskra stjórnvalda um hvernig þau
skilgreina stöðu Íslands gagnvart
sambandinu.
Eftir aðstjórn-
völd sendu
hið óskýra
bréf um að
þau litu
ekki á Ís-
land sem
umsóknarríki hefur Evrópusam-
bandið svarað með enn óskýrari
hætti.
Ekkert fæst uppgefið um hvortÍsland sé enn umsóknarríki að
áliti Evrópusambandsins og það er
ýmist inni eða úti á listum yfir slík
ríki.
Í gær benti Styrmir Gunnarsson áað Ísland væri enn merkt sem
umsóknarríki að ESB á korti á
heimasíðu þess, ásamt yfirlýstum
umsóknarríkjum. „Nokkrum sinn-
um hefur verið vakin athygli á
þessu en án árangurs. Ætli utanrík-
isráðuneytið sé orðið áhrifalaust í
Brussel?“ spyr Styrmir.
Ísland þarf að skýra afstöðu sínaog senda ótvíræð skilaboð um
að það hafi afturkallað umsókn sína
og vilji ekki aðild að Evrópusam-
bandinu.
Fullljóst er orðið að hvorki Evr-ópusambandið né talsmenn
þess hér á landi taka mark á þeim
skilaboðum sem send hafa verið og
þess vegna þarf að hnykkja á þeim
svo að ekki verði misskilið.
Á þessum degi sjálfstæðis lands-ins er eðlilegt að fram komi
hvernig stjórnvöld hyggjast standa
að þessu.
Góður dagur
til að tala skýrt
STAKSTEINAR
Ellen Magnúsdóttir fuglafræðingur
fann óvenjulega lagað hrossa-
gauksegg í Landey við Stykkishólm
og tók meðfylgjandi mynd. Hún
segist ekki hafa séð þetta áður hjá
hrossagauk en fjögur egg lágu
samtals í hreiðrinu og voru hin þrjú
eðlileg.
Hrossagaukur verpir allt að fjór-
um eggjum svo líklegast hafi þetta
egg mætt afgangi og aflagast. Trú-
lega sé það því ófrjótt, þótt ekki sé
hægt að taka af allan vafa um það.
Varptíminn stendur nú yfir hjá
flestum fuglategundum og því mikil
vertíð hjá fuglaáhugamönnum.
„Ekki séð
þetta áður“
Ljósmynd/Ellen Magnúsdóttir
Varp Þessi hrossagauksegg fundust
saman í hreiðri í Landey.
Veður víða um heim 16.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 alskýjað
Bolungarvík 12 rigning
Akureyri 17 skýjað
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 17 skýjað
London 22 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 16 skýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 13 skýjað
Vín 21 skýjað
Moskva 17 léttskýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 17 skúrir
New York 23 alskýjað
Chicago 21 skýjað
Orlando 32 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:56 24:02
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:11 23:46
Hinir árlegu Bíladagar verða
haldnir um næstu helgi á Akureyri,
frá 19. til 21. júní. Þetta er mikil há-
tíð áhugamanna um ökutæki og
akstursíþróttir og er búist við mik-
illi umferð til Akureyrar næstu
daga. Í tilkynningu frá Samgöngu-
stofu eru gestir Bíladaga hvattir til
að varpa ekki skugga á hátíðina
með akstursmáta sem skapað geti
truflun, hættu og óþægindi í um-
ferðinni. Lögregla mun verða með
öflugt eftirlit á leiðinni til Akureyr-
ar, m.a. með ómerktum bifreiðum
sem eru búnar hraðamyndavélum.
Auka umferðareftir-
lit vegna Bíladaga