Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin
í verslun RV og
sjáið úrval af
glæsilegum
hágæða
borðbúnaði
Glamox Luxo
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingarbúnaðar
og býður heildarlausnir fyrir
skóla og bókasöfn
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingahönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ítalir hóta nú að grípa til róttækra
ráða ef Evrópusambandsríkin sam-
þykki ekki að taka við stórum hluta
þeirra ólöglegu innflytjenda og flótta-
manna sem hafa komið til landsins frá
Afríku og Mið-Austurlöndum. Innan-
ríkisráðherrar ESB-ríkjanna komu
saman á fund í gær til að ræða flótta-
mannavandann. Matteo Renzi for-
sætisráðherra sagði að til greina
kæmi að neita að taka við fólki sem
skip frá öðrum ESB-löndum bjarga á
Miðjarðarhafi.
Einnig sagði Renzi að Ítalir
gætu veitt fólkinu tímabundna vega-
bréfsáritun en þá gæti það farið til
allra hinna landanna á Schengen-
svæðinu. Samkvæmt reglum ESB á
innflytjandi að sækja um landvist í
fyrsta aðildarríkinu sem hann kemur
til og þá á að taka af honum eða henni
fingraför sem auðveldar mjög eftirlit.
En ráðherra innflytjendamála á Ítal-
íu, Angelino Alfano, hefur sagt að
neiti innflytjandinn að láta Ítali taka
af sér fingraför sé ekki hægt að
þvinga hann.
ESB-lönd í austanverðri Evrópu
mótmæla því að settur verði ákveðinn
kvóti þannig að hvert ríki taki við
ákveðnum fjölda flóttamanna. Bretar
og Frakkar andmæla einnig þeim
hugmyndum. Yfir 50.000 manns hafa
komið yfir Miðjarðarhafið til Ítalíu
það sem af er árinu, oft í lélegum bát-
um og talið er að minnst 1.800 manns
hafi drukknað. Einnig hafa tugþús-
undir komist til Möltu og Grikklands.
AFP
Ólöglegur Ítalskir lögreglumenn
handsama flóttamann á landamær-
unum að Frakklandi.
Ítalir hóta
örþrifaráðum
Renzi krefst þess að önnur ESB-ríki
leysi flóttamannavandann með þeim
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ef John Ellis
Bush, venjulega
kallaður Jeb,
verður forseta-
frambjóðandi
repúblikana í
Bandaríkjunum á
næsta ári og sigr-
ar verður hann þriðji forsetinn úr
fjölskyldunni.
En ljóst þykir að 12 repúblik-
anar, þar af ein kona, muni keppa
um útnefninguna og sé tekið með-
altal af skoðanakönnunum er Bush
efstur. En rétt nær því sæti þótt
hann sé þekktur, hann er 62 ára og
gegndi embætti ríkisstjóra í Flórída
í átta ár. Og eftirnafnið þekkja allir.
En bróðirinn var umdeildur og er
enn, það er ekki endilega Jeb í hag
að hampa eftirnafninu um of. Það
gerir hann heldur ekki en bendir á
að hann sé reyndur maður sem hafi
náð árangri sem ríkisstjóri.
„Við munum aftur ná stjórn á
framtíð okkar í þessu landi,“ sagði
Bush þegar hann skýrði frá fram-
boði sínu. Hann segist ætla að ýta
undir hagvöxt, efla herinn og bæta
samskiptin við Ísrael. En hvar í lit-
rófi repúblikana er Bush?
Hann er ekki eftirlæti eindreg-
inna hægrimanna. Honum er að vísu
hælt í herbúðum þeirra fyrir að
koma á svonefndu ávísanakerfi í
grunnskólum Flórída, auka þannig
valfrelsi foreldra. En hann vill að
ákveðin námskrá í grunnfögum gildi
í landinu öllu, nokkuð sem stuðn-
ingsmenn aukins fullveldis hvers
sambandsríkis eru andvígir.
Eiginkona Bush, Columba, er
frá Mexíkó og hann talar sjálfur
góða spænsku og er kaþólskur. Og
hann vill tryggja að 12 milljónir
ólöglegra innflytjenda geti orðið rík-
isborgarar, enn eitt ágreiningsefnið
við harðlínumenn. En Bush bendir á
að með miðjustefnu sinni eigi hann
auðveldara en aðrir með að vinna
hylli óflokksbundinna kjósenda.
Jeb fram á sviðið
Gæti höfðað til óflokksbundinna kjósenda en harðlínu-
repúblikanar eru ekki hrifnir af miðjumanninum Bush
Jeb Bush
Starfsmenn heilbrigðisyfirvalda í Suður-Kóreu úða
sótthreinsandi efni í leikhúsi í höfuðborginni Seoul til
að minnka hættuna á útbreiðslu bráðalungnabólgu,
MERS. Skýrt var þrem nýjum dauðsföllum í gær og
hafa nú alls 19 manns dáið úr veikinni í landinu. Vitað
er um minnst 154 sem hafa sýkst og hátt í 5.600 eru í
sóttkví enda veikin mjög smitandi. Skýrt hefur verið
frá dauðsfalli í Sádi-Arabíu og einn lést í Þýskalandi.
AFP
Yfir tuttugu látnir úr bráðalungnabólgu