Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
gerðu tónlist á makkann þinn
Duet 2
stúdíógæði í lófastærð
One
fyrir einfaldar upptökur
MiC
hágæða upptökur
Jam
alvöru gítarsánd
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú færð góðar hugmyndir í dag.
Mundu að raunveruleg auðæfi hvers manns
felast í því góða sem hann eða hún lætur af
sér leiða.
20. apríl - 20. maí
Naut Kannski er fátt spennandi sem bíður
þín en þetta er samt frábær dagur. Hafðu
það í huga að allir þurfa einhverja hvíld.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert í góðu jafnvægi og allt virð-
ist vera með kyrrum kjörum í kringum þig.
Mikilvægast er að vera með góðum vinum
sem hægt er að deila með sorg og gleði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það þurfa báðir aðilar að leggja sig
fram til þess að viðhalda sambandi svo þú
verður líka að leggja þitt af mörkum. Þú
þarft að setja hlutina í forgangsröð og fylgja
þeim svo fast eftir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það ríkir enn þá nokkur óvissa vegna
nýlegra breytinga í einkalífi þínu. Að loknu
erfiðu verki áttu góða hvíld skilið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér líður eins og þú getir ekki tapað,
jafnvel þótt þú myndir reyna það. Allt sem
þú gerir til að lífga upp á heimilið kemur sér
vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hinn mikli erill sem einkennir líf þitt
gæti komið niður á þér núna. Alveg sama
hversu vel að sér ráðgjafar þínir eru, þú virð-
ist alltaf hafa betri hugmyndir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að gera sem mest úr
þeim tækifærum sem þú færð. Þú ert hug-
rakkur/hugrökk og tekst á við lífið af ein-
stökum krafti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt ábyrgð þín sé mikil og krefj-
ist langra vinnudaga, máttu ekki gleyma
sjálfum/sjálfri þér í öllum önnunum. Vertu
opin/n og jákvæð/ur og gerðu ráð fyrir
kraftaverki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það eru kaflaskipti í aðsigi og þú
sem hefur haft í meiru en nógu að snúast átt
nú allt í einu lausa stund. Góður vinur gæti
vakið áhuga þinn á nýjan hátt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Meiri vitneskja kemur sér alltaf
vel og hún bætir líf þitt og tryggir þér öruggt
áframhald. Þú hefur áhrif á marga og fólk
leitar til þín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Góður vinur gæti sagt þér leyndarmál
í dag. Rómantík er til staðar og samskipti við
annað fólk ganga vel fyrir sig. Farðu út á
meðal fólks og njóttu þess sem lífið hefur
upp á að bjóða.
Ég gat ekki stillt mig um aðfletta upp á 17. júní í Skáldu,
afmælisdagabók Jóhannesar úr
Kötlum, og sá þar, að á þessum degi
fæddist Pétur Hannesson, spari-
sjóðsstjóri á Sauðárkróki, árið
1893. Hér er vísa Péturs:
Ræ ég og ræ ég ferju fram á sjóinn,
fjarandi sólarblik í vestri skína.
Hafdjúpið andar rótt – ég finn að fróin
fer eins og mjúkur þeyr um drauma
mína.
Þegar hér var komið sögu rak
forvitnin mig til að fletta upp á af-
mælisdegi Hannesar skálds, sonar
Péturs, til að sjá hvaða erindi Jó-
hannes valdi eftir hann:
Skáld verð ég ekki fyrr en ég finn að þú
ert fólginn í mínu blóði, ég orðinn þú:
laufgræn harpa í höndum myrkurs og
birtu,
himins og jarðar, orðinn lifandi brú,
sem tengir sól og svala mold í eitt;
orðinn máttugt hljóðfæri í höndum lífs-
ins,
harpa lifandi strengja eins og þú.
„Þvílíkt hugmyndaflug í rímorð-
um!“ skrifar Bjarni Stefán Kon-
ráðsson í Leirinn um þessa limru
Davíðs Hjálmars Haraldssonar, Sól-
ardans, og eru það orð að sönnu:
Lá Grettir á grófofnum lakhluta
á grúfu og sneri upp bakhluta
er röðull steig dans
uns rassskora hans
varð rauð eins og máluð á þakhluta.
Á fimmtudag heilsaði Páll Ims-
land „leirliði á þöglum degi“:
Hestamenn löngum þeir laðast að
langfættum hrossum frá Svaðastað,
en sumum finnst betra
sjö til tólf vetra
hrossaket komið frá Hvaðastað?
Þegar bréfberinn skildi póstinn
eftir í Gufuneskirkjugarði auglýsti
Pósturinn: „Við komum því til
skila“. Friðrik Steingrímsson orti:
Það skerðist margt er skil ég við
sem skal þó ekki grátið,
en bréfalúgu bið að þið
á bautasteininn látið.
Davíð Hjálmar Haraldsson bætti
við:
Er að lyktum lokast nærsýn brá
og líkamann um eilífð moldir geyma,
gleraugunum gleyma ekki má
í gluggakistunni við rúmið heima.
Sigurjóna Björgvinsdóttir gat
ekki orða bundist á Boðnarmiði:
Áðan fann ég andblæ af vori
ósköp er golan hlý.
Gróðurinn angar, ég greikka sporið
gleði mín vex á ný.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sólardans og feðgar á ferð
Í klípu
,,ÞEGAR ÞÚ ERT Í MEÐFERÐ, ÞÁ VILTU FARA
ÚT, ÞEGAR ÞÚ ERT KOMINN ÚT, ÞÁ VILTU FARA
INN. AF HVERJU HELDUR ÞÚ AÐ ÞAÐ SÉ?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
,,FANNST ÞÚ FYRIR JARÐSKJÁLFTANUM?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hvetja hann til að
stunda áhugamálin sín.
ÉG ER
ÞUNGLYNDUR.
ERTU AÐ REYNA AÐ LÁTA MÉR
LÍÐA VERR?!
VELKOMIN Í MORGUNMAT
DAGSINS!
FÓLKIÐ
HANS ER FRÁ
FLÓRÍDA.
Víkverji hefur oft velt fyrir sérmegrunarkúrum, sem koma og
fara eins og árstíðir. Þeim fylgja
fyrirheit um að aukakílóin muni gufa
upp og heilsan braggast, bara ef
leiðbeiningunum er fylgt út í ystu
æsar. Víkverji er með mataræði en
hann hefur aldrei verið duglegur að
fylgja sérstöku mataræði. Hinir
ýmsu matarkúrar eru honum þó
minnisstæðir.
x x x
Einn sá fyrsti var kenndur við bæ-inn Scarsdale í New York. Færri
muna þó nöfnin á höfundum kúrsins.
Þeir hétu Herman Tarnower og
Samm Sinclair Baker. Tarnower
varð mun frægari en Baker, en það
var ekki út af kúrnum. Læknirinn
Tarnower var piparsveinn og tals-
vert upp á kvenhöndina. Á áttunda
áratugnum hóf hann samband við
konu að nafni Jean Harris en hélt
jafnframt áfram að hitta aðrar kon-
ur. Einn þeirra var Lynn Tryforos,
ritari hans. Í níundu útgáfu bókar-
innar um Scarsdale-kúrinn þakkar
hann þeim báðum með nafni.
Í mars 1980 dró til tíðinda. Þá
kom Harris að Tarnower og Try-
foros. Hún hafði verið í uppnámi og
segir sagan að hún hafi ætlað að
gera upp mál sín við Tarnower og
fyrirfara sér síðan. Þess í stað skaut
hún Tarnower til bana. Réttarhöldin
yfir Harris tóku margar vikur og
tröllriðu bandarískum fjölmiðlum.
Hún var dæmd í fangelsi og fékk
ekki 200 þúsund dollara, sem hann
hafði ánafnað henni í erfðaskrá
sinni. Málið þótti það krassandi að
gerð var bíómynd, Mrs. Harris. Þar
leikur Ben Kingsley Tarnower og
Annette Bening leikur Harris.
x x x
Síðan hafa kúrarnir komið og fariðog hinar ýmsu fæðutegundir eru
ýmist meinhollar eða bráðdrepandi.
Í bandarísku blaði birtist nýlega listi
yfir 35 bestu kúrana. Framboðið er
því nóg. Nú mun vinsælt að hverfa
aftur til steinaldarfæðis, á fínu máli
kallað paleomataræði. Fyrir stuttu
sá Víkverji teikningu í blaði þar sem
steinaldarmaður kemur heim í helli
sinn og spyr hvað sé í matinn. Þegar
hann heyrir svarið segir hann: „Ég
er orðinn leiður á þessu steinaldar-
fæði.“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Faðir, gjör mig nú dýrlegan hjá þér
með þeirri dýrð, sem ég hafði hjá þér,
áður en heimur var til. (Jh. 17:5.)