Morgunblaðið - 17.06.2015, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Gríman 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég óttaðist um tíma að Grímu-
nefndin gengi ekki heil til skógar
þegar mér voru fluttar fréttirnar
því ég hef ekki stigið á leiksvið í 12
ár,“ segir Edda Heiðrún Backman
sem í gærkvöldi hlaut heiðurs-
verðlaun Leiklistarsambands Ís-
lands fyrir ævistarf sitt í þágu
sviðslista á Íslandi. Þar á undan
hafði hún starfað í 20 ár sem leik-
kona og þar á eftir leikstýrt í fjög-
ur ár.
Árið 2003 þegar Gríman var af-
hent í fyrsta sinn var Edda Heið-
rún valin leikkona ársins í aðal-
hlutverki fyrir leik sinn í annars
vegar Kvetch eftir Steven Berkoff í
leikstjórn Stefáns Jónssonar sem
leikhópurinn Á senunni setti upp í
Vesturporti og hins vegar Hægan
Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín í
leikstjórn Viðars Eggertssonar í
Þjóðleikhúsinu, auk þess sem hún
var valin leikkona ársins í auka-
hlutverki fyrir hlutverk sitt í
Kryddlegnum hjörtum eftir skáld-
sögu Lauru Esquivel sem Hilmar
Jónsson leikstýrði í Borgar-
leikhúsinu. „Á sínum tíma runnu á
mig tvær grímur í orðsins fyllstu
merkingu, því þarnæsta dag eftir
að ég fékk tvær Grímur þá byrjaði
ég að finna fyrir sjúkdómnum,“
rifjar Edda Heiðrún upp og vísar
þar til MND-sjúkdómsins.
Ætíð verið þjónn listarinnar
„Ég fylltist skelfingu þegar ég
veiktist, en var fljót að ná kúrsi aft-
ur. Ég kaus að líta á sjúkdóminn
sem hlutverk; lömuð kona í hjóla-
stól sem keppist við að mála með
munninum eins og hún eigi lífið að
leysa. Öllu dramatískara getur það
ekki orðið, enda gefin fyrir drama
þessi dama,“ segir Edda Heiðrún
sem er og hefur ætíð verið þjónn
listarinnar því sköpunarkraftur
hennar leitar sér alltaf að farvegi
fyrir útrás.
„Það er mér mikill heiður að
hljóta þessi verðlaun,“ segir Edda
Heiðrún um heiðursverðlaun Leik-
listarsambands Íslands. „En ég lít
á virðingu og verðlaun sem tæki-
færi til að koma skoðunum mínum
á framfæri,“ segir Edda Heiðrún
og það gerði hún við verðlaunaaf-
hendinguna í gærkvöldi. Þar veitti
Unnur Birna verðlaununum viðtöku
fyrir hönd móður sinnar og Arn-
mundur Ernst, sonur Eddu Heið-
rúnar, las hugleiðingarnar sem hún
hafði samið í tilefni dagsins. Í ræðu
sinni gerði Edda Heiðrún þrennt
sem á henni brennur að umtalsefni.
Í fyrsta lagi jafnrétti, í öðru lagi ís-
lenska leikritun og í þriðja lagi bar-
áttuna fyrir því að rannsóknir á
heilanum og taugakerfinu verði eitt
af þróunarmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna. Verðlaunin sjálf tileinkar
hún hins vegar bróður sínum, Arn-
mundi Sævari. „En hann skrifaði
tvö og hálft leikrit,“ segir Edda
Heiðrún.
Maður verður að hafa frelsi til
að vera eins og maður er
Þegar talið berst að jafnrétti
leggur Edda Heiðrún áherslu á að
hún tali um jafnrétti í víðasta skiln-
ingi þess orðs, þ.e. jafnrétti milli
kynja, jafnrétti fólks með mismun-
andi líkamlega getu og mismunandi
kynhneigðir, af mismunandi kyn-
stofnum með mismunandi sýn á
heiminn og sjálft sig. „Maður verð-
ur að hafa frelsi til að vera eins og
maður er og frelsi má aldrei slíta
úr samhengi við réttlæti,“ segir
Edda Heiðrún og tekur sérstaklega
fram að þjóðfélagið verði að líta á
það sem jákvæðan veruleika að ung-
ar konur eignist börn.
Spurð hvernig leikhúsið standi sig
þegar kemur t.a.m. að jafnrétti
kynjanna segir Edda Heiðrún hlut-
ina vera að lagast þó þróunin gangi
mjög hægt. „Hlutirnir eru að lagast
bæði hvað snýr að leikstjóra- og höf-
undavali sem og framboði hlutverka.
„Ég lít á leiklistina
sem stórfljót“
Edda Heiðrún Backman hlýtur heiðursverðlaun Leik-
listarsambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista
Gríman – íslensku sviðslistaverð-
launin voru veitt í 13. skiptið við há-
tíðlega athöfn á Stóra sviði Borgar-
leikhússins í gærkvöldi. Alls skiptu
tólf sýningar með sér verðlaununum
átján auk þess sem Edda Heiðrún
Backman hlaut heiðursverðlaun
Leiklistarsambands Íslands fyrir
ævistarf sitt í þágu sviðslista á Ís-
landi.
Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen
sópaði að sér verðlaunum og hlaut
samtals sex verðlaun. Uppfærslan
var valin sýning leikársins, Unnur
Ösp Stefánsdóttir var valin leikkona
ársins í aðalhlutverki fyrir túlkun
sína á Nóru og Harpa Arnardóttir
var valin leikstjóri ársins. Auk þess
var Ilmur Stefánsdóttir verðlaunuð
fyrir leikmynd ársins, Filippía I. El-
ísdóttir fyrir búninga ársins og
Björn Bergsteinn Guðmundsson
fyrir lýsingu árins.
Leikhópurinn Tíu fingur var val-
inn Sproti ársins fyrir uppfærslu
sína á Lífið – stórskemmtilegt
drullumall eftir Helgu Arnalds,
Charlotte Bøving, Sólveigu Guð-
mundsdóttur og Svein Ólaf Gunn-
arsson, en sýningin var jafnframt
valin barnasýning ársins.
Leikari ársins í aðalhlutverki var
Þór Tulinius fyrir túlkun sína á Clov
í Endatafli, en leikari ársins í auka-
hlutverki var Ólafur Egill Egilsson
fyrir túlkun sína á kennaranum í
Sjálfstæðu fólki. Halldóra Geir-
harðsdóttir var valin leikkona ársins
í aukahlutverki fyrir túlkun sína á
frú Wilkinson í Billy Elliot.
Söngvari ársins var valinn Krist-
inn Sigmundsson fyrir túlkun sína á
Filippusi II konungi í Don Carlo, en
dansari ársins var Þyri Huld Árna-
dóttir fyrir Sin. Útvarpsverk ársins
var valið Blinda konan og þjónninn
eftir Sigurð Pálsson sem Kristín Jó-
hannesdóttir leikstýrði. silja@mbl.is
Dúkkuheimili hlaut
alls sex verðlaun
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fögnuður Barnasýning ársins var Lífið - stórskemmtilegt drullumall eftir Helgu Arnalds, Charlotte Bøving, Sól-
veigu Guðmundsdóttur og Svein Ólaf Gunnarsson í sviðsetningu leikhússins Tíu fingur.
Leikari Þór Tulinius þakkar fyrir sig; hann var valinn leikari
ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í leikritinu Endatafli.
Glöð Harpa Arnardóttir var valin leikstjóri ársins fyrir leik-
stjórn sína á Dúkkuheimilinu í sviðsetningu Borgarleikhúss.
Þakklát Unnur Ösp var valin leikkona ársins í aðalhlutverki
fyrir túlkun sína á Nóru í Dúkkuheimili Henriks Ibsen.