Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 22

Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 22
FRÉTTASKÝRING Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Áfrýjunarnefnd neytenda-mála hefur fyrirskipaðNeytendastofu að taka tilefnislegrar meðferðar kvörtun Friðjóns Guðjohnsen, tölv- unarfræðings, en hann telur alvar- legan öryggisgalla vera á rafrænum skilríkjum fyrirtækisins Auðkennis, sem eitt íslenskra fyrirtækja býður upp á slíka þjónustu. Ber því Neyt- endastofu að leggja mat á hvort raf- ræn skilríki Auðkennis uppfylli kröf- ur laga um rafrænar undirskriftir. Áður hafði Neytendastofa ekki séð ástæðu til að grípa til aðgerða við kvörtun Friðjóns. Taldi úrskurð- arnefndin að Neytendastofa hefði ekki tekið málið til efnislegrar með- ferðar. Neytendastofa sagði m.a. í ákvörðun sinni að áhættan varðandi öryggi af þessu tagi tengdist að öllu leyti áhættuþáttum sem alfarið væru á ábyrgð einstaklinga og að einbeittan brotavilja þyrfti til að misnota skilríkin með þeim hætti sem Friðjón greinir. Auðvelt að misnota skilríkin Að sögn Friðjóns er auðvelt að notfæra sér rafræn skilríki annarra og getur nær hver sem er gert það. Viðkomandi þarf fyrst að koma fyrir njósnabúnaði í síma fórnarlambsins. Til þess þarf hann að fá símann lán- aðan eða taka hann í óleyfi. Að sögn Friðjóns getur hver sem er komist yfir njósnabúnaðinn, enda er t.d. boðið upp á slíkan búnað fyrir for- eldra til að fylgjast með símanotkun barna sinna. Þegar búnaðinum hefur verið komið fyrir sendir síminn upp- lýsingar um notkun símans til eig- anda njósnabúnaðarins. Þannig er hægt að komast yfir PIN-númer raf- rænna skilríkja fórnarlambsins. Þá þarf árásaraðilinn að ná aftur yfir- ráðum yfir síma fórnarlambsins og getur hann þá notað rafrænu skilrík- in að vild, enda veit hann PIN- númerið. Ennfrekar nefnir Friðjón að ákveðinn öryggisgalli hafi komið upp í Samsung Galaxy-símum þar sem stjórnandi þráðlauss nets getur komið fyrir álíka búnaði í símunum. Engin tilvik um misnotkun Í lögum nr. 28/2001 um rafræn- ar undirskriftir eru gerðar þær kröf- ur í 8. gr. að öruggur undirskrift- arbúnaður skuli tryggja að undirskriftargögnin verði með hlið- sjón af eðlilegum öryggiskröftum ekki brotin upp og séu varin með fullnægjandi hætti gegn notkun ann- arra en undirritanda. Lögin voru innleiðing á tilskipun Evrópusam- bandsins um rafrænar undirskriftir og gilda því hér sambærilegar regl- ur og innan sambandsins. Í ákvörðun Neytendastofu, sem felld var úr gildi, kom fram að engin tilvik væru þekkt um að ofan- greindri aðferð væri beitt, hvorki hér á landi né annars staðar á EES- svæðinu, þar sem sambærilegar reglur giltu um fullgildar rafrænar undirskriftir. Öruggasta leiðin í boði Haraldur A. Bjarnson, fram- kvæmdastjóri Auðkennis, lítur ekki á það sem Friðjón lýsir sem örygg- isgalla en fagnar umræðunni. Hann segir skilríkin ekki geta verndað gegn öllum mögulegum hættum sem geta komið upp, en þau mæta flest- um hættum. Skilríkin séu gerð að erlendri fyrirmynd og uppfylla þau öryggiskröfur sem eru gerðar í Evr- ópu. „Þetta er ekki eitthvað nýtt sem við fundum upp. Þetta er örugg- asta leiðin í boði. Það er ekki hægt að fullyrða að eitthvað sé 100% öruggt, en í þessu tilviki þarf að komast yfir símann tvisvar og kaupa hugbúnað og koma honum í sím- ann.“ Ætlaður öryggisgalli í rafrænum skilríkjum Morgunblaðið/Rósa Braga Vaxandi tækni Rafræn skilríki eru persónuskilríki á netinu og er hægt að nota þau til fullgildrar undirritunar. Öryggi þeirra er því afar mikilvægt. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ídag er fagnaðaldarafmælikosninga- réttar kvenna. Al- mennur kosninga- réttur fullveðja fólks er sjálf undirstaða lýð- ræðisins í hverju landi. Al- kunna er að stór hópur karla naut ekki kosningaréttar held- ur fyrr en þarna var komið, en það breytir auðvitað engu um það að almennur kosninga- réttur kvenna er einn og sér sannkallað fagnaðarefni. Á árunum 1971-72 birti Les- bók Morgunblaðsins erindi um konur og kosningar. Höfund- urinn, Gísli Jónsson mennta- skólakennari á Akureyri, hafði áður flutt þau í Ríkisútvarpinu. Þessi erindi, örlítið aukin og endurbætt, voru síðar gefin út á bók. Á lokasíðu hennar rifjar Gísli upp nokkra bautasteina málsins í átta töluliðum. Hér skulu nokkrir þeirra nefndir: „Árið 1911 er samþykkt á al- þingi með miklum meirihluta frumvarp Hannesar Hafsteins um algert jafnrétti kynjanna til skólagöngu, námsstyrkja og embætta. Konungur staðfesti lögin 11. júlí fyrrgreint ár. Árið 1915, 19. júní, staðfestir konungur stjórnarskrána með títtnefndum réttindum kvenna, sem þær síðan hafa haft. Konur fagna þessu með miklum hátíð- arhöldum og yfirlýsingu um, að aðalbaráttumál þeirra fyrst um sinn verði bygging landsspít- ala. Í kosningunum 1916 er kona í framboði til alþingis, en hún kemst ekki á þing. Aðeins 10,3% kvenna, er á kjörskrá voru, greiddu atkvæði í landskjörinu, en rúm 30% í kjör- dæmakosning- unum. Með nýrri stjórnarskrá 1920 var lögfest fullt og skilyrð- islaust jafnræði með konum og körlum um kosningaréttinn og kjörgengið, þ.e. aldursmarkið frá 1915 fellt burt. Við landskjör 1922 er Ingi- björg Hákonardóttir Bjarna- son kosin á alþingi af sér- stökum kvennalista, sem fær 22,4% atkvæða. Kjörsókn kvenna var 32,2%.“ Þátttaka í lýðræðislegum kosningum heiminum virðist nú minnka ár frá ári. Deilt er um hvað valdi því en ekki um það að þessi þróun er mikið áhyggjuefni. Í bautasteinunum sem Gísli tók sérstaklega út vekur at- hygli að einungis fjórum árum fyrir kosningarétt kvenna eru samþykkt lög um jafnrétti til skólagöngu, námsstyrkja og embætta. Það vekur einnig óneitan- lega athygli hversu dræm notkun kvenna á kosningarétti sínum var fyrstu árin. Nú eru konur síst eftirbátar karla við nýtingu þessa mikilvæga rétt- ar. Um leið og öllum Íslend- ingum, konum sem körlum, er óskað til hamingju á aldar- afmæli eru bæði kynin, í mestu vinsemd, hvött til þess að nýta þennan dýrmæta rétt hvenær sem tækifæri gefst til þess. Gleðiríkur dagur sem kallar á upp- rifjun og umhugsun} 19. júní Þegar HelleThorning- Schmidt, forsætis- ráðherra Dan- merkur, tilkynnti hinn 27. maí að þingkosningum skyldi flýtt sagði hún að Danmörk væri komin út úr þrengingunum og að tímabært væri að spyrja dönsku þjóðina hvort hún vildi halda áfram á sömu braut. Í gær svöruðu Danir þessari spurningu neitandi og ákváðu að skipta úr rauðu blokkinni yf- ir í þá bláu, eins og það er kall- að í Danmörku, eða frá vinstri- stjórn yfir í hægristjórn. Thorning-Schmidt er því á leið úr forsætisráðuneytinu og í stað hennar sest að líkindum í stól forsætisráðherra, öðru sinni, Lars Lökke Rasmussen, leiðtogi Venstre, sem er hægri- flokkur þrátt fyrir nafnið. Í kosningunum voru innflytj- endamál heitasta umræðuefnið og flestir flokkar sammála um að taka þyrfti harð- ar á innflytjendum en verið hefur. Sósíaldemókrata- flokkur Thorning- Schmidt var engin undantekning, en kjósendum þótti hin blokkin trúverðugri, enda setti Venstre fram skýra stefnu í þessum efnum. Sennilega eru innflytjenda- málin, auk Evrópusambands- málanna, en þessi mál eru reyndar að hluta til tengd, líka ástæða þess að Þjóðarflokkur- inn, sem er í bláu blokkinni, nær tvöfaldaði fylgi sitt og varð stærri en Venstre. Þetta gæti jafnvel þýtt að Þjóðarflokkurinn endaði með ráðherra í ríkisstjórn, en hvort sem það gerist eða ekki hefur enn einn flokkurinn sem efast um Evrópusambandið og stefnu þess um aukinn sam- runa unnið stóran sigur í kosn- ingum innan Evrópusambands- ins. Efasemdaflokkur um ESB vann stóran sigur í Danmörku} Bláa blokkin tekur við H ugsið ykkur, í dag fögnum við því að ein öld er liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosn- ingarétt. Hundrað ár! Til ham- ingju, stelpur á öllum aldri. 19. júní hefur alltaf átt stóran sess í hjarta mínu. Þennan dag fyrir 99 árum fæddist móð- ir mín heitin, Steinunn Jónsdóttir, á árs- afmæli kosningaréttar kvenna. Þennan dag fyrir 33 árum fæddist dóttir mín, Sunna. Því var ávallt tvöfalt og síðar þrefalt tilefni til þess að halda daginn hátíðlegan. Þó ég sé alla jafna á því að við eigum að horfa til þess sem er nú og hvað blasir við okk- ur í náinni framtíð, og staldra sem minnst við baksýnisspegilinn, tel ég að okkur, konum jafnt sem körlum, sé hollt og gott að horfa um öxl á tímamótum sem þessum. Svo óhemjumargt hefur áunnist á undanförnum hundrað árum, okkur konum í hag, þótt vissulega eigum við enn eftir harða baráttu til þess að ná því sem við get- um með góðri samvisku kallað jafnstöðu við karla. Þar á ég ekki síst við það að við njótum fulls jafnréttis í launa- málum – konur fái sömu laun ög karlar, fyrir sömu vinnu. Mamma mín var vel gefin kona og mikil alþýðuhetja. Hún ól okkur sex systkinin upp svo gott sem ein og hjálparlaust, því lengst af var faðir minn til sjós á upp- vaxtarárum okkar. En mamma mín fékk ekki sömu tækifæri til skóla- göngu og mennta, og t.d. dótturdóttir hennar, Sunna, sjö áratugum síðar. Það var talið nóg að mamma mín fengi að sækja barnaskóla til tólf ára ald- urs, og það með hléum, þegar hún var að vaxa úr grasi á Hellissandi, á bernskuárum kosn- ingaréttar kvenna. Hugur hennar stóð alltaf til frekari skólagöngu, en hennar var ekki valið. Hún þurfti einfaldlega að fara að vinna og leggja til heimilisins. Ég sleppi mér úr þessari samanburð- arfræði kvenleggs fjölskyldunnar, því ég fékk öll þau tækifæri til mennta, sem ég hafði áhuga á. Það var ekki sjálfgefið þegar ég var að alast upp, því enn voru nokkuð ríkjandi þau viðhorf í mínum uppvexti, að ungar stúlk- ur ættu að finna sér vænlegt mannsefni, stofna til fjölskyldu, og helst hlaða niður börnum. Dóttir mín fékk líka öll þau tækifæri til mennta sem hún vildi nýta sér og nýtir enn, sem betur fer og það á við um hennar kynslóð kvenna hér á landi. Hvers vegna verður mér svo tíðrætt um menntun kvenna á þessum hátíðisdegi okkar? Jú, það er vegna þess að jöfn tækifæri kvenna á við karla til mennta hafa einmitt átt stærstan þátt í því að skapa okkur þá stöðu sem við erum í, í dag, þótt ég sé alls ekki að segja að við stöndum körlum jafnfætis á öllum sviðum. Við eigum enn talsvert í land, að svo sé, en mér finnst að við íslensk- ar konur eigum á þessum degi að klappa okkur sjálfum á bakið og segja: „Flott hjá okkur! Við gátum þetta og við getum þetta!“ agnes@mbl.is Agnes Bragadóttir Pistill Til hamingju stelpur á öllum aldri! STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Ráðgjafafyrirtækið Admon gerði skýrslu fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið þar sem lagt er mat á fullvissustig auð- kenna. Í viðauka við skýrsluna, sem birtist í gær, kemur fram að rafræn skilríki, hvort heldur sem er á korti eða í farsíma, eru öruggasta almenna rafræna auðkenningin sem í boði er hér á landi. Niðurstöður úttekt- arinnar eru að rafræn skilríki á farsímum uppfylli allar kröfur sem eru gerðar til slíkra skil- ríkja, samkvæmt lögum um raf- rænar undirskriftir. Rafræn skil- ríki undir Íslandsrót eru samkvæmt matinu öruggasta almenna rafræna auðkenningin sem í boði er hér á landi. Íslandsrót er starfrækt af fjármála- og efnahagsráðuneyt- inu og gefur út milliskilríki til fyrirtækja sem gefa út önnur skilríki. Því er um að ræða nokk- urs konar vottun. Auðkenni er eini viðtakandi slíks skilríkis frá Íslandsrót. Standast allar kröfur SKÝRSLA ADMON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.