Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 21
þú nýtur samvista við þá sem á undan fóru. Við höldum utan um mömmu og sjáumst öll, þótt síð- ar verði. Helga Kristinsdóttir. Elsku afi minn, ég er enn að átta mig á því að þú sért farinn, þetta er allt svo óraunverulegt og það er skrýtið að hugsa sér lífið án afa. Mamma fór að grúska í gömlum bréfum frá því að við bjuggum úti í Þýskalandi og þar var bréf frá þér til mín. Ég varð hálf klökkur við að lesa þetta en brosti í gegn tárin því þetta bréf lýsti þér svo skemmti- lega. Í því stóð meðal annars „ég veit ekkert hvað ég á að skrifa, amma er búin að segja Bjarka allar fréttirnar, þú getur bara lesið það“. Ég er endalaust þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk að eyða með þér og ómetanlegt að fá að búa hjá ykkur ömmu í þessa örfáu mánuði þegar ég flutti heim frá Þýskalandi. Mér varð hugsað til þess, nú þegar þú ert farinn, elsku nafni, hver eigi eftir að hringja í mig á hverjum einasta degi yfir rjúpnatímabilið til að fá fréttir og til að athuga hvernig gangi. Hver á að spyrja mig út í jeppann, hvort hann sé ekki örugglega bilaður? Hver á spila við mig ólsen ólsen í hádeg- inu þegar amma er að græja hafragrautinn? Hver á að segja mér að klára af disknum eftir matinn þótt ég sé búinn að sleikja af honum? Ég hafði svo gaman af því að tala við þig því það var svo mikið sprell í þér. Það var alveg sama hvort maður lét þig vita hvort jeppinn væri bilaður eða í lagi eða hvort ég hefði fengið tvær rjúpur eða 30, þá skelltir þú upp úr og sagðir yfirleitt „þið eruð ágætir“. Þú sýndir mér og öllum þínum barnabörnum svo mikinn áhuga og fylgdist vandlega með því sem var að gerast í okkar lífi. Ég er þakklátur fyrir að hafa getað hjálpað þér að slá garðinn, bóna bílinn, sækja sand í blóma- beðið, redda sel fyrir selaveisluna eða koma þér í betra skap og ég er þakklátur fyrir allt það sem þú kenndir mér. Ég er þakklátur fyrir allar þær myndir sem eru til af okkur nöfnunum saman og síð- ast en ekki síst er ég þakklátur fyrir þær minningar sem ég á af þér og okkur, þær getur enginn tekið frá mér. Það sem ég á eftir að sakna þín, sakna hlátursins þíns, sakna samtalanna okkar, sakna þess þegar þú gerðir grín að mér og sakna þess að ég gat gert grín að þér á móti. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt þig sem afa. Ég er þakklátur nafni. Ég elska þig, afi minn. Þinn alnafni, Kristinn Lúðvíksson. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Íþróttir Verðlaunagripir - gjafavara- áletranir Bikarar, verðlaunapeningar, barm- merki, orður, póstkassaplötur, plötur á leiði, gæludýramerki - starfsgreina- styttur. Fannar, Smiðjuvegi 6, Rauð gata, Kópavogi , sími 5516488 Til sölu Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Jessenius Faculty of Medicine (JFM CU) í Martin, Slóvakíu mun halda inntökupróf í Reykjavík 24. júni 2015 kl. 10:30 á Grand Hótel. Ekkert prófgjald. Kennt er á ensku. Nemendur læra slóvakísku og geta tekið alla klinik í Slóv- akíu. Nemendur útskrifast sem læknar (MUDr.) eftir 6 ára nám. Fjöldi Íslendinga stundar nám í læknisfræði við skólann auk Norðmanna, Svía og Finna. Heimasíða skólans er www.jfmed.uniba.sk /en Uppl. í s. 5444333 og fs. 8201071 kaldasel@islandia.is                 !"  #"  $% !         Bílar Renault Megane Classic RT S/D til sölu. Árgerð 1999, ek. 174.000 km. Beinskiptur. Ný tímareim – Nýskoðaður. Þjónustubók. Verð: Tilboð. Upplýsingar í síma 820-7006. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Iðnaðarmenn VANTAR ÞIG IÐNAÐARMANN? Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. Sími 544-4444 / 777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 8.30-16. Opin handa- vinnustofa kl. 9-16 með leiðbeinanda kl. 12.30. Botsía með Sigríði kl. 9.30-10.10. Stafaganga um nágrennið kl. 11-11.40. Félagsvist með vinningum kl. 13.15. Boðinn Bingó kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.40. Kaffi / blöð, hádegisverður og síðdegiskaffi. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Furugerði 1 Handavinna kl. 8-16, (bútasaumur, perlur, prjónað, harð- angur og klaustur) með leiðbeinanda, ganga kl. 13 og framhaldssaga kl. 15.30. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga kl. 9.30-16, hádegismatur kl. 12, panta með dags fyrirvara í síma 6171503, meðlæti með síðdegiskaffi selt kl. 14-16. Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Heitt á könnunni. Gjábakki Handavinnustofan opin, botsía kl. 9.10, hádegisverður kl. 11.40, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13 og félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Frítt kaffi á könnunni og spjall kl. 8.30. Opin handa- vinna – leiðbeinandi kl. 9. Bænastund kl. 9.30. Morgunleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur kl. 11.30. Kaffi kl. 14.30. Skráning hafin á Sumargrill. Hraunsel Þrekæfingar Haukahúsi kl. 9.10. Ganga Haukahúsi kl. 10. Gler kl. 13. Félagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, molasopi í boði til kl. 10.30, blöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, félagsvist kl. 13.15, síð- degiskaffi kl. 15.30, nánar í síma 411-2790 Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 11 í HK húsinu á Digranesheiði. Uppl. í síma 564-1490 og á www.glod.is. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, lagt af stað frá Grafarvogskirkju og frá Borgum, gönguhópar við allra hæfi, bæði sniglaganga, hreinsiganga og hraðganga frá Borgum. Vatn og kaffi á könnunni. Norðurbrún Morgunkaffi kl. 8.30. Morgunleikfimi kl. 9.45. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Göngutúr með starfsmanni kl. 14. Seltjarnarnes Tölvunámskeið í Mýrarhúsaskóla kl. 10. Jóga á Skólabraut kl. 11. Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30. Skemmtiganga frá Skólabraut kl. 13.30. Í dag er allra síðasti skrán- ingardagur vegja sumarferðarinnar í Þórsmörk 25. júní. Allar nánari upplýsingar og skráning hjá Kristínu í síma 8939800. Vesturgata 7 Félagsmiðstöðin Vesturgötu 7 verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með mánudeginum 22. júní. Opnum aftur mánudaginn 27. júlí. Hárgreiðslustofan og fótaaðgerðarstofan verða opnar. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015 ✝ Katrín SigrúnGuðjónsdóttir fæddist á Ljót- arstöðum í Skaft- ártungu 23. apríl 1948. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. júní 2015. Foreldrar henn- ar voru Guðjón Bárðarson bóndi, f. 18.4. 1915, d. 17.6. 1999, og Björg Jónína Kristjáns- dóttir húsmóðir, f. 29.12. 1917, d. 16.1. 2013. Systkini Katrínar eru Þórir Páll Guðjónsson, f. 26.4. 1945. Maki Helga Karlsdóttir. Kristín Guðjónsdóttir, f. 1.4. 1950. Maki Rúnar Viktorsson. Brynrún Bára Guðjónsdóttir, f. 22.1. 1952. Katrín fluttist með foreldrum sínum að Hemru í Skaftártungu vorið 1948 og ólst þar upp. Hún gekk í barnaskóla í Skaftártungunni og tók þátt í almenn- um sveitastörfum fram yfir tvítugs- aldurinn. Flutti þá til Reykjavíkur og starfaði fyrst á Reykjalundi. Réðst síðan til Flugleiða og vann þar við ým- is þjónustustörf um árabil. Katrín keypti sér íbúð á Rauðarárstíg 51 og bjó þar nokkur ár. Vegna heilsubrests þurfti hún að selja íbúðina sína og fékk þá aðstöðu hjá Styrkt- arfélagi vangefinna og bjó fyrst á sambýli á Háteigsvegi 6, síðan í Fýlshólum, en síðustu árin hef- ur hún búið í Langagerði 122. Útför Katrínar fer fram frá Grensáskirkju í dag, 22. júní 2015, og hefst athöfnin kl. 11. Bænastund og jarðsetning verður frá Grafarkirkju í Skaft- ártungu kl. 17 sama dag. „Ekki svona, þú skerð svo mik- ið af kartöflunni þegar þú gerir svona, þú átt að halla hnífnum.“ Svona kenndi Katrín frænka mín mér að skræla kartöflur í sveitinni í Hemru þegar ég var níu ára gamall, en það var eitt af fjölda- mörgu sem ég lærði af henni. Katrín Sigrún Guðjónsdóttir fæddist 1948 og sleit barnsskón- um í Hemru í Skaftártungu við gott atlæti í stórri fjölskyldu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja þar á sumrin sem barn og unglingur á miklum mótunarárum í lífi mínu. Það veganesti sem ég hef úr Hemrudvölinni er ekki síst frá Katrínu, bæði verklag og af- staða til vinnu. Katrín sá til dæmis um að gefa hænunum og hafði sitt lag á því. Við Jónína frænka henn- ar, sem einnig var sumarbarn í Hemru, fengum að taka þátt í þessu undir hennar stjórn, vita- skuld eftir kúnstarinnar reglum. Saman stungum við Katrín út úr fjárhúsunum, það var mikið at og hvergi slegið slöku við. Ákafinn og atorkan sú sama og þegar hún rakaði hey með mikilli sveiflu og tilþrifum. Seinna meir hittum við fjölskyldan Katrínu á Reykjavík- urflugvelli þar sem hún vann við ræstingar. Hún þurrkaði fumlaust og markvisst af borðum, hraðinn mikill og hún mátti varla missa mínútu úr til að spjalla. Enginn var svikinn af afköstum og vinnu- framlagi Katrínar. Hún var glað- vær með skemmtilegan húmor, kannski örlítið hrekkjótt. Hún hafði sérstakt dálæti á að kitla okkur Jónínu og skríkti þá og hló. Hún var skapmikil, það fauk stundum í hana og hún gat orðið býsna reið. Í hita leiksins gátu orðið til skemmtileg orðatiltæki. Í einni vorsmöluninni kastaði Klaustur-Skjóni Katrínu af baki og upp frá því var stirt á milli þeirra. Eitt sinn þegar við vorum að sækja hestana og Skjóni lét illa að stjórn þá fauk í Katrínu með þessum orðum: „Ef ég væri í mín- um sporum myndi ég taka nagla- spýtu og slá hann Skjóna í rass- gatið.“ Nafnið hennar er merkingarbært í okkar fjölskyldu, Katrín dóttir okkar er sami dugn- aðarforkur og nafna hennar. En það er ekki bara verklag og vinnu- semi sem Katrín hefur kennt okk- ur samferðafólki sínu. Ekki síst jók hún skilning okkar á marg- breytileika mannfólksins og í hverju raunverulegir verðleikar felast. Það er með virðingu og þakklæti sem ég og fjölskylda mín kveðjum Katrínu Guðjónsdóttur. Pálmi Magnússon. Katrín Sigrún Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.