Morgunblaðið - 29.06.2015, Page 1
MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti Englendingar í undanúrslit á HM kvenna í fótbolta í fyrsta sinn.
England hafði betur gegn gestgjöfunum í Kanada. Heimsmeistararnir mörðu lið Ástrala 8
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Gullið Spjótkastarinn Helgi Sveinsson bætti heimsmetið um tæpa þrjá
metra í sínum flokki og stefnir á gullið í Rio de Janeiro á næsta ári.
FRJÁLSAR
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson hef-
ur náð mögnuðum árangri í grein-
inni á yfirstandandi keppnistímabili.
Helgi bætti heimsmetið í maímánuði
í sínum flokki (F42) þegar hann
kastaði spjótinu 54,62 metra og um
helgina stórbætti hann þann árang-
ur þegar hann náði kasti upp á 57,36
metra á kastmóti FH í Kaplakrika í
Hafnarfirði. Það er hressileg bæting
upp á tæpa þrjá metra.
„Þegar bætingin kemur er hún
stundum hressileg í spjótinu,“ sagði
Helgi þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í gær.
Aðalmarkmiðið í Ríó
Helgi er heims- og Evrópumeist-
ari í spjótkasti en stærsta verkefni
hans á þessu ári er titilvörn á HM í
frjálsum fatlaðra í Doha í Katar í
október. Aðalmarkmiðið er hins veg-
ar að vinna gull á Paralympics í Rio
de Janeiro 2016.
„Það er langtímamarkmiðið og
það stærsta af þeim öllum. Ég er bú-
inn að fara á eitt svoleiðis mót og þá
var ég bara stjarfur og vissi ekkert
hvað ég var að gera. Í Ríó mæti ég
og sýni þeim hvernig á að gera
þetta,“ sagði Helgi, sem er ófeiminn
við að gefa það út að hann stefni á
gullið. Til þess að ná því markmiði
hefur Helgi minnkað starfshlutfall
sitt hjá Össuri úr 100% í 50%. Auk
þess segist hann íhuga að fara í
hreina atvinnumennsku.
„Ég er búinn að minnka vinnuna
niður í 50% á þessu tímabili til þess
að geta sinnt þessu eins og ég vil
gera. Ég sinni íþróttinni þá 150% í
staðinn fyrir að vera 100% og 100% í
hvoru tveggja. Árangurinn er að
skila sér í þeim málum,“ sagði Helgi.
„Það er spurning um að fara alla leið
á næsta ári og vera bara í íþróttinni
og vona að styrktaraðilarnir opni
augun. Ég hef velt því fyrir mér að
taka eitt atvinnumannatímabil og
æfa tvisvar á dag með það eina
markmið að ná í þetta gull,“ sagði
Helgi.
„Snilld að fá slíka áskorun“
„Ég hitti á það á þessu móti. Það
var mjög ánægjulegt. Þetta hefur
legið vel fyrir mér á þessu tímabili,“
sagði Helgi um árangurinn um
helgina en hann er einföld afleiðing
endalausra æfinga. „Það er bara
gamla sagan. Því meira sem þú æfir,
því betri verðurðu. Ég er búinn að
liggja yfir þessu,“ sagði Helgi.
Hann segir einnig innkomu sína í
æfingahóp bestu spjótkastara lands-
ins, sem Einar Vilhjálmsson, for-
maður Frjálsíþróttasambands Ís-
lands og Íslandsmethafi í spjótkasti,
stýrir, eiga stóran hluta í góðum ár-
angri sínum. „Það er algjör snilld að
fá slíka áskorun. Maður verður bara
betri og betri ef maður æfir með
þeim sem eru ófatlaðir. Þeir kasta
lengra en ég og ég er ekkert sáttur
við það. Ég vil ná þeim,“ sagði Helgi.
Íhugar atvinnumennsku
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson stórbætti eigið heimsmet á kastmóti í Kapla-
krika Stefnir á að fara í 100% atvinnumennsku til þess að ná gullinu í Ríó
Grískir og
spænskir fjöl-
miðlar greindu frá
því í gær að lands-
liðsmaðurinn Al-
freð Finnbogason
væri á leið til
gríska liðsins
PAOK sem láns-
maður í eitt ár, en
Alfreð er á mála
hjá spænska liðinu
Real Sociedad. Hann kom við sögu í
23 leikjum liðsins á síðustu leiktíð og
skoraði í þeim 2 mörk en mátti sætta
sig við að sitja mikið á bekknum.
Daninn Frank Arnesen er yfir-
maður knattspyrnumála hjá PAOK,
sem endaði í þriðja sæti í grísku
úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Spænska blaðið AS segir að PAOK
muni greiða sem svarar 138 millj-
ónum króna fyrir lánssamninginn og
það muni fá forkaupsrétt á leik-
manninum. gummih@mbl.is
PAOK vill fá
Alfreð að láni
Alfreð
Finnbogason
Kvennalandsliðið Íslands í knattspyrnu skipað leik-
mönnum 17 ára og yngri lauk þátttöku sinni í úr-
slitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu í gærkvöld
með 2:0 tapi gegn sterku liði Spánverja á Kópavogs-
vellinum.
Íslensku stelpurnar, undir stjórn Úlfars Hinriks-
sonar, töpuðu þar með öllum leikjum sínum í keppn-
inni en áður höfðu þær beðið ósigur gegn Þjóðverjum,
5:0, og gegn Englendingum, 3:1.
Spánverjar, sem unnu A-riðilinn, höfðu tögl og
hagldir nær allan tímann en íslenska liðið barðist vel
og reyndi eftir fremsta megni að veita spænska liðinu
keppni. Bæði mörk Spánverjanna komu með skalla.
Það fyrra skoraði fyrirliðinn Patricia Guijarro á 17.
mínútu og það síðara skoraði Andrea Sierra á 63. mín-
útu.
Spánn mætir Frökkum í undanúrslitunum og í hinni
viðureigninni eigast við Þýskaland og Sviss. Þýsku
stelpurnar tryggðu sér annað sæti með því að bursta
Englendinga, 5:0, en Svisslendingar báru sigur úr být-
um í A-riðlinum með því að leggja Frakka að velli, 2:1.
gummih@mbl.is
Þriðja tapið
hjá stelpunum
Ísland lá fyrir Spáni, 2:0
Morgunblaðið/Eva Björk
Barátta Guðný Árnadóttir og Selma Sól Magnúsdóttir í baráttu við leikmann Spánverja.
Margt bendir til
þess að landsliðs-
markvörðurinn
Hannes Þór Hall-
dórsson sé á leið
til hollenska úr-
valsdeildarliðsins
Nijmegen og
verði þar með
liðsfélagi Krist-
jáns Gauta Emils-
sonar. Norska B-
deildarliðið Sandnes Ulf hafnaði
fyrsta tilboði frá Nijmegen í Hannes
en Hollendingarnir hafa gert annað
tilboð og vonast forráðamenn Sand-
nes eftir ná samkomulagi um kaupin
á næstu dögum. Þá hefur Sandnes
einnig borist tilboð frá tyrkneska
liðinu Karabükspor í Hannes en
Nijmegen þykir vera líklegra til að
verða næsti viðkomustaður Hann-
esar. gummih@mbl.is
Hannes til
Nijmegen?
Hannes Þór
Halldórsson
Ríkharður Jónsson skoraði öll fjög-
ur mörk íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu þegar það sigraði Svía, 4:3, í
vináttulandsleik á Melavellinum í
Reykjavík 29. júní 1951.
Ríkharður fæddist 1929 og lék
lengst með ÍA, en einnig með Fram á
fyrstu árunum. Hann var spilandi þjálf-
ari ÍA frá 1951, varð sex sinnum Ís-
landsmeistari með liðinu og varð sjálf-
ur sjö sinnum markahæsti leikmaður
Íslandsmótsins. Hann þjálfaði ÍA og
landslið Íslands eftir að hann hætti að
spila. Ríkharður lék 33 landsleiki 1947
til 1965 og skoraði 17 mörk sem var
lengi markamet, og er enn 2.-3.
markahæsti landsliðsmaður Íslands
frá upphafi.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS